Ferill 385. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 914  —  385. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um útgjöld til loftslagsmála.


     1.      Hversu mikið fé hefur runnið árlega úr ríkissjóði til loftslagsmála undanfarin tíu ár?
    Loftslagsmál eru þverfaglegt málefni sem spannar mörg málefnasvið og málaflokka þvert á ráðuneyti og stofnanir. Útgjöld og kostnaður getur fallið til með ýmsum hætti, t.d. með beinum styrkveitingum, er falla á gjaldahlið ríkissjóðs, eða með skattaívilnunum, sem falla á tekjuhlið. Af þeim sökum er ekki mögulegt að skoða einn fjárlagalið til að kalla fram heildstætt yfirlit yfir þá fjármuni sem veittir hafa verið til loftslagsmála.
    Til að bæta þessa upplýsingagjöf hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið í samvinnu við önnur ráðuneyti sett saman svokallaðar rammagreinar um útgjöld vegna loftslagsmála sem hafa verið birtar í eftirfarandi fjármálaáætlunum:
    Fjármálaáætlun 2022–2026. Rammagrein 11: Útgjöld til loftslagsmála aukin um 10 milljarða kr. til ársins 2031, bls. 102–103.
    Fjármálaáætlun 2024–2028. Rammagrein 4: Skattaívilnanir vegna orkuskipta, bls. 64–65 og rammagrein 7: Framlög til loftslagsmála, bls. 85–86.
    Fjármálaáætlun 2025–2029. Rammagrein 5: Auknum stuðningi við loftslagsmál viðhaldið.
    Nýjasta rammagreinin varpar ljósi á þróun útgjalda til loftslagsmála síðastliðin átta ár, eða á árunum 2017–2024, auk áætlaðra útgjalda á tímabilinu 2025–2029. Útgjöld á tímabilinu 2017–2024 nema alls 144,3 milljörðum kr. og útgjöld á tímabilinu 2025–2029 eru áætluð 113,5 milljarðar kr., eða alls 257,8 milljarðar kr.

     2.      Hver eru helstu verkefni sem ráðist hefur verið í á sviði loftslagsmála á umræddu tímabili?
    Fjármunum til loftslagsmála hefur einkum verið varið til aðgerða er skipta má í fjóra flokka, þ.e. skattstyrki, aðgerðir í samgöngum, í landbúnaði og til annarra beinna aðgerða sem stuðla að samdrætti í losun.
    Skattstyrkir undanfarin ár hafa einkum falist í skattaívilnunum frá virðisaukaskatti til að hvetja til kaupa á umhverfisvænum og hreinorkuökutækjum, reiðhjólum og hleðsluinnviðum, einnig niðurfellingu vörugjalds á vistvænt eldsneyti. Skattaívilnanir voru svo að mestu felldar niður í árslok 2023.
    Í samgöngum voru helstu útgjöld framan af, eða fram til ársloka 2023, til rafvæðingar hafna (hafnarsamlög) og í haftengdri starfsemi (svo sem Herjólfs) en einnig vegna almenningssamgangna, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni, uppbyggingu hjóla- og göngustíga auk ýmissa styrkveitinga úr Orkusjóði vegna verkefna til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Frá og með 2024 komu svo til beinar styrkveitingar til kaupa á hreinorkuökutækjum.
    Á sviði landbúnaðar hefur einkum verið um að ræða útgjöld í tengslum við landgræðslu, skógrækt og garðyrkju.
    Beinar aðgerðir hafa einkum falist í aðgerðum tengdum aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og styrkveitingum úr loftslagssjóði og að hluta til úr Orkusjóði.

     3.      Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af þessari ráðstöfun opinbers fjár?
    Ýmis upplýsingagjöf um árangur loftslagsaðgerða er bundin í lög og reglugerðir. Árangur af starfi í þágu loftslagsmála er mældur til lengri tíma. Árlega skilar Umhverfis- og orkustofnun tölum um losun gróðurhúsalofttegunda til Evrópusambandsins og skrifstofu loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC).
    Annað hvert ár skilar Umhverfis- og orkustofnun framreikningum um losun gróðurhúsalofttegunda út frá loftslagsaðgerðum í undirbúningi og framkvæmd til Evrópusambandsins.
    Samkvæmt lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, og reglugerð nr. 786/2024 skal verkefnisstjórn loftslagsaðgerða skila ráðherra skýrslu um framgang aðgerðaáætlunar. Síðustu skýrslu var skilað til ráðherra árið 2022 en það var ekki gert árin 2023 og 2024, m.a. vegna vinnu við endurskoðun aðgerðaáætlunar:
www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/URN/Stoduskyrsla_Adgerdaaaetlun_2022.pdf

     4.      Hverjir eru tíu helstu viðtakendur umræddra fjármuna?
    Helstu viðtakendur fjármunanna eru annars vegar ríkisstofnanir og opinberir aðilar sem hafa lögbundnar skyldur á sviði loftslagsmála, líkt og Umhverfis- og orkustofnun, Veðurstofa Íslands og Land og skógur (áður Landgræðslan og Skógræktin) en einnig í formi mótframlaga til stofnana sem koma að loftslagsaðgerðum vegna þess að þær snúa að því að draga saman losun gróðurhúsalofttegunda, binda kolefni eða auka þol gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga á þeirra málefnasviði.
    Hins vegar hefur hluti fjármuna farið í gegnum Orkusjóð, nú Loftslags- og orkusjóð, til einkaaðila og félagasamtaka sem hafa mátt sækja styrki í þann sjóð.