Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 915 — 206. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og stofnana sem heyra undir það verið frá árinu 2018 við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, þ.e. upplýsingakerfa, gagnagrunna, staðlaðs skrifstofuhugbúnaðar og annarra stafrænna innviða sem nýtast í almennum rekstri ríkisaðila? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti, stofnunum og árum.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti hefur ekki keypt þjónustu við gerð og þróun hugbúnaðar eða upplýsingakerfa heldur nýtir ráðuneytið staðlaðan búnað frá Umbru, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, og Fjársýslu ríkisins.
Í meðfylgjandi töflu er yfirlit yfir kostnað ráðuneytisins og undirstofnana þess.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.