Ferill 244. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 916 — 244. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um fyrirkomulag og umfang upplýsingatækni hjá ríkinu.
1. Hversu margir aðilar kaupa inn hvers kyns vörur eða þjónustu á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið: Einn aðili.
Minjastofnun Íslands: Einn aðili.
Náttúruverndarstofnun: Tveir aðilar.
Náttúrufræðistofnun: Tveir aðilar.
Umhverfis-, og orkustofnun: Einn aðili.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála: Einn aðili.
Úrvinnslusjóður: Einn aðili.
Veðurstofa Íslands: Fjórir aðilar.
2. Hefur ráðuneytið og undirstofnanir þess á að skipa sérhæfðu starfsfólki vegna innkaupa á upplýsingatækni eða stafrænna mála?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið: Já.
Minjastofnun Íslands: Nei.
Náttúruverndarstofnun: Já.
Náttúrufræðistofnun: Já.
Umhverfis-, og orkustofnun: Já.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála: Já.
Úrvinnslusjóður: Já.
Veðurstofa Íslands: Já.
3. Hver var heildarrekstrarkostnaður og fjárfestingarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess árin 2021, 2022, 2023 og 2024 vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála? Svar óskast sundurliðað eftir kostnaðarstöð og því hvort um er að ræða fjárfestingu eða rekstur. Einnig er óskað eftir að sá hluti rekstrar- og fjárfestingarkostnaðar sem telst vöru- eða þjónustukaup verði flokkaður eftir tegund innkaupa (lausafjárkaup, útboð, rammasamningar o.s.frv.) og hvort þau kaup voru með aðstoð Ríkiskaupa (Fjársýslunnar) eða annarra og þá hverra.
Um 84% af rekstrarkostnaði aðalskrifstofu ráðuneytisins vegna upplýsingatæknireksturs er vegna rekstrarleigu tölvubúnaðar, afnotagjalda og kostnaðarhlutdeildar í sameiginlegri tölvuþjónustu. Umbra, rekstrarfélag Stjórnarráðsins, annast almennan upplýsingatæknirekstur fyrir ráðuneytið, þar á meðal innkaup á upplýsingatæknibúnaði og önnur tæknimál. Slík innkaup fara fram í gegnum rammasamninga og felast m.a. í kaupum á tölvum sem Umbra leigir ráðuneytinu. Að öðru leyti er ávallt leitast við að nýta rammasamninga sé þess kostur.
Rekstrarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana fyrir vöru- og þjónustugjöld sem tengjast upplýsingatækni.
| Rekstrarkostnaður | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
| 14310 Landmælingar Íslands | 24.189.426 | 27.010.480 | 24.561.880 | 11.974.156 |
| 14501 Orkustofnun | 23.643.097 | 24.862.175 | 38.449.663 | |
| 14190 Ýmis verkefni | 2.104.389 | 22.487.350 | 4.100.616 | 25.593.051 |
| 14211 Umhverfisstofnun | 60.196.700 | 71.717.927 | 109.009.166 | 103.206.024 |
| 14212 Vatnajökulsþjóðgarður | 25.685.787 | 39.077.051 | 46.612.569 | 60.259.809 |
| 14401 Náttúrufræðistofnun | 18.967.296 | 18.704.046 | 18.774.140 | 30.676.874 |
| 14412 Veðurstofa Íslands | 281.229.971 | 342.789.450 | 408.471.495 | 495.023.487 |
| 14287 Úrvinnslusjóður | 3.148.550 | 6.997.080 | 3.358.422 | 8.045.194 |
| 14101 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, aðalskrifstofa | 29.781.881 | 34.206.484 | 44.999.425 | 46.723.007 |
| 14151 Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála | 1.070.077 | 923.007 | 889.030 | 1.252.208 |
| 14450 Minjastofnun Íslands | 7.126.873 | 9.235.528 | 7.911.539 | 7.042.086 |
| 14202 Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn | 245.998 | 232.840 | 303.041 | 121.320 |
Fjárfestingarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana.
| Fjárfesting | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
| 14310 Landmælingar Íslands | 3.156.695 | 2.533.345 | 2.851.711 | 600.752 |
| 14501 Orkustofnun | 14.411.527 | 5.297.144 | 6.314.062 | |
| 14190 Ýmis verkefni | 0 | 0 | 0 | 0 |
| 14211 Umhverfisstofnun | 6.045.519 | 9.383.626 | 6.930.246 | 5.680.160 |
| 14212 Vatnajökulsþjóðgarður | 3.261.036 | 5.427.559 | 6.518.045 | 8.231.531 |
| 14401 Náttúrufræðistofnun | 2.819.566 | 3.881.724 | 3.288.163 | 1.689.858 |
| 14412 Veðurstofa Íslands | 6.010.482 | 20.891.532 | 16.729.064 | 77.498.332 |
| 14287 Úrvinnslusjóður | 488.844 | 5.273.139 | 11.370.958 | 16.317.940 |
| 14101 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, aðalskrifstofa | 0 | 0 | 0 | 0 |
| 14151 Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála | 843.318 | -123.661 | 742.376 | 275.577 |
| 14450 Minjastofnun Íslands | 1.312.316 | 4.396.880 | 1.215.442 | 147.895 |
| 14202 Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn | 580.782 | 53.025 | 0 | 0 |
Flokkun rekstrar- og fjárfestingarkostnaðar sem telst til vöru- eða þjónustukaupa.*
| Rekstrar- og fjárfestingarkostnaður sem telst til vöru- eða þjónustukaupa | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
| 14401 Náttúrufræðistofnun | ||||
| Lausafjárkaup | 4.537.771 | 6.534.082 | 409.922 | 3.003.357 |
| Rammasamningar | 7.424.491 | 6.078.064 | 9.993.198 | 10.369.875 |
| Útboð | 9.824.600 | 9.973.624 | 11.659.183 | 18.993.500 |
| þar af með aðstoð Fjársýslunnar (Ríkiskaupa) | 0 | 0 | 0 | 0 |
| þar af með aðstoð annarra | 0 | 0 | 0 | 0 |
| 14310 Landmælingar Íslands | ||||
| Lausafjárkaup | 3.052.064 | 3.612.139 | 2.652.669 | 432.826 |
| Rammasamningar | 8.630.170 | 7.323.758 | 5.117.203 | 2.574.059 |
| Útboð | 15.663.887 | 18.607.928 | 19.643.719 | 9.568.023 |
| þar af með aðstoð Fjársýslunnar (Ríkiskaupa) | 0 | 0 | 0 | 0 |
| þar af með aðstoð annarra | 0 | 0 | 0 | 0 |
| hver (texti): | ||||
| 14202 Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn | ||||
| Lausafjárkaup | 694.122 | 166.365 | 170.791 | |
| Rammasamningar | 132.658 | 119.500 | 132.250 | 65.778 |
| Útboð | 0 | 0 | 0 | 0 |
| þar af með aðstoð Fjársýslunnar (Ríkiskaupa) | ||||
| þar af með aðstoð annarra | ||||
| hver (texti): | ||||
| 14450 Minjastofnun Íslands | ||||
| Lausafjárkaup | 5.656.104 | 11.146.145 | 7.077.021 | 5.962.463 |
| Rammasamningar | 2.783.085 | 2.486.263 | 2.049.960 | 1.227.518 |
| Útboð | 0 | 0 | 0 | 0 |
| þar af með aðstoð Fjársýslunnar (Ríkiskaupa) | ||||
| þar af með aðstoð annarra | ||||
| hver (texti): | ||||
| 14287 Úrvinnslusjóður | ||||
| Lausafjárkaup | 372.829 | 143.840 | 738.712 | 491.150 |
| Rammasamningar | 1.965.779 | 2.494.198 | 2.974.200 | 3.664.615 |
| Útboð | 0 | 0 | 0 | 0 |
| þar af með aðstoð Fjársýslunnar (Ríkiskaupa) | ||||
| þar af með aðstoð annarra | ||||
| hver (texti): | ||||
| 14412 Veðurstofa Íslands | ||||
| Lausafjárkaup | 19.059.269 | 41.341.536 | 43.137.910 | 83.272.023 |
| Rammasamningar | 13.392.792 | 16.641.171 | 30.162.697 | 19.176.049 |
| Útboð | 2.679.540 | 22.669.529 | 88.069.464 | 191.729.751 |
| þar af með aðstoð Fjársýslunnar (Ríkiskaupa) | 0 | 0 | 0 | 0 |
| þar af með aðstoð annarra | 0 | 0 | 0 | 0 |
| hver (texti): Eigin sérfræðingar | 4.250.361 | 7.768.888 | 57.582.717 | |
| hver (texti): Framnes (nýr vefur) | 2.679.540 | 18.419.168 | 80.300.576 | 134.147.034 |
| * Vegna nýafstaðinna stofnanabreytinga nokkurra undirstofnana ráðuneytisins þá skortir ofangreinda flokkun fyrir eftirfarandi aflagðar stofnanir; 14211 Umhverfisstofnun, 14212 Vatnajökulsþjóðgarður og 14501 Orkustofnun en áhersla hefur verið lögð á að versla innan rammasamninga hjá stofnununum. | ||||
4. Hvað starfar margt starfsfólk annars vegar og verktakar hins vegar á sviði upplýsingatækni eða stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið: Rekstrarstjóri ber ábyrgð á stafrænum verkefnum ráðuneytisins. Þjónustu á sviði upplýsingatækni er að öðru leyti sinnt af Umbru, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins.
Minjastofnun Íslands: Engir starfsmenn á þessu sviði.
Náttúruverndarstofnun: Einn starfsmaður. Önnur þjónusta á þessu sviði er aðkeypt.
Náttúrufræðistofnun: Sjö starfsmenn. Engir verktakar eru til staðar en þjónustu í tengslum við hýsingu, net- og vefmál er útvistað.
Umhverfis-, og orkustofnun: 7–8 stöðugildi. Þá starfa einnig tveir verktakar við verkefni á sviði vef- og skjalamála.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála: Engir starfsmenn. Þjónustu sem tengist upplýsingatækni er útvistað.
Úrvinnslusjóður: Tveir starfsmenn auk tveggja verktaka með tímabundin verkefni.
Veðurstofa Íslands: Fimm stöðugildi á sviði notendalausna og umsjónar með stoðkerfum (varaafl og kælikerfi), fimm stöðugildi á sviði kerfisreksturs og átta stöðugildi í hugbúnaðarþróun. Engir verktakar eru til staðar en önnur þjónusta á þessu sviði er aðkeypt.
5. Hversu margt fólk starfar við hugbúnaðargerð eða þróun, svo sem fram- eða bakendaforritun, á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið: Ekki til staðar.
Minjastofnun Íslands: Ekki til staðar.
Náttúruverndarstofnun: Ekki til staðar.
Náttúrufræðistofnun: Sex starfsmenn í fjórum stöðugildum.
Umhverfis- og orkustofnun: 4–5 stöðugildi.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála: Ekki til staðar.
Úrvinnslusjóður: Einn starfsmaður.
Veðurstofa Íslands: Átta stöðugildi í hugbúnaðarþróun, að mestu leyti við verkefni tengd gagnagrunnum, miðlun gagna í viðeigandi úrvinnslukerfi, framsetningu gagna fyrir sólarhringsvakt Veðurstofunnar og miðlun gagna.