Ferill 488. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 917  —  488. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um yfirlýsingu um norræna málstefnu og skandinavísk tungumál.


     1.      Hefur ráðherra eða ráðuneytið tekið afstöðu til yfirlýsingar um norræna málstefnu sem Norræna ráðherranefndin samþykkti í Stokkhólmi 2. maí 2024? Ef svo er, hver er sú afstaða? Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar eða hafa verið framkvæmdar til að fylgja yfirlýsingunni eftir?
    Eftirfylgni með yfirlýsingunni er unnin í samstarfi embættismannanefndar um menntamál og rannsóknir og embættismannanefndar um menningarmál. Samkvæmt ákvörðun um skiptingu fulltrúa landa í nefndinni sem ber ábyrgð á eftirfylgni með yfirlýsingunni milli embættismannanefndar um menntamál og rannsóknir og embættismannanefndar um menningarmál er fulltrúi Íslands úr nefndinni um menningarmál. Fer því menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti með málið fyrir hönd Íslands. Í ljósi þess hefur hvorki mennta- og barnamálaráðherra né mennta- og barnamálaráðuneytið tekið afstöðu til yfirlýsingarinnar umfram það sem undirritun hennar felur í sér að undanskildum þeim breytingum sem gerðar voru á greinasviði erlendra tungumála í aðalnámskrá grunnskóla sem birtar voru árið 2024.

     2.      Telur ráðherra að fyrirkomulag og vægi kennslu í skandinavískum tungumálum, þ.e. í dönsku, norsku og sænsku, í íslenskum grunn- og framhaldsskólum uppfylli þær skyldur sem Ísland hefur skv. 8. gr. Helsingforssamningsins og samkvæmt öðrum samþykktum, yfirlýsingum og ályktunum norrænna stofnana og stuðli með fullnægjandi hætti að því að íslenskir nemendur öðlist skilning á þessum tungumálum?
    Mennta- og barnamálaráðuneyti telur að þau viðmið sem sett eru fram í aðalnámskrám grunn- og framhaldsskóla um erlend tungumál séu í samræmi við þær skyldur sem Ísland hefur samkvæmt Helsingforssamningnum, en getur hins vegar ekki tekið afstöðu til þess er varðar „aðrar samþykktir, yfirlýsingar og ályktanir norrænna stofnana“ þar sem óljóst er til hvers er vísað.
    Í þessu samhengi má einnig nefna að í gildi er samkomulag milli menntamálaráðuneytis Danmerkur og mennta- og barnamálaráðuneytis um stuðning við dönskukennslu í íslenskum grunnskólum. Í samkomulaginu felst m.a. að danska menntamálaráðuneytið greiðir fyrir tvo farkennara í dönsku sem heimsækja grunnskóla hér á landi nokkrar vikur í senn og styðja faglega við dönskukennslu. Einnig er samkvæmt samningnum greitt fyrir einn lektor í dönsku við menntavísindasvið Háskóla Íslands sem m.a. vinnur að faglegum stuðningi við dönskukennslu í framhaldsskólum ásamt því að styðja við nám kennaranema í dönsku.
    Framkvæmd skólahalds í grunnskólum er á ábyrgð sveitarfélaga og er samstarf þeirra á milli vegna náms í sænsku og norsku fyrir nemendur með sérstök tengsl við Noreg eða Svíþjóð.

     3.      Hversu vel hafa íslenskir nemendur uppfyllt almenn hæfniviðmið í skandinavískum tungumálum sem kveðið er á um í aðalnámskrám grunnskóla og framhaldsskóla? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá 2015 til 2024.
    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ekki yfir að ráða upplýsingum um niðurstöður námsmats einstakra nemenda í grunn- og framhaldsskólum. Umbeðnar upplýsingar liggja því ekki fyrir.

     4.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir gagngerri endurskoðun á kennslu í skandinavískum tungumálum í íslenskum skólum með það að markmiði að styrkja færni nemenda til að skilja og nota þessi tungumál og efla menningartengsl í anda norræns samstarfs?
    Útfærsla á fyrirkomulagi kennslu, kennsluháttum og vinnubrögðum og val á námsefni í grunn- og framhaldsskólum er á ábyrgð einstakra skóla og viðkomandi kennara en þarf að vera í samræmi við viðmið sem sett hafa verið í aðalnámskrár. Það er þar af leiðandi ekki á hendi ráðherra að mæla fyrir um útfærslu á kennslu í skandinavískum tungumálum í íslenskum skólum.
    Á árunum 2022–2024 var unnið að endurskoðun á greinasviðum aðalnámskrár grunnskóla, þ.m.t. vegna erlendra tungumála. Endurskoðuð greinasvið voru birt árið 2024. Í aðalnámskránni kemur m.a. fram að tilgangur náms og kennslu í norrænum tungumálum á Íslandi er að viðhalda og styrkja tengsl við Norðurlandaþjóðir og stuðla að því að Íslendingar eigi greiða leið að sameiginlegum markaði menntunar og atvinnu á Norðurlöndum. Hæfni og kunnátta í norrænum tungumálum gerir Íslendingum kleift að vera virkir þátttakendur í mikilvægu norrænu samstarfi, námi, starfi og leik. Góð kunnátta í einu norrænu tungumáli er lykill að hvaða svæði sem er á Norðurlöndunum og greiðir fyrir öllum samskiptum. Þá byggjast matsviðmið fyrir erlend tungumál á því að styrkja færni nemenda til að skilja og nota þessi tungumál og efla menningartengsl, sbr. kafla 20.2 í aðalnámskrá grunnskóla. Ráðuneytið telur því ekki tímabært að fara í frekari endurskoðun eða gera frekari breytingar á aðalnámskrá grunnskóla að svo stöddu.
    Í annarri aðgerðaáætlun menntastefnu fyrir árin 2025–2027 er tilgreint að aðalnámskrá framhaldsskóla verði endurskoðuð, þar á meðal með tilliti til samfélagslegra breytinga, hlutverks framhaldsskólans, undirbúnings undir frekara nám, samfellu við önnur skólastig og alþjóðlegra skuldbindinga sem Ísland hefur undirgengist. Einnig kemur fram að tryggja eigi að nám í framhaldsskóla standist alþjóðlegan samanburð og undirbúi nemendur með sem bestum hætti fyrir líf, störf og áframhaldandi nám.