Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 920 — 327. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur verið árlegur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess frá árinu 2017 við þjónustu, ráðgjöf, stefnumótun og fræðslu sem útvistað hefur verið og tengist jafnréttismálum og kynjafræði? Svar óskast sundurliðað eftir viðtakendum greiðslna, tegund veittrar þjónustu og undirstofnunum sem í hlut eiga.
Ráðuneytið kallaði eftir upplýsingum frá undirstofnunum sínum vegna fyrirspurnarinnar. Í töflunni má sjá útgjöld vegna jafnréttismála og kynjafræði eftir stofnunum fyrir árin 2018–2024, sem er frá skiptingu innanríkisráðuneytisins, þ.m.t. útgjöld ráðuneytisins sjálfs. Þær stofnanir sem ekki koma fram í töflunni höfðu engan kostnað á tímabilinu eða skiluðu ekki upplýsingum sem rekja mátti beint til jafnréttismála og kynjafræði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.