Ferill 475. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 922  —  475. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um þyrlukost Landhelgisgæslunnar.


     1.      Hvort telur ráðherra skynsamlegra fyrir Landhelgisgæsluna að leigja eða eiga þyrlur til lengri tíma?
    Það eru kostir og gallar fólgnir í hvoru fyrirkomulagi um sig. Fyrir starfsemi Landhelgisgæslunnar geta verið kostir fólgnir í því að leigja þyrlur til tiltekins tíma í senn. Með því móti er hægt að endurskoða þær kröfur sem gerðar eru til tækja og búnaðar með styttra millibili en ef þyrlurnar eru í eigu ríkisins.
    Í apríl árið 2025 gekk dómsmálaráðherra frá samningi við núverandi leigusala um áframhaldandi leigu á þremur þyrlum fyrir Landhelgisgæslu Íslands til næstu sjö ára. Er samningnum ætlað að tryggja viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar til leitar og björgunar innan íslenskrar efnahagslögsögu. Samningurinn endurspeglar sömuleiðis áherslu ríkisstjórnarinnar í öryggismálum en árið 2024 var metár í útköllum og helmingur þeirra var vegna sjúkraflutninga. Umsamin leigufjárhæð fyrir öll sjö árin sem þyrlurnar eru leigðar er um 56 milljónir evra, sem samsvarar rúmum átta milljörðum íslenskra króna.
    Hvort sem björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar eru leigðar eða keyptar er mikilvægt að þær standist kröfur sem gerðar eru til þeirrar starfsemi sem stofnunin sinnir á hafsvæðinu umhverfis Ísland auk þess sem brýnt er að fyrir hendi sé langtímaendurnýjunaráætlun.

     2.      Hafa mögulegar fjármögnunarleiðir við kaup á þyrlum verið skoðaðar?
    Árið 2020 stóð til að ráðast í útboð vegna kaupa á þremur nýjum björgunarþyrlum fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Heildarkostnaður verkefnisins var áætlaður um 14,2 milljarðar króna. Vegna kórónuveirufaraldurs hætti þáverandi ríkisstjórn við útboðið.

     3.      Kæmi til greina að kaup á þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna yrðu hluti af þeim 1,5% af landsframleiðslu sem stendur til að setja í uppbyggingu innviða vegna öryggis- og varnarmála?
    Framangreint fellur undir málefnasvið utanríkisráðuneytis.
    Við frekari uppbyggingu og fjárfestingu í innviðum vegna öryggis- og varnarmála telur dómsmálaráðherra mikilvægt að litið verði til þess að efla styrk á sviði almannavarna og landhelgisgæslu sem og lögreglu.

     4.      Hefur kostnaðargreining farið fram þar sem borinn er saman rekstrar- og viðhaldskostnaður annars vegar á þyrlum í eigu Landhelgisgæslunnar og hins vegar við áframhaldandi leigu? Ef svo er, hver er niðurstaðan?
    Daglegur kostnaður við rekstur og viðhald er óháður því hvort um eignar- eða leiguþyrlur er að ræða.
    Í leigusamningum sem þessum tíðkast að leigutaki beri ábyrgð á öllum rekstri og viðhaldi og ber honum að skila vélunum í sambærilegu ástandi að leigutíma loknum. Munurinn liggur því svo til einvörðungu í mismun á kostnaði við að leigja eða kaupa sem helgast að mestu af mismunandi fjármögnunarleiðum.

     5.      Hvaða viðmið gilda um búnað þyrlna Landhelgisgæslunnar í samanburði við búnað þyrlna sambærilegra stofnana í öðrum NATO-ríkjum? Er búnaðurinn sambærilegur?
    Hlutverk og starfssvæði helstu systurstofnana Landhelgisgæslunnar eru á sumum sviðum sambærileg en á öðrum ólík, svo sem að því er varðar umfang hafsvæðis og stuðning frá öðrum innviðum sem er mjög takmarkaður á hafsvæðinu við Ísland.
    Landhelgisgæslan ber ábyrgð á leitar- og björgunarsvæði sem er um 1,9 milljónir ferkílómetra. Þyrlusveit stofnunarinnar starfar við krefjandi aðstæður innan íslenskrar efnahagslögsögu sem er rúmlega 750 þúsund ferkílómetrar. Til þess að annast leit, björgun og eftirlit innan slíks svæðis þarf afar öflug tæki. Sá tækjakostur sem Landhelgisgæslan hefur nú yfir að ráða hefur reynst afar vel við þau flóknu verkefni sem þyrlusveitin sinnir bæði á sjó og landi.
    Þyrlur Landhelgisgæslunnar þurfa að geta flogið út að ystu mörkum íslenskrar efnahagslögsögu í slæmu veðri, bjargað þar heilli skipsáhöfn og flogið aftur til lands.
    Þyrlukostur Landhelgisgæslunnar er að mörgu leyti sambærilegur björgunarþyrlum hjá systurstofnunum innan NATO sem starfa á sambærilegum hafsvæðum og er horft til systurstofnana Landhelgisgæslunnar þegar sett eru viðmið um getu björgunarþyrlna. Margar af systurstofnunum Landhelgisgæslunnar eru hluti af herjum viðkomandi ríkja og að því leyti getur verið um önnur viðmið að ræða. Dæmi um systurstofnanir sem horft hefur verið til er norski flugherinn (330 Squadron) og þá er þyrlurekstur finnsku strandgæslunnar svipaður og þyrlurekstur Landhelgisgæslu Íslands.

     6.      Hvað hefur Landhelgisgæslan haft margar þyrlur til umráða á hverju ári frá árinu 2006 þegar bandaríski herinn fór frá Keflavík?
    Þegar varnarliðið hvarf af landi brott árið 2006 var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar efld með því að fjölga þyrluáhöfnum og björgunarþyrlum. Að jafnaði hefur Landhelgisgæslan haft þrjár þyrlur til umráða á undanförnum 19 árum.

     7.      Metur ráðherra núverandi ástand þyrlukosts Landhelgisgæslunnar fullnægjandi með tilliti til fjölda þyrlna, staðsetningar þeirra og verkefna sem Landhelgisgæslunni er ætlað að sinna?
    Núverandi mat byggist á greiningu frá árinu 2016. Í matinu var gert ráð fyrir því að Landhelgisgæslan þyrfti að hafa fjórar þyrlur til að geta sinnt leit og björgun á sjó allt árið. Margt hefur breyst á þeim tæpa áratug sem liðinn er frá síðustu greiningu, til að mynda hefur verkefnum fjölgað og ásókn í þjónustu þyrlusveitarinnar aukist.
    Til að bregðast við aukinni ásókn í þjónustu þyrlusveitarinnar hefur ráðherra m.a. gengið frá samningi um áframhaldandi leigu á þremur þyrlum til næstu sjö ára, líkt og vikið var að í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Stefnt er að áframhaldandi stefnumótunarvinnu með Landhelgisgæslunni.