Ferill 387. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 923  —  387. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um rannsóknar- og gæsluvarðhaldsúrskurði.


     1.      Hversu margir rannsóknarúrskurðir voru kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjaness annars vegar og Héraðsdómi Reykjavíkur hins vegar árin 2015–2024, sundurliðað eftir árum?
    Árið 2015 var kveðinn upp samtals 981 rannsóknarúrskurður, þar af 540 í Héraðsdómi Reykjaness og 441 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2016 voru kveðnir upp samtals 1.038 úrskurðir, þar af 578 í Héraðsdómi Reykjaness og 460 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2017 voru kveðnir upp samtals 1.179 úrskurðir, þar af 648 í Héraðsdómi Reykjaness og 531 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2018 voru kveðnir upp samtals 1.298 úrskurðir, þar af 654 í Héraðsdómi Reykjaness og 644 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2019 voru kveðnir upp samtals 1.485 úrskurðir, þar af 554 í Héraðsdómi Reykjaness og 931 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2020 voru kveðnir upp samtals 1.310 úrskurðir, þar af 458 í Héraðsdómi Reykjaness og 852 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2021 voru kveðnir upp samtals 1.272 úrskurðir, þar af 440 í Héraðsdómi Reykjaness og 832 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2022 voru kveðnir upp samtals 1.552 úrskurðir, þar af 611 í Héraðsdómi Reykjaness og 941 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2023 voru kveðnir upp samtals 1.846 úrskurðir, þar af 850 í Héraðsdómi Reykjaness og 996 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2024 voru kveðnir upp samtals 2.064 úrskurðir, þar af 854 í Héraðsdómi Reykjaness og 1210 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Samanlagður fjöldi uppkveðinna úrskurða fyrir tímabilið 2015–2024 er 14.025, þar af 6.187 í Héraðsdómi Reykjaness og 7.838 í Héraðsdómi Reykjavíkur.

     2.      Hversu margir gæsluvarðhaldsúrskurðir voru kveðnir upp í sömu dómstólum á sama tímabili, einnig sundurliðað eftir árum?
    Árið 2015 voru kveðnir upp samtals 303 gæsluvarðhaldsúrskurðir, þar af 204 í Héraðsdómi Reykjaness og 99 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2016 voru kveðnir upp samtals 308 úrskurðir, þar af 165 í Héraðsdómi Reykjaness og 143 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2017 voru kveðnir upp samtals 425 úrskurðir, þar af 232 í Héraðsdómi Reykjaness og 193 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2018 voru kveðnir upp samtals 439 úrskurðir, þar af 227 í Héraðsdómi Reykjaness og 212 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2019 voru kveðnir upp samtals 439 úrskurðir, þar af 259 í Héraðsdómi Reykjaness og 180 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá voru einnig kveðnir upp samtals 63 úrskurðir í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna framlengingar á gæsluvarðhaldi.
    Árið 2020 voru kveðnir upp samtals 200 úrskurðir, þar af 122 í Héraðsdómi Reykjaness og 78 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá voru einnig kveðnir upp samtals 169 úrskurðir um framlengingu gæsluvarðhalds, þar af 27 í Héraðsdómi Reykjaness og 142 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2021 var kveðinn upp samtals 151 úrskurður, þar af 60 í Héraðsdómi Reykjaness og 90 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá voru einnig kveðnir upp samtals 177 úrskurðir um framlengingu gæsluvarðhalds, þar af 61 í Héraðsdómi Reykjaness og 116 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2022 voru kveðnir upp samtals 206 úrskurðir, þar af 106 í Héraðsdómi Reykjaness og 100 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá voru einnig kveðnir upp samtals 362 úrskurðir um framlengingu gæsluvarðhalds, þar af 183 í Héraðsdómi Reykjaness og 179 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2023 voru kveðnir upp samtals 257 úrskurðir, þar af 151 í Héraðsdómi Reykjaness og 106 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá voru einnig kveðnir upp samtals 469 úrskurðir um framlengingu gæsluvarðhalds, þar af 264 í Héraðsdómi Reykjaness og 205 í Héraðsdómi Reykjavíkur.
    Árið 2024 voru kveðnir upp samtals 308 úrskurðir, þar af 161 í Héraðsdómi Reykjaness og 147 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá voru einnig kveðinn upp samtals 501 úrskurður um framlengingu gæsluvarðhalds, þar af 291 í Héraðsdómi Reykjaness og 210 í Héraðsdómi Reykjavíkur.

     3.      Hversu margir þessara úrskurða tengdust eftirfarandi brotaflokkum, sundurliðað eftir dómstólum og árum:
                  a.      fíkniefnabrot,
                  b.      smygl,
                  c.      mansal,
                  d.      kynferðisbrot,
                  e.      ofbeldisbrot,
                  f.      fjármunabrot,
                  g.      önnur brot.

    Upplýsingar um brotategundir eru ekki skráðar sérstaklega hjá dómstólunum í rannsóknar- og gæsluvarðhaldsmálum. Því er ekki hægt að veita tölfræðilegar upplýsingar um þetta atriði.

     4.      Hversu margir úrskurðir voru kveðnir upp yfir einstaklingum, sundurliðað eftir kyni, tegund úrskurðar og dómstólum, á árunum 2015–2024?
    Málaskrá héraðsdómstóla byggir á skráningu mála en ekki skráningu einstaklinga/lögaðila. Í vissum tegundum rannsóknarmála kunna margir aðilar að vera til varnar. Í ljósi framangreinds eru tölfræðiupplýsingar um kyn varnaraðila ekki aðgengilegar í vissum tegundum mála.
    Við vinnslu 4. tölul. fyrirspurnarinnar reyndist því ekki unnt að taka saman upplýsingar um kyn einstaklinga. Þar af leiðandi er einungis gerð grein fyrir fjölda einstaklinga sem úrskurðað hefur verið um á tímabilinu 2015–2024, óháð kyni. Þá er vakin athygli á því að tegund þeirra úrskurða sem gerð er grein fyrir í neðangreindum töflum byggir á málaskrá héraðsdómstóla.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.







     5.      Hversu margir úrskurðir voru kveðnir upp yfir einstaklingum, sundurliðað eftir ríkisfangi, tegund úrskurðar og dómstólum, á árunum 2015–2024?
    Upplýsingar um ríkisfang einstaklinga eru ekki skráðar sérstaklega í málaskrá dómstóla. Almennar upplýsingar um tölfræði afbrota eru hins vegar gefnar út, m.a. af embætti ríkissaksóknara og einstaka lögregluembættum.

     6.      Hefur verið greint hvort þessi þróun endurspegli aukið álag á Héraðsdóm Reykjaness og Héraðsdóm Reykjavíkur? Ef svo er, hvernig hefur ráðherra brugðist við eða hyggst bregðast við auknu álagi?

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Samkvæmt upplýsingum frá dómstólasýslunni hefur aukinn fjöldi rannsóknar- og gæsluvarðhaldsúrskurða leitt til aukins álags á þá dómara sem sinna vöktum í Héraðsdómi Reykjavíkur og Héraðsdómi Reykjaness. Ráðuneytið hefur verið í samtali við dómstólasýsluna um leiðir til að auka sveigjanleika til að færa mál eða málategundir á milli dómstóla.