Ferill 19. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 924 — 19. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Rögnu Sigurðardóttur um þyrluflug á vegum einkaaðila og einkaþotur á Reykjavíkurflugvelli.
Mælieining fyrir hljóð er desiBel, skrifað dB. Til þess að taka tillit til breytilegrar næmni mannseyrans fyrir mismunandi tíðni hljóðs er við mælingar beitt ákveðinni síu og er þá gjarnan bætt (A) við mælieininguna til að árétta það, dB(A). Til þess að taka tillit til þess að sami hávaði truflar mismikið eftir því hvenær sólarhringsins hann á sér stað eru gildin hækkuð ef hávaðinn er að kvöldi eða nóttu, þ.e. refsiákvæði er beitt. Þannig er skilgreindur mælikvarðinn L den (e. Level Day-Evening-Night).
Öll loftför sem hafa tegundarvottorð útgefið af Flugöryggisstofnun Evrópu þurfa að vera með hljóðstigsvottorð (e. Type-Certificate Data Sheet for Noise). Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) samþykkir og birtir hljóðstigsvottorð fyrir allar samþykktar gerðir loftfara. Hljóðstigsvottorðin byggjast á mælingum. Nálgast má vottorðin á heimasíðu EASA.
Í 4. gr. reglugerðar nr. 724/2008 um hávaða eru sett mörk um hávaða frá flugumferð (tafla II í viðauka: L den max 65 dB(A) við húsvegg íbúðarhúsnæðis, dvalarrýma og skóla á svæðum í nágrenni þegar starfandi flugvalla). Þar er einnig ákvæði um að:
– Við skipulagsgerð skal miðað við að hljóðstig verði undir mörkum.
– Við rekstur flugvalla skal miða við að hljóðstig verði undir mörkum.
– Heilbrigðisnefndir skulu hafa eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar.
Reglugerð nr. 666/2015 um rekstrartakmarkanir vegna hljóðmengunar á flugvöllum, sem innleiðir reglugerð ESB nr. 598/2014, á ekki við um Reykjavíkurflugvöll þar sem meðalfjöldi flughreyfinga er innan viðmiðunarmarka. Í reglugerð ESB eru engu að síður fjölmörg atriði sem gagnlegt er að líta til. Í 5. gr. reglugerðarinnar er t.d. kveðið á um að aðildarríki skuli tryggja að hávaði á einstökum flugvöllum sé metinn í samræmi við tilskipun 2002/49/EB um mat og stjórn á hávaða í umhverfinu. Matið byggist m.a. á að loftför eru flokkuð eftir hljóðstigsvottorðum, flughreyfingum og flugferlum þeirra. Matið byggist með öðrum orðum ekki á mælingum í nágrenni flugvallarins. Mælingar geta hins vegar nýst til samanburðar og staðfestingar á hljóðstigsmati.
Samkvæmt starfsleyfisskilyrðum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur (útg. 2016) ber Reykjavíkurflugvelli að skila inn skýrslum um hávaðamengun frá flugvellinum. Síðustu hljóðskýrslur hafa verið gerðar á vegum Mannvits (2013) og EFLU verkfræðistofu (2021) og er skýrsla EFLU sú fyrsta sem tekur þyrlur sérstaklega til greina.
Á þessu ári, 2025, stefnir Isavia að því að setja upp tvo færanlega hljóðmæla í nágrenni flugvallarins og finna hentugar staðsetningar fyrir fjóra mæla sem stefnt er að setja upp 2026. Þá verður hægt að kortleggja betur áhrif einstakra loftfara og flugferla þeirra. Hér er um að ræða sams konar kerfi og hefur verið á Keflavíkurflugvelli en þar er hægt er að gera athugasemdir um ónæði vegna einstakra fluga á sérstökum hljóðmælingavef. 1
1. Hver hefur fjöldi þyrlufluga á einkaþyrlum og í útsýnisflugi frá Reykjavíkurflugvelli verið á ári hverju sl. tíu ár?
Engin aðgreining er gerð á milli flugs einkaþyrlna og þyrlna í útsýnisflugi. Hlutfall þyrlna annarra en þeirra sem fljúga fyrir Landhelgisgæsluna (LHG) hefur aukist undanfarin ár. Mikill vöxtur hefur verið í þyrluflugi og skýringin á því er að mestu tengd eldsumbrotum á Reykjanesskaga undanfarin ár. Í töflu 1 í fylgiskjali má sjá yfirlit yfir hreyfingar á Reykjavíkurflugvelli.
2. Hvenær hefst þyrluflug á vegum einkaaðila að morgni frá Reykjavíkurflugvelli og hvenær lýkur því að kvöldi?
Opnunartími Reykjavíkurflugvallar er 07:00–23:00 virka daga og 08:00–23:00 um helgar. Ekkert flug er leyft nema í neyðartilvikum utan þess tíma, þ.e. sjúkra-/neyðarflug auk líffæraflutninga. Einkaþyrlur fljúga þó eingöngu í sjónflugsskilyrðum.
3. Hvaða hljóðmælingar hafa verið gerðar á þyrluflugi á vegum einkaaðila frá Reykjavíkurflugvelli?
Hljóðstigskort flugvalla byggjast, eins og fram kemur í inngangi, á mati, þ.e. á hljóðstigsvottorðum loftfara, flughreyfingum þeirra og flugferlum. Áhrif af þyrluflugi á vegum einkaaðila eru þar á meðal en ekki sérgreind. Til að greina áhrif þyrluflugs á vegum einkaaðila þyrfti að gera sérstakt mat á því. Í skýrslu Mannvits um hljóðstig 2013 er lagt mat á þátt þyrluhreyfinga á heildarhljóðstig flugvallarins og er hann þar metinn það lítill að ekki sé þörf á að taka þyrlurnar með í reikninginn (hækkun heildarhljóðstigs innan við 1 dB).
Samkvæmt niðurstöðum hljóðskýrslna Mannvits og EFLU lækkaði hljóðstig um 0,5–3dB frá 2013–2021 þrátt fyrir að þyrluumferð hafi verið bætt inn í hljóðmati EFLU. Niðurstöður hljóðmats EFLU má sjá á mynd 1. Myndin sýnir hljóðstig í dB samkvæmt L den-mælikvarða. Blár litur merkir svæði með mesta hávaðann (75 dB og hærra). Rauður stendur fyrir 70–75 dB, appelsínugulur 65–70 dB, gulur 60–65 dB, ljósgrænn 55–60 dB og dökkgrænn svæði með minnsta hávaðann (50–55 dB).
Mynd 1 – hljóðstigskort úr greiningu EFLU (2021).
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Til samanburðar má sjá hljóðstigskort af umferðargötum í nágrenni flugvallarins á mynd 2. Litakóðar hafa sömu merkingu og á mynd 1.
Mynd 2 – Hávaðakort frá umferð á götum Reykjavíkurborgar. Heimild: Umhverfisstofnun.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4. Hvernig hefur verið brugðist við kröfu Kópavogsbæjar, Reykjavíkurborgar og íbúa þessara sveitarfélaga um að þyrluflugi á vegum einkaaðila verði fundinn annar staður?
Samtal hefur átt sér stað milli Isavia innanlandsflugvalla og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) um skoðun á möguleikum þess að útbúa aðstöðu fyrir þyrlur á jaðri höfuðborgarsvæðisins. Málið var rætt á vettvangi SSH með skipulagsfulltrúum sveitarfélaganna en ekki liggur fyrir niðurstaða í málinu.
5. Hver ber ábyrgð á því að finna þyrluflugi á vegum einkaaðila annan stað ef þess gerist þörf?
Strangt til tekið ber engum skylda til að finna þyrluflugi sem uppfyllir settar kröfur annan stað. Það er einkum á ábyrgð þeirra sem áhuga hafa á að þyrluflug fari úr Vatnsmýrinni að finna og bjóða rekstraraðilum upp á annan valkost. Reykjavíkurborg og ríkið hafa beitt sér í þessu máli án niðurstöðu.
6. Hvað hafa margar einkaþotur lent á Reykjavíkurflugvelli á ári hverju sl. tíu ár?
Í töflu 1 í fylgiskjali má sjá yfirlit yfir hreyfingar á Reykjavíkurflugvelli frá 2015.
7. Hvað greiða einkaþotur fyrir stæði á Reykjavíkurflugvelli á hverjum sólarhring?
Stæðisgjöld eru samkvæmt gjaldskrá Isavia innanlandsflugvalla hverju sinni sem finna má á heimasíðu félagsins. 2 Í töflu 2 í fylgiskjali má sjá dæmi um gjöld vegna lítillar þotu fyrir utan þjónustugjöld til flugafgreiðsluaðila.
8. Hvaða hljóðmælingar hafa verið gerðar á flugi einkaþotna við Reykjavíkurflugvöll?
Einkaþotur blandast inn í heildarútreikning hljóðstigskorta en eru ekki teknar sérstaklega fyrir. Um þær gildir það sama og þyrlurnar, sbr. svar við 3. tölul. fyrirspurnarinnar.
Hafa ber í huga að flugumferð, og þar af leiðandi ytri áhrif hennar á umhverfið, hefur minnkað mikið undanfarin 30 ár. Í grafi 1 í fylgiskjali má sjá hreyfingar á Reykjavíkurflugvelli á tímabilinu. Grafið sýnir að flughreyfingar á flugvellinum nú eru einungis um þriðjungur af þeirri umferð sem var við lok síðustu aldar.
9. Hvaða reglur gilda um einkaþotur á Reykjavíkurflugvelli, hvernig er þeim framfylgt og hver framfylgir þeim?
Reykjavíkurflugvöllur flokkast sem 3C flugvöllur með tilliti til alþjóðareglugerðar. Hámarksvænghaf loftfara sem mega fara um hann er 36 m. Reglur um notkun Reykjavíkurflugvallar eru birtar í Flugmálahandbók Íslands, AIP. Ekki gilda sérstakar reglur um einkaþotur. Reykjavíkurflugvöllur hefur stytt uppkeyrslutíma allra loftfara og stefnt er að því að setja upp rafmagnstengistöðvar sem taka við af díselvélum sem ættu að draga úr mengun á þessu ári, 2025. Í dag má eingöngu hafa frumhitagjafa loftfars, oftast díselvél (APU), í gangi í 20 mín.
Flugvellir, líkt og aðrir samgönguinnviðir í opinberri eigu, eru opnir þeim sem vilja nota þá. Rekstraraðilar flugvalla geta, samkvæmt alþjóðareglum, ekki neitað því að taka við loftförum sem óska eftir að lenda á honum sé hann opinn.
10. Standa lög eða reglugerðir um Reykjavíkurflugvöll í vegi fyrir því að einkaþotum sé vísað á Keflavíkurflugvöll til lendingar í stað Reykjavíkurflugvallar?
Eins og fyrr segir er Reykjavíkurflugvöllur opinn þeim loftförum í almenningsflugi sem vilja og geta notað hann á opnunartíma. Engum er því vísað frá Reykjavíkurflugvelli. Það eru því ekki lög eða reglugerðir sem valda því að einkaþotur velja að nota Reykjavíkurflugvöll fremur en Keflavíkurflugvöll. Fyrst og fremst eru það aðstæður á flugvöllunum sem valda því hvor þeirra verður fyrir valinu í hverju tilfelli fyrir sig.
Keflavíkurflugvöllur er flæðisstýrður flugvöllur sem þýðir að vegna álags á honum þurfa flugrekendur að sækja um og fá úthlutað fyrir fram afgreiðslutíma fyrir hverja hreyfingu þar. Keflavíkurflugvöllur er nálægt þolmörkum sínum á álagstímum, þ.e. hvað fjölda stæða varðar sem og fjölda hreyfinga á flugbrautakerfi. Umferð áætlunar og leiguflugs sem fær afgreiðslutíma með löngum fyrirvara og hervéla fer vaxandi og álagstíminn lengist. Sífellt erfiðara er því fyrir einkaflug sem gjarnan er skipulagt með styttri fyrirvara að fá hentugan afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli. Graf 2 í fylgiskjali sýnir samsetningu umferðar um Keflavíkurflugvöll 2010–2024.
Fylgiskjal.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
1 flighttracking.casper.aero/kef/
2 www.innanlandsflugvellir.is/media/1/gjaldskra-2025.pdf