Ferill 483. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 926 — 483. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Einari Jóhannesi Guðnasyni um Sundabraut.
1. Hver er staðan á undirbúningi Sundabrautar? Hvenær verður ákvörðun tekin um framtíð hennar?
Unnið hefur verið að undirbúningi Sundabrautar í samræmi við lög um samvinnuverkefni og hefur ráðherra skipað verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar sem skipuð er fulltrúum ráðuneytisins, Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þá er að störfum starfshópur um fjármögnun Sundabrautar sem skipaður er fulltrúum innviðaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og Vegagerðarinnar.
Umhverfismati framkvæmdarinnar er að ljúka og hefur umhverfismatsskýrslu verið skilað til Skipulagsstofnunar. Er hún í athugun þar og gert er ráð fyrir að hún verði kynnt opinberlega í september. Í framhaldinu þarf að gera nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar og er gert ráð fyrir að því geti lokið árið 2026.
2. Hefur verið tekin ákvörðun um hvort Sundabraut verði að braut eða göngum?
Í umhverfismatsskýrslu er gerð grein fyrir tveimur meginvalkostum við þverun Kleppsvíkur, annars vegar Sundagöngum og hins vegar Sundabrú. Ekki liggur fyrir endanleg ákvörðun um hvor valkosturinn verður fyrir valinu og mun það byggja á niðurstöðum umhverfismats ásamt raunhæfni viðskiptaáætlunar vegna verkefnisins enda er gert ráð fyrir að gjaldtaka standi undir kostnaði við framkvæmdir, viðhald og rekstur til allt að 30 ára.
3. Verður gjaldtaka við Sundabraut? Ef svo er, hve há verður gjaldtakan?
Í samræmi við lög um samvinnuverkefni er gert ráð fyrir að gjaldtaka verði á Sundabraut sem standi undir kostnaði við framkvæmdir ásamt viðhaldi og rekstri til allt að 30 ára. Unnið er að viðskiptaáætlun vegna verkefnisins sem leiðir í ljós hversu hátt veggjald þarf að vera til að standa undir kostnaði við fjármögnun, framkvæmdir, viðhald og rekstur til 30 ára.