Ferill 451. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 928 — 451. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Pétri Zimsen um samninga við félagasamtök.
1. Hvaða félagasamtök höfðu í gildi þjónustu-, rekstrar- eða rammasamning við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár og hver var fjárhæð greiðslna úr ríkissjóði til þessara félaga á grundvelli slíkra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi, eðli samnings og ári.
Um er að ræða samninga sem varða afmörkuð verkefni. Ráðuneytið hefur gert rekstrarsamning við Slysavarnafélagið Landsbjörg um björgunarskip, samning um kaup á björgunarskipum við Landsbjörg og þjónustusamning við Íslenska ættleiðingu. Fjárhæðir greiðslna á grundvelli þessara samninga eru eftirfarandi.
Tafla 1: Greiðslur á grundvelli samninga ráðuneytisins við Slysavarnafélagið Landsbjörg og Íslenska ættleiðingu.*
| Ár | Rekstrarsamningur við Landsbjörg | Kaup á björgunarskipum | Þjónustusamningur við Íslenska ættleiðingu |
| 2014 | 164,7 | - | - |
| 2015 | 163,9 | - | - |
| 2016 | 175,5 | - | - |
| 2017 | 175,5 | - | 34,0 |
| 2018 | 174,3 | - | 25,5 |
| 2019 | 186,3 | - | 34,0 |
| 2020 | 188,8 | - | 34,0 |
| 2021 | 193,6 | 150,0 | 34,0 |
| 2022 | 191,9 | 265,0 | 34,0 |
| 2023 | 196,8 | 150,0 | 31,5 |
| 2024 | 198,9 | 160,0 | 24,0 |
| Samtals | 2010,2 | 725,0 | 251,0 |
| *Athugið að fjárhæðir eru gefnar upp í milljónum króna (millj. kr.). | |||
Ríkislögreglustjóri hefur gert rekstrarsamning við Björgunarsveit Hafnarfjarðar um sporhunda, þjónustusamning við Ferðafélag Akureyrar um leigu vegna eldsumbrota í Holuhrauni, þjónustusamning við Félag sérsveitarmanna í Víkingasveitinni um þrif á bílum, þjónustusamning við Handknattleiksfélag Kópavogs vegna hóphjálparstöðvar á Reykjanesi í kjölfar jarðskjálfta og þjónustusamning við Slysavarnafélagið Landsbjörg um fjarskiptaráð og hjálparlið. Heildarfjárhæðir greiðslna á grundvelli þessara samninga voru 7.050.000 kr. til Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, 3.566.255 kr. til Ferðafélags Akureyrar, 17.336.750 kr. til Félags sérsveitarmanna í Víkingasveitinni, 2.180.850 kr. til Handknattleiksfélags Kópavogs og 1.183.799.591 kr. til Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Fjárhæðir eftir árum koma fram í töflu 2.
Tafla 2: Greiðslur á grundvelli samninga Ríkislögreglustjóra við félagasamtök.*
| Ár | Björgunarsveit Hafnarfjarðar | Ferðafélag Akureyrar | Félag sérsveitarmanna í Víkingasveitinni | Handknattleiksfélag Kópavogs | Slysavarnafélagið Landsbjörg |
| 2015 | - | 3.566.255 | - | - | 6.995.377 |
| 2016 | - | - | - | - | - |
| 2017 | - | - | 2.364.800 | - | - |
| 2018 | 50.000 | - | - | - | - |
| 2019 | - | - | 1.396.800 | - | - |
| 2020 | - | - | 2.808.150 | - | 8.359.987 |
| 2021 | - | - | 2.313.450 | - | 403.051.303 |
| 2022 | - | - | 3.084.600 | - | 97.095.515 |
| 2023 | - | - | 2.250.400 | 1.700.850 | 369.666.263 |
| 2024 | 7.000.000 | - | 3.118.550 | 480.000 | 298.631.146 |
| Samtals | 7.050.000 | 3.566.255 | 17.336.750 | 2.180.850 | 1.183.799.591 |
| *Athugið að fjárhæðir eru gefnar upp í krónum (kr.). | |||||
Útlendingastofnun hefur gert þjónustusamning við Rauða kross Íslands vegna talsmanna- og velferðarþjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Heildarfjárhæð greiðslna á grundvelli samningsins var tæpir tveir milljarðar króna (1.857.664.579 kr.). Fjárhæðir eftir árum koma fram í töflu 3.
Tafla 3: Greiðslur á grundvelli samnings Útlendingastofnunar við Rauða kross Íslands.*
| Ár | Rauði kross Íslands |
| 2015 | 32.077.500 |
| 2016 | 172.429.113 |
| 2017 | 93.087.768 |
| 2018 | 411.914.062 |
| 2019 | 366.939.109 |
| 2020 | 345.565.222 |
| 2021 | 362.127.670 |
| 2022 | 73.524.135 |
| Samtals |
1.857.664.579
|
| *Athugið að fjárhæðir eru gefnar upp í krónum (kr.). | |
2. Hverjar voru heildartekjur hvers félags sem um ræðir í 1. tölul. á sama tímabili og hvert var hlutfall samningsbundinna framlaga úr ríkissjóði af tekjum hvers þeirra á grundvelli umræddra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um heildartekjur hvers félags.
3. Í hvaða erlenda styrktarsjóði, sem félagasamtök á Íslandi geta sótt um styrki úr, á málefnasviði ráðherra greiðir íslenska ríkið og hver var fjárhæð framlags Íslands í hvern þessara sjóða sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
Ekki er greitt í erlenda styrktarsjóði á málefnasviði ráðherra.
4. Hversu háar fjárhæðir hafa íslensk félagasamtök á málefnasviði ráðherra samtals fengið úthlutað úr sjóðum sem íslenska ríkið greiddi í fyrrgreint tímabil? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
Ráðuneytið greiðir ekki í erlenda styrktarsjóði.
5. Hvert var hlutfall framlaga úr slíkum erlendum sjóðum af heildartekjum félagasamtaka sem hafa haft þjónustu-, rekstrar- eða rammasamninga við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
Á ekki við, sbr. svör við 2.–4. tölul. fyrirspurnarinnar.
6. Ef upplýsingar um heildartekjur liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu, hefur verið óskað eftir slíkum upplýsingum við gerð samninganna?
Nei.