Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 929  —  192. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um sóknargjöld.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefðu sóknargjöld átt að vera hefðu þau verið reiknuð á grundvelli 2. gr. laga um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987, frá gildistöku þeirra, sundurliðað eftir árum? Óskað er eftir samanburði við ákvörðuð sóknargjöld hvers árs og hve miklu munar í heildarfjárhæð innheimtra sóknargjalda fyrir hvert ár um sig.

    Samkvæmt lögum nr. 91/1987, um sóknargjöld o.fl., skal sóknargjald taka breytingum á milli ára sem samsvarar hækkun er kann að verða á meðaltekjuskattsstofni einstaklinga á öllu landinu milli næstliðinna tekjuára á undan gjaldári.
    Allt frá gjaldárinu 2009 hefur verið vikið frá þessu með bráðabirgðaákvæði í lögunum. Var það gert í kjölfar efnahagshrunsins en þá var farið í mikinn niðurskurð á fjárveitingum til ríkisaðila til að bæta afkomu ríkissjóðs.
    Tafla 1 hér á eftir sýnir sóknargjöld á ársgrunni á hvern einstakling eins og þau hefðu verið ef 2. gr. laganna hefði verið fylgt við ákvörðun þeirra.
    Tafla 2 hér á eftir sýnir heildarfjárhæð sóknargjalda og hver fjárhæðin hefði orðið ef 2. gr. laganna hefði verið fylgt við ákvörðun þeirra. Fjárhæðirnar innihalda ekki framlög til Jöfnunarsjóðs sókna innan þjóðkirkjunnar og kirkjumálagjald. Gjöldin tóku mið af greiddum sóknargjöldum til þjóðkirkjunnar og voru aflögð með lagabreytingu árið 2020.
    Fyrir nánari umfjöllun um forsögu þessa máls er vísað í svar fjármála- og efnahagsráðherra við sambærilegri fyrirspurn um sóknargjöld sem Birgitta Jónsdóttir lagði fyrir fjármála- og efnahagsráðherra á 143. löggjafarþingi og lesa má á þskj. 793 frá því löggjafarþingi.
    Í því svari er farið yfir umgjörð sóknargjalda og þróun hennar í lögum og framsetningu í fjárlögum. Svarið er ítarlegt og nær frá þeim tíma sem lögin tóku gildi fram til þess árs sem fyrirspurninni var svarað, snemma árs 2014. Frá þeim tíma hafa Jöfnunarsjóður sókna og kirkjumálasjóður verið lagðir niður auk þess sem framsetning í fjárlögum hefur breyst með gildistöku laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.











Tafla 1. Sóknargjöld á einstakling á ári (kr.).

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Tafla 2. Heildarfjárhæðir sóknargjalda eftir árum 2009–2024.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.