Ferill 453. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 933 — 453. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Jóni Pétri Zimsen um samninga við félagasamtök.
1. Hvaða félagasamtök höfðu í gildi þjónustu-, rekstrar- eða rammasamning við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár og hver var fjárhæð greiðslna úr ríkissjóði til þessara félaga á grundvelli slíkra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi, eðli samnings og ári.
Á sl.10 árum hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu haft í gildi þjónustusamning við félagasamtökin Landvernd um umhverfismenntaverkefnið Skólar á grænni grein (Grænfánaverkefnið). Samningurinn hefur verið endurnýjaður með reglubundnum hætti. Framlög ráðuneytisins samkvæmt samningnum koma fram í eftirfarandi töflu, fjárhæðir eru í m.kr.
Þjónustusamningur við Landvernd um Grænfánaverkefnið:
| 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
| 12,0 | 12,0 | 9,5 | 11,5 | 14,0 | 18,0 | 26,0 | 26,0 | 26,0 | 26,0 |
Í svari frá Náttúruverndarstofnun (áður Umhverfisstofnun) kom fram að tveir samningar við félagasamtök hafi verið í gildi á síðastliðnum 10 árum. Framlög stofnunarinnar koma fram í eftirfarandi töflum, fjárhæðir eru í m.kr.
Þjónustusamningur við Ferðafélag Fljótsdalshéraðs um landvörslu og viðhaldsverkefni á friðlýstum svæðum:
| 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 |
| 0,6 | 1,5 | 2,0 | 2,8 | 2,8 | 0,0 | 6,7 |
Þjónustusamningur við Skotveiðifélag Íslands um veiðikortanámskeið og -próf:
| 2023 | 2024 |
| 7,3 | 9,8 |
Í svörum frá Landi og skógi, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun, úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, Úrvinnslusjóði og Veðurstofu Íslands kom fram að engir þjónustu-, rekstrar- eða rammasamningar hefðu verið gerðir við félagasamtök sl. 10 ár. Svör frá Umhverfis- og orkustofnun bárust ekki.
2. Hverjar voru heildartekjur hvers félags sem um ræðir í 1. tölul. á sama tímabili og hvert var hlutfall samningsbundinna framlaga úr ríkissjóði af tekjum hvers þeirra á grundvelli umræddra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
Ráðuneytið hefur ekki í höndum viðeigandi upplýsingar til að unnt sé að svara þessum tölulið fyrirspurnarinnar er snýr að fyrrgreindum samningum.
3. Í hvaða erlenda styrktarsjóði, sem félagasamtök á Íslandi geta sótt um styrki úr, á málefnasviði ráðherra greiðir íslenska ríkið og hver var fjárhæð framlags Íslands í hvern þessara sjóða sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
4. Hversu háar fjárhæðir hafa íslensk félagasamtök á málefnasviði ráðherra samtals fengið úthlutað úr sjóðum sem íslenska ríkið greiddi í fyrrgreint tímabil? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
5. Hvert var hlutfall framlaga úr slíkum erlendum sjóðum af heildartekjum félagasamtaka sem hafa haft þjónustu-, rekstrar- eða rammasamninga við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
3.–5. tölul. fyrirspurnarinnar eiga ekki við um umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
6. Ef upplýsingar um heildartekjur liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu, hefur verið óskað eftir slíkum upplýsingum við gerð samninganna?
Sjá svar við 2. tölul.