Ferill 496. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 935  —  496. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um kolefnisgjöld skipa.


     1.      Hver hefur þróun kolefnisgjalda skipa verið hér á landi síðastliðin tíu ár?
    Taflan hér á eftir byggist á tölum um olíusölu til skipa frá Umhverfis- og orkustofnun og fjárhæðum kolefnisgjalds samkvæmt lögum nr. 129/2009, um umhverfis- og auðlindaskatta.

Þróun kolefnisgjalda á skip, kr.

2013 1.014.102.754
2014 955.869.352
2015 976.521.364
2016 937.700.464
2017 923.039.260
2018 1.496.117.852
2019 1.526.444.912
2020 1.768.770.844
2021 1.978.840.342
2022 1.937.922.910
2023 2.094.556.932
Samtals 15.609.886.986

     2.      Hver er hugmyndafræðin á bak við kolefnisgjöld skipa og hvaða áhrif telur ráðherra þau hafa á orkuskipti skipaflotans?
    Álagning kolefnisgjalds er liður í áætlun stjórnvalda um samræmingu í skattlagningu ökutækja og eldsneytis með það markmið að leiðarljósi að hvetja heimili og fyrirtæki til notkunar vistvænna ökutækja, orkusparnaðar, minni losunar gróðurhúsalofttegunda og aukinnar notkunar á innlendum orkugjöfum. Skattlagning á kolefni er almennt talin áhrifarík leið til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda þar sem greitt er fyrir þann ytri kostnað sem losun gróðurhúsalofttegunda leggur á samfélagið. Kolefnisgjald er lagt á eldsneyti sem inniheldur kolefni af jarðefnauppruna og notað er í fljótandi eða loftkenndu formi. Með eldsneyti sem inniheldur kolefni af jarðefnauppruna á fljótandi eða loftkenndu formi er átt við gas- og dísilolíu, (þ.m.t. skipagasolíu), bensín, brennsluolíu og jarðolíugas og annað loftkennt vetniskolefni. Gjaldtakan tekur heildstætt á losun kolefnis frá jarðefnaeldsneyti, bæði frá samgöngum og öðrum uppsprettum. Gjaldskyldir aðilar eru annars vegar innflytjendur eldsneytis, hvort sem er til endursölu eða eigin nota, og hins vegar allir þeir sem framleiða eldsneyti á Íslandi, hvort sem er til endursölu eða eigin nota. Gjaldið hefur því áhrif á notendur eldsneytis hér á landi, þar á meðal rekstraraðila skipa.
    Hugmyndafræðin að baki innheimtu kolefnisgjalds af gjaldskyldum aðilum vegna innflutnings eða framleiðslu eldsneytis sem notað er á skip hér á landi er í samræmi við almennt markmið kolefnisgjalds, þ.e. að hvetja heimili og fyrirtæki, þ.m.t. rekstraraðila skipa, til að draga úr losun með orkuskiptum eða bættri orkunýtingu í samræmi við stefnu Íslands í loftslagsmálum. Tilgangur álagningarinnar er að hvetja notendur skipa, sem og notendur annarra tækja, sem nýta jarðefnaeldsneyti til að draga úr eldsneytisnotkun og koltvísýringslosun. Það er gert með því að þess sjáist staður í skattlagningunni og eldsneytisverði að losun koltvísýrings hefur samfélagslegan kostnað í för með sér með greiðslu fyrir þann ytri kostnað sem losun gróðurhúsalofttegunda leggur á samfélagið.
    Á síðustu árum hefur eldsneytisnotkun í íslenskum sjávarútvegi dregist saman. Ástæðurnar eru m.a. þær að skipaflotinn hefur verið endurnýjaður í miklum mæli með nýjum sparneytnari skipum sem leitt hefur til samdráttar í losun, aukinna afkasta og bættrar orkunýtni í skipaflotanum. Auk þess hefur breyting á tækni m.a. leitt til markvissari eftirfylgni með orkunotkun skipaflotans. Í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er fjallað um markmið stjórnvalda vegna losunar frá skipum og höfnum. Þar kemur fram að aukin orkunýtni hafi nú þegar leitt af sér mikinn loftslagsávinning. Þá séu markaðslausnir til staðar fyrir smærri báta, t.d. rafknúna báta sem geta hlotið styrk úr Orkusjóði. Hins vegar sé tækniþróun hreinorkuskipa og viðeigandi aflgjafa í fiskveiði enn óþroskuð og því nauðsynlegt að nýta íblöndun líf- og/eða rafeldsneytis í jarðefnaeldsneyti til að ná fram samdrætti í losun til skemmri tíma. Í aðgerðaáætluninni er m.a. greint frá þeim aðgerðum stjórnvalda að stutt verði við orkuskipti í haftengdri starfsemi, hvort heldur sem er í gegnum Orkusjóð eða með stuðningi við umsóknir í alþjóðlega sjóði fyrir sjálfbærar lausnir. Jafnframt er gengið út frá að gerð verði þrepaskipt krafa á söluaðila eldsneytis um 10% lágmarkshlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa sem seldir eru til fiskiskipa og í innanlandssiglingar. Kolefnisgjald hvetur til þróunar, nýsköpunar og fjárfestinga í umhverfisvænum orkugjöfum og útfösunar jarðefnaeldsneytis, þ.m.t. í sjávarútvegi, og styður þannig við orkuskipti í skipaflotanum. Kolefnisgjald er einnig hvati til að bæta landtengingar og draga þannig úr eldsneytisnotkun skipa. Fyrir liggur að þróun tiltekins hluta skipaflotans, svo sem fiskiskipa, er komin skemmra á veg en annarra skipa. Það skiptir því höfuðmáli að áfram verði stutt með markvissum hætti við orkuskipti í sjávarútvegi líkt og stjórnvöld hafa gert og áforma að halda áfram að gera á næstu árum, svo sem með stuðningi úr Orkusjóði við hönnun umhverfisvænna lausna á skipum til nýtingar á endurnýjanlegum orkugjöfum.

     3.      Hefur verið kannað, í samhengi við samkeppnishæfni sjávarútvegsins, hver staða kolefnisgjalda er í Noregi, Danmörku, Færeyjum, Grænlandi, Kanada og Bretlandi?
    Skattlagning með kolefnisgjaldi var tekin upp á Norðurlöndum á árunum milli 1990 og 2010 en allur samanburður einstakra flokka kolefnisgjalds á milli landa verður að teljast fremur erfiður þar sem mismunandi aðferðir við skattlagningu eru notaðar. Á Íslandi eru fjórar tegundir eldsneytis skattlagðar, en í sumum löndum er tegundum skipt í fleiri flokka. Að auki skattleggja aðrar þjóðir gas, kol og flugeldsneytisolíu upp að ákveðnu marki sem ekki hefur verið gert á Íslandi frá árinu 2012. Þá getur útreikningur sem miðaður er við gengi gjaldmiðils skekkt samanburðartölur og því er vandmeðfarið að bera saman fjárhæðir milli landa. Einnig er veittur stuðningur eða undanþágur fyrir umhverfisvæna orkugjafa. Uppbygging slíkra kerfa og samsetning skattlagningarinnar getur haft í för með sér að álagning kolefnisgjalds sem slíks segi ekki alla söguna við samanburð milli landa.
    Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hefur um árabil safnað tölfræði og þróað aðferðafræði til að byggja upp heildstæðasta gagnagrunn sem til er um virka skattlagningu á kolefni af ólíkum toga. Þar er tekið tillit til afslátta, undanþága og fleiri þátta til að öðlast betri samanburð. Í skýrslu OECD um þessar upplýsingar, Effective Carbon Rates 2023, er m.a. að finna gögn um virkt kolefnisgjald í evrum á hvert tonn af CO2-losun hjá aðildarríkjunum, G20-löndum og 26 öðrum ríkjum út frá meðaltali vegna ársins 2021. Í kostnaðarútreikningum í skýrslunni er notað opinbert gengi OECD. Á þann mælikvarða er Svíþjóð í fjórða sæti, Danmörk í fimmta sæti, Noregur í sjöunda sæti, Finnland í áttunda sæti, Bretland í níunda sæti, Ísland í þrettánda sæti og Kanada í þrítugasta og fyrsta sæti. Í skýrslu OECD er ekki að finna gögn um Færeyjar og Grænland. 1
    Í þessu sambandi þarf einnig að hafa í huga að kolefnisgjald hefur hækkað um tæp 50% að raungildi hér á landi frá árinu 2021.
    Álagning kolefnisgjalds í samhengi við samkeppnishæfni sjávarútvegsins á Íslandi og Noregi hefur verið könnuð. Kolefnisgjald á hvern lítra skipagasolíu í Noregi er 3,79 norskar krónur, 2 þ.e. 46,14 kr. 3 Kolefnisgjald á skipagasolíu hér á landi er nú 21,40 kr. Kolefnisgjald á skipagasolíu í Noregi er því í dag um 116% hærra en hér á landi. Þó ber að hafa í huga að sérstakar reglur gilda um endurgreiðslu kolefnisgjalds í Noregi til rekstraraðila fiskiskipa þar í landi sem leiðir til lækkunar á greiddu kolefnisgjaldi. 4 Samkeppnishæfni sjávarútvegsins, út frá greiðslu kolefnisgjalds, hefur að öðru leyti ekki verið skoðuð sérstaklega.

1     Skýrsla OECD um „Effective Carbon Rates 2023, Pricing Greenhouse Gas Emissions Through Taxes and Emissions Trading“, Annex Figure 2.A.2. Average Effective (Marginal & Average) Carbon Rates by country.
2     www.skatteetaten.no/en/business-and-organisation/vat-and-duties/excise-duties/about-the-excise-duties/min eral-product/?utm_source=chatgpt.com (á vefsíðu norskra skattyfirvalda, ,Skateetaten.no).
3     Seðlabanki Íslands, miðgengi norsku krónunnar þann 1. september 2025, 12,174.
4     lovdata.no/dokument/SF/forskrift/2020-12-17-2950 – Lovdata, norskur gagnagrunnur laga og reglugerða, Forskrift om midlertidig tilskudd som kompensasjon for CO2-avgift på drivstoff for fiske og fangst i nære farvann.