Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 936  —  359. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Pawel Bartoszek um ráðstafanir vegna alvarlegs flugatviks.


     1.      Hefur Isavia sett verklagsreglur um notkun miðla í vinnurýmum flugleiðsögu í kjölfar alvarlegs flugatviks 25. febrúar 2024 þegar við lá að tvær flugvélar rækjust saman í nágrenni Reykjavíkurflugvallar meðan flugumferðarstjórar voru að fylgjast með knattspyrnuleik?
    Isavia ANS gaf út verklagsreglu 14. janúar 2025 sem kveður á um ábyrga notkun miðla í vinnurýmum flugleiðsögu. Verklagið, sem er hluti af rekstrarhandbók Isavia ANS, var samið í samráði við starfsmenn, trúnaðarmenn og öryggisnefnd fyrirtækisins með hliðsjón af atvikinu 25. febrúar 2024. Samkvæmt verklaginu er miðill skilgreindur sem raftæki þar sem efni sem ætlað er til afþreyingar er miðlað. Notkun slíkra miðla er óheimil í vinnustöð flugumferðarstjóra nema vaktstjórnandi veiti sérstaka undanþágu til notkunar. Þá er þátttaka í fundum úr vinnustöð óheimil samkvæmt verklaginu.

     2.      Telur ráðherra, í ljósi þess að boðað var í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa að reglur yrðu settar um notkun á sjónvarpi, útvarpi, netmiðlum, leikjatölvum, símum og tölvum, að sjónvarpsáhorf flugumferðarstjóra fyrir umrætt atvik hafi verið í samræmi við þágildandi reglur?
    Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar kemur fram að engar skriflegar reglur hafi verið til hjá Isavia ANS um notkun miðla í vinnurýmum fyrir flugleiðsöguþjónustu. Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar hefur slíkt verklag verið sett og er nú hluti af rekstrarhandbók fyrirtækisins.
    Samkvæmt lögum um loftferðir, nr. 80/2022, fer Samgöngustofa með eftirlit með fyrirtækjum sem hafa starfsleyfi til flugleiðsöguþjónustu.
    Í svari frá Samgöngustofu, sem aflað var í tengslum við svar þetta, kemur fram að stofnunin telji að það ástand sem var til staðar í flugturninum þegar umrætt atvik átti sér stað hafi ekki verið í samræmi við þágildandi reglur. Bendir stofnunin á að þrátt fyrir að ekki hafi verið til skriflegt verklag um notkun miðla hjá Isavia ANS á þessum tíma hafi verið skjalfest í handbók Isavia ANS (MANOPS) mikilvægi þess að tryggja að starfsfólk flugumferðarþjónustudeilda yrði ekki fyrir utanaðkomandi truflun við störf sín, t.d. í verklagi um gestakomur á vinnustöðvar flugumferðarstjóra. Að auki hafi verið til staðar margþætt annars konar verklag til að tryggja verkefni flugumferðarstjóra við að veita skilvirka og örugga flugumferðarþjónustu úr vinnustöð. Þá bendir Samgöngustofa á að þjálfun flugumferðarstjóra miði að því að tryggja vitund hans um mikilvægi þess að athygli hans sé á þeirri flugumferð sem tilheyri vinnustöð hans á hverjum tíma. Þjálfun miði enn fremur að því að kenna hverjum flugumferðarstjóra að þekkja eigin takmörk hvað varðar umfang umferðar sem hver og einn geti sinnt á hverjum tíma og þol hvers og eins fyrir utanaðkomandi truflun, t.d. frá nálægum vinnustöðvum.
    Sem viðbrögð við umræddu atviki nefnir Samgöngustofa í svari sínu að Isavia ANS hafi uppfyllt skyldu samkvæmt verklagi um að upplýsa Samgöngustofu um atvikið innan 72 klukkustunda, um að tilkynna um fyrirhugaðar úrbætur vegna atviks innan 30 daga, um skil á skýrslu um innri rannsókn á atvikinu sem og um að upplýsa um aðgerðir sem gripið hafði verið til innan 90 daga. Þá kemur fram að Samgöngustofa hafi metið sem svo að upplýsingar og tillögur Isavia ANS að úrbótum vegna atviksins hafi verið ásættanlegar sem og innleiðing á breyttum reglum vegna þess. Umrætt atvik hafi einnig verið rætt á reglulegum samráðsfundum Samgöngustofu og Isavia ANS sem haldnir eru til að vinna að stöðugum úrbótum.
    Að því er varðar eftirlit viðhefur Samgöngustofa áframhaldandi eftirlit með virkni úrbóta hjá Isavia ANS og Isavia ohf. Nú síðast var það gert með úttekt á Isavia ANS 10. júní 2025 og Isavia ohf. 23. janúar 2025. Einnig var farið í ótilkynnta heimsókn í flugstjórnarmiðstöð Isavia ANS 5. júní 2025. Við það eftirlit kom ekkert fram sem benti til óábyrgrar notkunar miðla í vinnurýmum í flugleiðsögu hjá Isavia ANS.

     3.      Hvaða ráðstafana hyggst ráðherra grípa til vegna málsins?
    Innviðaráðherra mun áfram sinna eftirlits- og yfirstjórnarheimildum sínum gagnvart Samgöngustofu og eftir atvikum gagnvart Isavia ANS. Ráðherra telur ekki þörf á lagabreytingu til að bregðast við umræddu atviki þar sem skýrt er kveðið á um eftirlitsskyldur viðeigandi stjórnvalda í lögum um loftferðir, nr. 80/2022.
    Samkvæmt svörum Samgöngustofu, sem er eftirlitsstjórnvald með framkvæmd flugumferðarþjónustu hér á landi, hafa bæði Isavia ANS og Isavia ohf. þegar gripið til ásættanlegra viðbragða vegna atviksins að mati stofnunarinnar. Þá kemur skýrt fram í svörum Samgöngustofu að umræddu atviki, sem og öðrum mögulegum öryggisógnum við flugumferð, verði fylgt eftir með úttektum, samráðsfundum og rýni atvika með það að markmiði að þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til skili tilætluðum árangri.