Ferill 16. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 16  —  16. mál.
Leiðréttur texti.




Tillaga til þingsályktunar


um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.


Flm.: Njáll Trausti Friðbertsson, Bryndís Haraldsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Diljá Mist Einarsdóttir, Ólafur Adolfsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson, Ingibjörg Isaksen, Þórarinn Ingi Pétursson, Ingvar Þóroddsson, Eiríkur Björn Björgvinsson.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að Landhelgisgæslan komi upp fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum sínum á Akureyri í samstarfi við hagaðila á Akureyri.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var síðast lögð fram á 156. löggjafarþingi ( 41. mál) en varð ekki afgreidd.
    Með tillögunni er lagt til að ein af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands hafi starfsstöð á Akureyri allt árið um kring. Auk þess sem Akureyri er miðsvæðis á landinu er augljós tenging við sjúkraflugið í landinu sem er staðsett á Akureyri. Þar geta læknar á Akureyri mannað hluta þyrluáhafnar eins og nú er reyndin í tengslum við sjúkraflugið. Í þessu samhengi er rétt að benda á að í fjölmiðlum hefur komið fram að tveir af sex þyrluflugstjórum gæslunnar búa fyrir norðan. Talið er að árlegur rekstrarkostnaður þyrlu á Akureyri sé um 500 millj. kr. og að uppbygging flugskýlis á Akureyrarflugvelli kosti 200–300 millj. kr. Nú þegar eru til staðar flugvirkjar sem geta sinnt viðhaldi auk þess sem starfsmenn í heilbrigðisstofnunum, slökkviliði og fleiri geta nýst starfseminni.
    Hlutfall þyrluflugs hefur verið um 15% af heildarsjúkraflugi í landinu. Norlandair og Mýflug hafa sinnt um 85% af sjúkrafluginu með flugvélum sínum. Á mynd að aftan sést hvernig sjúkraflug dreifðist um landið árið 2015 og hvert þyrlur Gæslunnar sóttu sjúklinga. Á myndinni sést hversu slæma eða lélega þjónustu hægt er að veita á austurhluta landsins þegar sjúkraflugi með þyrlum er einungis sinnt frá Reykjavíkurflugvelli.
    Fjarlægðir eru miklar og veðuraðstæður með þeim hætti að til að sinna sjúkraflutningum á austurhluta landsins með sjúkraþyrlum, í þeim tilfellum þar sem erfitt er að koma sjúkraflugi við, yrði nauðsynlegt að staðsetja þyrlu á svæðinu. Það er ekki langt síðan sjöttu þyrluáhöfninni var bætt við hjá Landhelgisgæslunni sem þýðir að tvær áhafnir eru á vakt um tvo þriðju hluta ársins. Með því að bæta við sjöundu þyrluáhöfninni væru tvær áhafnir til reiðu 95% af árinu. Það er mikilvægt skref sem nauðsynlegt er að stíga til þess að efla björgunargetu þyrluflugsveitar Landhelgisgæslunnar.

Áhættudreifing.
    Það er ekki skynsamlegt að hafa öll eggin í sömu körfunni þegar kemur að eldsvoða, vatnstjónum og öðrum mögulegum skakkaföllum. Að hafa allar þyrlur fastar á sama veðurfarssvæði er óskynsamlegt. Að hafa þyrlur eingöngu staðsettar í Reykjavík dreifir illa þjónustu, sérstaklega er það afleitt fyrir Norðausturland og Austurland og hafsvæði þar út af eins og sjá má á mynd að aftan. Með þyrlu í Reykjavík og á Akureyri mætti ná til allra landshluta á þyrlu á innan við 90 mínútum á venjulegum degi og myndi björgunarviðbragð á norður- og austurmiðum styrkjast verulega.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Skýrslur, ályktanir og umræðan.
    Það sjónarmið að hafa þyrlu á Akureyri hefur einnig komið fram í ýmsum skýrslum. Vinnuhópur um skipulag sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan spítala á Norðurlandi benti árið 2009 á þann veikleika sem felst í því að allar björgunarþyrlur þjóðarinnar séu staðsettar í Reykjavík. Annar verkefnahópur um endurskipulagningu sjúkraflutninga taldi árið 2012 að stefna ætti að því að sjúkraflug með þyrlum og flugvélum yrði bæði á Akureyri og í Reykjavík.
    Þegar byggja átti upp þyrluflota Landhelgisgæslunnar við brottför varnarliðsins ályktuðu ýmis samtök og stofnanir um að skynsamlegt væri að hafa fleiri en eina starfsstöð á landinu fyrir björgunarþyrlur til að stytta björgunartíma. Landspítali í Reykjavík benti á að í ljósi mikilvægis jöfnunar á heilbrigðisþjónustu landsmanna skyldi þyrla vera staðsett á Akureyri. Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands tóku meðal annars undir það. Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar hvatti einnig til þess að tryggð yrði staðsetning björgunarþyrlu annars staðar en á suðvesturhorninu. Samtök útgerðarmanna vildu þyrlu á landsbyggðinni til að auka öryggi og margfalda þjónustugetu. Segja má að rökin að baki þessum ályktunum gildi enn í dag.
    Undanfarið hafa aðalvarðstjóri lögreglunnar á Akureyri og forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri tjáð sig um mikilvægi þess að þyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri eftir að þyrla var staðsett á Akureyri um verslunarmannahelgina. Það gæti jafnframt valdið jákvæðum ytri áhrifum, svo sem betri hreyfanleika sérsveitar og myndi styðja við sjúkralið og lögreglu á svæðinu.

Samstarf við vinaþjóðir á norðurslóðum.
    Á undanförnum árum hefur Atlantshafsbandalagið (NATO) lagt meiri áherslu á viðveru af hálfu bandalagsins í norðanverðu Norður-Atlantshafi til að efla styrk bandalagsins á norðurslóðum.
    Að mati flutningsmanna er eðlilegt að líta til þess að á næstu árum efli íslenska ríkið getu sína til að sinna leit og björgun á hafsvæðinu í kringum Ísland. Nú þegar mikilvægi norðurslóða er að aukast er rétt að líta til þess hvernig hægt væri að styrkja þessa starfsemi hér á landi og jafnvel í samstarfi við vinaþjóðir innan Atlantshafsbandalagsins. Hér er rétt að líta til þess að Danir hyggjast í þessu skyni verja 1,5 milljörðum danskra króna eða um 30 milljörðum íslenskra króna. Þar er m.a. horft til þess að endurnýja þau fjögur varðskip sem þeir hafa haldið úti á Norður-Atlantshafi.
    Í skýrslu forsætisráðherra um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum sem kom út árið 2022 kom fram að nauðsynlegt væri að leggja mat á viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar og gera ráðstafanir til þess að tryggja vöktun betur.
    Svæðið sem Landhelgisgæslan ber ábyrgð á spannar 1,9 milljónir ferkílómetra og er svæðið nítján sinnum stærra en Ísland.

Byggja á upp aukna björgunargetu.
    Flutningsmenn telja skynsamlegt að efla leitar- og björgunargetu á norðausturhluta landsins með því að staðsetja varanlega björgunarþyrlu á Akureyri, líkt og þekkist á höfuðborgarsvæðinu.
    Freyja með heimahöfn á Siglufirði var stórt skref í að efla björgunargetu Landhelgisgæslunnar og sérstaklega á hafsvæðunum norðan og austan við Ísland. Nú er rétt að líta til þess að staðsetja varanlega þyrlu á Akureyri og byggja upp öfluga starfsstöð á Norðurlandi.
    Þegar varnarliðið yfirgaf Ísland árið 2006 dró verulega úr björgunargetu hér á landi með þyrlum en á sínum tíma voru fimm þyrlur staðsettar á Keflavíkurflugvelli. Mikil vinna hefur verið lögð í að styrkja þetta viðbragð. Flutningsmenn telja skynsamlegt að efla björgunargetu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á Norður- og Austurlandi og á hafsvæðunum þar út af með því að staðsetja björgunarþyrlu varanlega á Akureyri í góðri samvinnu við vinaþjóðir okkar.
    Skynsamlegt væri og í anda opinberrar stefnumörkunar og byggðafestu að byggja upp leitar- og björgunargetu á norðurslóðum við Eyjafjörð. Þar ætti að staðsetja sjúkra- og björgunarþyrlu.