Ferill 45. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 45  —  45. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um leikskóla, nr. 90/2008 (innritun í leikskóla).

Flm.: Dagbjört Hákonardóttir, Arna Lára Jónsdóttir, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Víðir Reynisson.


1. gr.

    Við 1. mgr. 26. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sveitarstjórn er heimilt að haga innritun með tilliti til þess að systkini eða börn sem hafa sama lögheimili geti sótt sama leikskóla, sem og með hliðsjón af nálægð leikskóla við lögheimili barna.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp sama efnis hefur verið lagt fram áður í fjórgang, síðast á 156. löggjafarþingi (169. mál).

1. Almennt.
    Víða um land þekkist það fyrirkomulag að hliðrað er til við innritun á leikskóla í sveitarfélögum í því skyni að gera systkinum kleift að sækja sama leikskóla þegar þau yngri hafa náð leikskólaaldri. Yngri börnin njóta þá forgangs til leikskóladvalar við sama leikskóla og eldri systkini hafa vistun á. Ekki hefur ríkt sátt um hvort framkvæmd þessi teljist lögmæt og hefur því verið haldið fram að reglan um systkinaforgang gangi í berhögg við jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins, enda gengju yngri börn framar eldri börnum eða börnum í sama árgangi sem ekki ættu eldri systkini í viðkomandi leikskóla. Af þeim sökum hefur systkinaforgangi ekki verið beitt af hálfu Reykjavíkurborgar síðan árið 2008 í kjölfar álits embættis borgarlögmanns þar um. Til þess að taka af allan vafa um lögmæti ákvarðana sveitarfélaga í þágu systkinaforgangs þarf lagaheimildar að njóta við í samræmi við lagaáskilnaðarreglu stjórnsýsluréttar.
    Í lögum um leikskóla, nr. 90/2008, er skýrt kveðið á um að velferð og hagur barna skuli hafður að leiðarljósi í öllu starfi, m.a. í því hvernig forgangsraðað er við innritun í leikskóla. Mikilvægt er að skýrar og fyrirsjáanlegar reglur gildi þar í einu og öllu og byggt sé í senn á málefnalegum og lögmætum sjónarmiðum. Því hefur verið haldið fram að reglan um systkinaforgang hafi fyrst og fremst verið til þess fallin að mæta hagsmunum foreldra en ekki barna, enda komi systkinaforgangur niður á börnum sem ekki eiga eldra systkini. Reynslan hefur þó sýnt að óbreytt fyrirkomulag kemur óumdeilanlega niður á barnafjölskyldum í Reykjavík þar sem eru fleiri en eitt barn á leikskólaaldri. Samvera systkina á sama leikskóla felur í sér dýrmæta og mikilvæga upplifun barna á fyrsta skólastiginu þegar hún er möguleg, og sveitarfélögum á að vera gert kleift að gera ráðstafanir til að koma af fremsta megni í veg fyrir að fjölskyldur þurfi að fara hverfa á milli til að sækja leikskóla með tilheyrandi álagi á umferð.
    Í því skyni að tryggja börnum, sem ekki eiga eldra systkini á leikskóla, aðgengi að leikskóla innan eigin hverfis er jafnframt lagt til í frumvarpi þessu að heimila sveitarfélögum með skýrum hætti að móta reglur sem tryggi börnum forgang inn á leikskóla með hliðsjón af nálægð heimilis við leikskóla með svipuðum hætti og gildir um innritun í grunnskóla samkvæmt lögum nr. 91/2008.

2. Mat á áhrifum.
    Frumvarpið varðar hagsmuni barna og fjölskyldna þeirra sem og stjórnsýslu sveitarfélaga. Framkvæmt hefur verið hagsmunamat út frá réttindum barna skv. 4. tölul. I. kafla þingsályktunar nr. 28/151 frá 2021 um barnvænt Ísland og framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Af því mati leiðir að talið er að samþykkt frumvarpsins muni hafa jákvæð áhrif á réttindi barna og væri til þess fallin að sveitarfélög uppfylli í auknum mæli skyldur sínar samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Lögfesting heimilda sveitarfélaga til að haga innritun á leikskóla með hliðsjón af framangreindu væri jafnframt til þess fallin að stuðla að aukinni vellíðan barna og fjölskyldna þeirra og ætti að hafa í för með sér jákvæð áhrif á umhverfi og félagslega samþættingu innan hverfa. Af þeim sökum telja flutningsmenn mikilvægt að gera sveitarstjórnum kleift að haga innritun í leikskóla með þeim hætti að yngri systkini njóti forgangs og að taka megi tillit til búsetu þeirra að öðru leyti þegar staðið er frammi fyrir vali á leikskóla. Þannig má tryggja að sem flest börn geti hafið leikskólagöngu í námunda við heimili sitt á tilskildum aldri. Niðurstaða matsins er að auknar heimildir sveitarfélaga til að forgangsraða innritun barna með hliðsjón af fjölskylduaðstæðum sé til þess fallin að auka farsæld barna með hliðsjón af því sem að framan greinir.