Ferill 49. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 49  —  49. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við einkarekna fjölmiðla).

Frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.



1. gr.

    Í stað tilvísunarinnar „4. mgr.“ í 4. mgr. 54. gr. kemur: 6. mgr.

2. gr.

    Á eftir X. kafla A laganna kemur nýr kafli, X. kafli B, Stuðningur við einkarekna fjölmiðla, með sex nýjum greinum, 62. gr. d – 62. gr. i, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:

    a. (62. gr. d.)

Markmið stuðnings við einkarekna fjölmiðla.

    Í því skyni að styrkja lýðræðishlutverk fjölmiðla skal vera til staðar fyrirsjáanlegt stuðningskerfi. Markmið stuðningskerfisins er að styðja og efla ritstjórnir á einkareknum frétta- og dagskrármiðlum sem gefa út fréttir og fréttatengt efni og/eða fjalla um samfélagsleg málefni með því að veita einkareknum frétta- og dagskrármiðlum rekstrarstuðning, sbr. 62. gr. g, vegna hluta kostnaðar sem fellur til við að afla og miðla slíku efni.

    b. (62. gr. e.)

Úthlutunarnefnd.

    Ráðherra skipar þriggja manna úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Einn nefndarmaður skal skipaður samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, einn samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins og einn samkvæmt tilnefningu Ríkisendurskoðunar og skal sá vera löggiltur endurskoðandi. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Ráðherra skipar formann nefndarinnar úr hópi nefndarmanna og skal hann uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara. Aðrir nefndarmenn og varamenn þeirra skulu hafa sérþekkingu á fjölmiðlamálum, reynslu og menntun sem nýtist á þessu sviði.
    Úthlutunarnefnd setur sér starfsreglur og gefur út skýrslu í lok skipunartímabilsins þar sem fram kemur mat á stuðningskerfinu á tímabilinu.

    c. (62. gr. f.)

Umsókn.

    Úthlutunarnefnd auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstuðning. Umsókn um rekstrarstuðning, ásamt fylgigögnum, skal berast úthlutunarnefnd samkvæmt umsóknarfresti ákveðnum í reglugerð. Ef fjölmiðlaveita starfrækir beint eða óbeint fleiri en einn fjölmiðil sem uppfyllir skilyrði 62. gr. g skal umsókn vera sameiginleg vegna þeirra.
    Í umsókn skulu koma fram gögn um stuðningshæfan rekstrarkostnað, sbr. 62. gr. h, og skal hann vera sundurliðaður. Skila ber upplýsingum m.a. um meðalfjölda stöðugilda, fjölda verktaka og heildarfjárhæð greiðslna til þeirra vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni fyrir árið á undan. Upplýsingarnar skulu vera staðfestar af löggiltum endurskoðanda.
    Í því skyni að sannreyna stuðningshæfan rekstrarkostnað skv. 62. gr. h getur úthlutunarnefnd óskað eftir viðeigandi upplýsingum frá umsækjanda, til að mynda virðisaukaskattsskýrslum og bókhaldi. Séu gögn ófullnægjandi skal úthlutunarnefnd veita umsækjanda frest til að skila inn fullnægjandi gögnum.
    Við mat á umsóknum getur úthlutunarnefnd aflað álits sérfróðra aðila um hvort skilyrði 62. gr. g séu uppfyllt.
    Fjölmiðlanefnd sér um umsýslu umsókna og veitir úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð eftir nánara samkomulagi. Kostnaður við mat á umsóknum og annarri umsýslu skal greiddur úr ríkissjóði.

    d. (62. gr. g.)

Skilyrði fyrir rekstrarstuðningi.

    Skilyrði fyrir rekstrarstuðningi við einkarekinn fjölmiðil eru eftirfarandi:
     1.      Rekstrarkostnaður er stuðningshæfur, sbr. 62. gr. h.
     2.      Fjölmiðill skal vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- og myndmiðlunar skv. IV. kafla. Fjölmiðill skal jafnframt hafa starfað með leyfi eða skráningu frá fjölmiðlanefnd óslitið í 12 mánuði eða lengur.
     3.      Á fjölmiðli skulu starfa a.m.k. þrír starfsmenn í fullu starfi við að afla og miðla efni, en einn starfsmaður hjá staðbundnum fjölmiðli.
     4.      Prentmiðlar skulu koma út að lágmarki 20 sinnum á ári en staðbundnir fjölmiðlar 12 sinnum. Netmiðlar, hljóð- og myndmiðlar og aðrir sambærilegir miðlar skulu miðla nýju efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.
     5.      Fjölmiðlaveita skal hafa staðið skil á árlegri skýrslugjöf til fjölmiðlanefndar skv. 23. gr. vegna ársins á undan og hafa veitt fjölmiðlanefnd fullnægjandi gögn og upplýsingar um eignarhald fjölmiðlaveitunnar skv. 4. mgr. 17. gr., þ.m.t. gögn um raunverulegan eiganda.
     6.      Fjölmiðlaveita sé ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattasektir sem komnar voru á eindaga fyrir lok næsta árs á undan, og álagðir skattar og gjöld byggjast ekki á áætlunum vegna vanskila á skattframtölum og skýrslum, þ.m.t. staðgreiðsluskilagreinum og virðisaukaskattsskýrslu, til ríkisskattstjóra næstliðin þrjú ár áður en umsókn barst eða frá því að fjölmiðlaveita hóf starfsemi ef það var síðar.
     7.      Laun og réttindi starfsmanna á fjölmiðli skulu vera í samræmi við lög og kjarasamninga.
     8.      Fjölmiðlaveita var ekki í fjárhagserfiðleikum í lok næsta árs á undan, í skilningi reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 651/2014 frá 17. júní 2014 þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2014 frá 27. júní 2014, sem innleidd var í íslenskan rétt með reglugerð um gildistöku reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð, nr. 1165/2015.
    Styrkþegi skal skila greinargerð til úthlutunarnefndar um ráðstöfun styrkfjár eigi síðar en sex mánuðum eftir úthlutun styrks.

    e. (62. gr. h.)

Stuðningshæfur rekstrarkostnaður.

    Eftirfarandi kostnaðarliðir falla undir stuðningshæfan rekstrarkostnað samkvæmt lögum þessum, enda sé um að ræða frádráttarbæran rekstrarkostnað samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt:
     a.      Beinn launakostnaður blaða- og fréttamanna, ritstjóra og aðstoðarritstjóra, myndatökumanna, ljósmyndara, umbrotsmanna og prófarkalesara sem fellur til við að afla og miðla fréttum, fréttatengdu efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni.
     b.      Beinar verktakagreiðslur til aðila skv. a-lið sem falla til við að afla og miðla fréttum, fréttatengdu efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni.

    f. (62. gr. i.)

Útreikningur og hámark rekstrarstuðnings.

    Rekstrarstuðningur skal að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjanda, sbr. 62. gr. h. Stuðningur til hvers umsækjanda getur þó ekki orðið hærri en sem nemur 22% af fjárveitingu til verkefnisins.
    Staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem efnisskírskotun er staðbundin og höfðar aðallega til notenda sem tengsl hafa við útbreiðslusvæði miðils, hljóta 20% álag á fjárhæð styrks skv. 1. mgr.
    Hafi umsækjandi hlotið styrk frá opinberum aðilum vegna efnis skv. 62. gr. d, sbr. 1. mgr. 62. gr. g, dregst sá styrkur frá þeirri fjárhæð sem telst stuðningshæfur kostnaður skv. 62. gr. h. Þó skal ekki draga stuðning samkvæmt aðgerð í byggðaáætlun stjórnvalda um eflingu fjölmiðlunar í héraði frá þeirri fjárhæð sem telst til endurgreiðsluhæfs kostnaðar.
    Fari heildarfjárhæð samþykktra umsókna um stuðningshæfan rekstrarkostnað, að teknu tilliti til takmarkana skv. 1. mgr., umfram fjárveitingu til verkefnisins skerðist stuðningur til allra umsækjenda í jöfnum hlutföllum. Verði heildarfjárhæð samþykktra umsókna um stuðningshæfan rekstrarkostnað lægri en fjárveiting til verkefnisins skiptast afgangsfjármunir milli umsækjenda í réttum hlutföllum við kostnað þeirra. Þannig ræður umfang og fjöldi umsókna um stuðning hvernig stuðningur dreifist endanlega á milli fjölmiðla.
    Telji úthlutunarnefnd að fjölmiðill uppfylli skilyrði fyrir rekstrarstuðningi skal hún ákvarða fjárhæð stuðnings en ella skal umsókn hafnað. Berist umsókn um rekstrarstuðning vegna næstliðins árs eftir umsóknarfrest skal vísa henni frá. Heimilt er þó að taka umsókn til meðferðar hafi hún borist að þessum fresti liðnum ef gildar ástæður eru fyrir töfinni. Úthlutunarnefnd metur í hverju tilviki fyrir sig hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.
    Stjórn eða framkvæmdastjóri fjölmiðils skal staðfesta að upplýsingar og gögn vegna umsóknar séu í samræmi við ákvæði laga þessara. Berist nefndinni ekki fullnægjandi gögn að loknum veittum fresti eða bendi gögn málsins til þess að kostnaðaruppgjör sé ekki í samræmi við ákvæði laga þessara skal hún hafna beiðni um rekstrarstuðning. Komi í ljós að rekstrarstuðningur við umsækjanda hafi verið of hár er úthlutunarnefnd heimilt að hlutast til um að fyrri ákvörðun verði tekin upp. Við meðferð slíkra mála skal úthlutunarnefnd afla nauðsynlegra gagna og gefa aðilum kost á andmælum áður en ákvörðun er tekin. Leiði endurákvörðun til breytinga á fjárhæð endurgreiðslu til lækkunar skal umsækjandi endurgreiða ríkissjóði mismuninn innan tíu daga frá því að tilkynnt er um ákvörðunina, með vöxtum í samræmi við ákvörðun Seðlabanka Íslands um almenna vexti af peningakröfum. Úthlutunarnefnd er heimilt að fresta afgreiðslu annarra umsókna sama umsækjanda þar til niðurstaða er fengin um hvort til endurákvörðunar kemur. Heimild til endurupptöku samkvæmt þessu ákvæði fellur niður að liðnum fjórum árum frá upphaflegri ákvörðun úthlutunarnefndar.
    Ákvarðanir úthlutunarnefndar samkvæmt lögum þessum eru endanlegar á stjórnsýslustigi.

3. gr.

    2. mgr. 64. gr. laganna orðast svo:
    Ákvæði X. kafla B falla úr gildi 1. janúar 2026.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með frumvarpi þessu, sem samið var í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti er lagt til að tekinn verði aftur upp í lögin kafli um stuðning við einkarekna frétta- og dagskrármiðla vegna kostnaðar sem fellur til við miðlun frétta og fréttatengds efnis og umfjöllunar um samfélagsleg málefni. Ákvæði X. kafla B laga um fjölmiðla, nr. 38/2011, féllu úr gildi 1. janúar 2025. Frumvarp til framlengingar á gildistíma kaflans var í samráðsgátt stjórnvalda þegar þáverandi ríkisstjórnarsamstarfi var slitið og tekin ákvörðun um að frumvarpið yrði ekki eitt þeirra sem starfsstjórn hygðist leggja fram. Frumvarp þetta var lagt fram á 156. löggjafarþingi (256. mál) en þinglegri meðferð var ekki lokið og frumvarpið er því endurflutt. Tæknilegar breytingar hafa verið gerðar en dagsetning umsóknarfrests, sem í fyrra frumvarpi var 1. september, hefur eðli málsins samkvæmt verið fjarlægð svo unnt sé að auglýsa og úthluta stuðningi til einkarekinna fjölmiðla á þessu ári. Ekki hefur verið sett inn föst dagsetning í staðinn heldur gert ráð fyrir að mælt verði fyrir um dagsetningu umsóknarfrests í reglugerð svo að unnt sé að taka mið af því hvenær frumvarpið verður samþykkt sem lög. Þá hefur verið tekið tillit til þeirrar tæknilegu breytingar sem meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar lagði til á 156. löggjafarþingi og 3. gr. frumvarpsins verið breytt til samræmis við tillögu nefndarinnar.
    Fjölmiðlar hafa mikilvægu hlutverki að gegna í lýðræðissamfélagi, þeir flytja fréttir af málefnum líðandi stundar og eru mikilvægur vettvangur skoðanaskipta um þjóðfélagsleg málefni. Slík umræða og þekking skiptir verulegu máli við töku lýðræðislegra ákvarðana. Það er því mikilvægt fyrir lýðræðisríki að starfandi séu traustir, óháðir og stöðugir fjölmiðlar, sérstaklega á tímum mikillar upplýsingaóreiðu sem aukist hefur með auknum vinsældum samfélagsmiðla. Þá eru fjölmiðlar einnig þýðingarmiklir þegar kemur að því að viðhalda og efla íslenska tungu sem hefur átt undir högg að sækja.
    Frumvarpinu er ætlað að taka aftur upp í lögin X. kafla B um stuðning til einkarekinna fjölmiðla. Vinna við endurskoðun ákvæða kaflans er þegar hafin og verður frumvarp sem festir í sessi stuðning til einkarekinna fjölmiðla lagt fram á vorþingi 2026. Af þeim sökum er gildistími kaflans einungis út árið. Var það metið sem svo að vinnan við endurskoðun væri ekki komin á það stig að unnt væri að leggja fram frumvarp með endurskoðuðum, en til þess að tryggja stuðning við fjölmiðla á þessu ári þykir nauðsynlegt að taka upp óbreytt ákvæði um stuðning til einkarekinna fjölmiðla sem gildi meðan unnið er að endurskoðun stuðningsins.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Stuðningur til einkarekinna fjölmiðla er veigamikill þáttur í rekstri fjölmiðla, einkum minni fjölmiðla á landsbyggðinni. Starfsemi einkarekinna fjölmiðla er ein meginforsenda þess að almenningur hafi aðgang að fjölbreyttum fréttum og áreiðanlegum upplýsingum. Margt bendir til þess að brottfall styrkjakerfis gæti haft veruleg og neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi fjölmiðla, leitt til frekari samdráttar og fækkunar fjölmiðla á markaði og þar með haft skaðleg áhrif á samkeppni og fjölbreytni á íslenskum fjölmiðlamarkaði.
    Í lok árs 2016 var sett á laggirnar nefnd til að greina rekstrarumhverfi fjölmiðla hér á landi. Nefndin skilaði skýrslu í janúar 2018 þar sem lagðar voru fram tillögur í sjö liðum um aðgerðir til að bæta rekstrargrundvöll fjölmiðla. Eftir að skýrslan kom út var fjölmiðlanefnd falið að vinna frekar með framkomnar tillögur, greina þær og meta. Í greinargerð fjölmiðlanefndar er m.a. lagt til að setja skuli á laggirnar endurgreiðslukerfi fyrir framleiðslu á fréttum og fréttatengdu efni. Í greinargerðinni kemur fram að æskilegt sé að skilyrði og skilmálar byggist á norrænum fyrirmyndum en verði aðlöguð að íslenskum aðstæðum. Stefnt skuli að því að styrkjakerfið verði einfalt, fyrirsjáanlegt og eins hlutlaust gagnvart tæknilegri útfærslu og hægt er. Þá kemur fram að styrkveitingar skuli styðja við sterkar ritstjórnir með slagkraft til metnaðarfullra verkefna en ekki síður við fjölbreytta flóru smærri miðla. Í því sambandi skuli bæði hafa í huga miðla sem ná til landsins alls og svæðisbundna miðla. Skilyrðin verði þannig til þess fallin að styrkja þá miðla sem beinlínis efla lýðræðið í landinu með fréttaflutningi og upplýstri umræðu.
    Með frumvarpi þessu er, eins og í fyrri frumvörpum, leitast við að koma til móts við þau sjónarmið sem rakin eru hér að framan. Því er lagt til að einkareknir fjölmiðlar geti, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, fengið stuðning í formi endurgreiðslu á hluta kostnaðar sem fellur til við að afla og miðla fréttum, fréttatengdu efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni hér á landi.
    Ætla má að áframhaldandi stuðningur hafi jákvæð áhrif á einkarekna fjölmiðla ef litið er til þeirra landa sem fyrirmynd kerfisins er sótt til. Samkvæmt lista alþjóðasamtakanna Blaðamenn án landamæra yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum skipa Noregur, Danmörk og Svíþjóð efstu sæti listans, í þessari röð. Ísland skipar 18. sæti listans. Á meðal þess sem talið er hafa neikvæð áhrif á frelsi fjölmiðla hér á landi er smæð íslensks fjölmiðlamarkaðar og erfið rekstrarstaða einkarekinna fjölmiðla í alþjóðlegu fjölmiðlaumhverfi.
    Almennt hefur verið sátt meðal fjölmiðla um styrkjaumhverfið hér á landi. Hafa útgefendur nefnt þess dæmi að rekstrarstuðningurinn sé grundvöllur þess að hægt sé að halda rekstri fjölmiðla gangandi vegna þess að kostnaður tengdur t.d. prentun og dreifingu hafi aukist mjög á undanförnum árum. Styrkirnir hafa einnig reynst staðbundnum miðlum vel og verið mikilvægur liður í því að viðhalda rekstri þeirra. Framangreint er í samræmi við það markmið stuðningsins að styrkja og efla ritstjórnir á frétta- og dagskrármiðlum sem gefa út fréttir og fréttatengt efni og/eða fjalla um samfélagsleg málefni og tryggja aðgengi almennings á öllu landinu að ritstýrðum fjölmiðlum.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Markmið frumvarpsins er að styðja með fyrirsjáanlegum hætti við einkarekna fjölmiðla, en fjölmiðlar eru hornsteinn lýðræðis og með stuðningnum er þeim gert betur kleift að sinna hlutverki sínu. Markmið stuðningskerfisins er að styðja og efla ritstjórnir á einkareknum frétta- og dagskrármiðlum sem gefa út fréttir og fréttatengt efni og/eða fjalla um samfélagsleg málefni með því að veita slíkum miðlum rekstrarstuðning, sbr. 62. gr. g, vegna hluta kostnaðar sem fellur til við að afla og miðla slíku efni. Gildistími X. kafla B er áætlaður út árið. Ein breyting er gerð frá því sem sagði í lögum nr. 53/2023, sem var um sama efni og frumvarp þetta, um hlutfall stuðnings til hvers umsækjanda. Í þeim lögum var miðað við 25% en nú er lagt til að það geti ekki orðið hærra en sem nemur 22% af fjárveitingu til verkefnisins.
    Í fjölmiðlastefnu danskra stjórnvalda fyrir árin 2023–2026 kemur fram að á tímabilinu sé markmiðið að styrkja betur staðbundna fjölmiðla með því að leggja meiri áherslu á stuðning við smærri miðlana. Þá verði settur á laggirnar sérstakur styrkjaflokkur fyrir ritstýrð vikublöð til þess að tryggja fréttaútgáfu á öllu landinu. Einnig sé stefnt að öðrum styrkjaflokki til handa tímaritum sem innihalda ritstýrðar greinar um samfélagsleg málefni og njóta hvorki rekstrarstuðnings né skattaívilnana sem aðrir fjölmiðlar eiga rétt á. Þá sé ráðgert á tímabilinu að vinna að framtíð fjölmiðlastyrkja með það að markmiði að styrkir til fjölmiðla verði veittir óháð því hvernig efni þeirra er miðlað, þ.e. að kerfið verði tækni- og vettvangshlutlaust.
    Í Svíþjóð voru gerðar breytingar á styrkjum til fjölmiðla sem tóku gildi í byrjun árs 2024. Markmiðið er að styrkja lýðræðið með því að auka aðgengi almennings að vandaðri og óháðri fréttamennsku. Markmiðinu er náð með því að styrkja aðgengi að héraðs- og fréttamiðlum um land allt, en einnig með því að stuðla að fjölbreyttum og vönduðum fréttaflutningi, þ.e. ákveðin krafa er gerð til þess að ritstjórnarefni fjölmiðla sem hljóta styrk endurspegli gæði og vandaða blaðamennsku en engin viðmið er að finna í lögunum sjálfum um hvað gæti fallið þar undir. Meðal skilyrða sem þarf að uppfylla er að efni fjölmiðilsins stangist ekki verulega á við ákveðin lýðræðisleg grundvallargildi. Þá er unnið að því að stuðningskerfið verði í auknum mæli óháð tæknilegum dreifileiðum sem fjölmiðlar velja sér.
    Í Noregi hafa verið gerðar nokkrar breytingar á styrkjum til fjölmiðla. Má þar m.a. nefna nýtt skilyrði um að fjölmiðlar sem skila hagnaði yfir ákveðnu marki hljóti ekki styrk. Þá hefur verið sett hámark á þann styrk sem hver fjölmiðill getur fengið.
    Sjá má að umfangsmiklar breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi styrkveitinga til einkarekinna fjölmiðla á Norðurlöndunum, einkum í Svíþjóð. Unnið er að því að greina hvort þær breytingar sem þar voru gerðar henti íslensku fjölmiðlaumhverfi og hvernig þær reynast í framkvæmd.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalla á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar. Efni frumvarpsins felur í sér ríkisaðstoð í skilningi 61. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Þær breytingar sem felast í frumvarpinu, þar á meðal endurupptaka á styrkjakerfinu, ber að tilkynna til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) áður en þær koma til framkvæmda. ESA hefur verið upplýst um efni frumvarpsins og verður aflað endanlegs samþykkis stofnunarinnar áður en lögin taka gildi, verði frumvarpið samþykkt. Gildandi styrkjakerfi var samþykkt af ESA með ákvörðun nr. 206/21/COL, sbr. einnig ákvörðun ESA nr. 125/23/COL.

5. Samráð.
    Drög að frumvarpi til laga um framlengdan stuðning til einkarekinna fjölmiðla var í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá 20. febrúar til og með 6. mars 2025, sbr. mál nr. S-43/2025. Alls bárust 11 umsagnir um frumvarpið og var metið sem svo að þær gæfu ekki tilefni til breytinga að sinni þar sem lagt er til að ákvæði X. kafli B fjölmiðlalaga muni falla úr gildi 1. janúar 2026.
    Umsagnirnar eiga það sameiginlegt að kallað er eftir því að stuðningurinn verði festur í sessi sem fyrst til þess að skapa stöðugleika og fyrirsjáanleika fyrir fjölmiðla.
    Margar umsagnanna fjölluðu ekki um einstök skilyrði stuðningsins eða lagaákvæði frumvarpsins heldur almennt um stuðningskerfið í heild sinni og um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Vinna við endurskoðun á stuðningskerfinu stendur yfir og munu þær umsagnir er bárust um frumvarpið nýtast í þeirri vinnu.
    Sökum stutts vorþings var áformaskjal ekki sett í samráðsgátt stjórnvalda. Málið er nú endurflutt.

6. Mat á áhrifum.
    Í frumvarpinu er mælt fyrir um áframhaldandi stuðning til einkarekinna fjölmiðla. Stuðningur við einkarekna fjölmiðla gerir þeim kleift að halda áfram að miðla fréttum og fréttatengdu efni til neytenda sem og að skapa vettvang fyrir lýðræðislega umræðu. Framangreint stuðlar að því að neytendur hafi aðgang að fjölbreyttum fjölmiðlum. Gert er ráð fyrir að kostnaður á árinu verði í kringum 500 millj. kr. Meðtalinn er kostnaður við úrvinnslu umsókna. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það hafi áhrif á áætlaðar fjárheimildir á málefnasviðinu 19 Fjölmiðlun.
    Í niðurstöðu mats um áhrif á jafnrétti kynjanna kemur fram að ekki eru til kyngreind gögn fyrir einkarekna fjölmiðla og í þessu frumvarpi eru ekki gerðar tilteknar kröfur er varða jafnrétti kynjanna sem forsendur fyrir stuðningi. Ætla má að áframhaldandi stuðningur hafi jákvæð áhrif á einkarekna fjölmiðla sé litið til þeirra landa sem fyrirmynd kerfisins er sótt til. Ísland skipar 18. sæti lista alþjóðasamtakanna Blaðamenn án landamæra yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum, en Noregur, Danmörk og Svíþjóð skipa efstu sæti listans, í þessari röð. Á meðal þess sem talið er hafa neikvæð áhrif á frelsi fjölmiðla hér á landi er smæð íslensks fjölmiðlamarkaðar og erfið rekstrarstaða einkarekinna fjölmiðla í alþjóðlegu fjölmiðlaumhverfi. Stuðningurinn sem veittur er í áðurnefndum löndum hefur reynst fjölmiðlunum afar vel, þá sérstaklega minni miðlunum og í sumum tilfellum verið forsenda fyrir því að halda úti rekstri fjölmiðla.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Greinin felur í sér leiðréttingu á tilvísun sem átti sér stað við innleiðingu á tilskipun (ESB) 2018/1808 með lögum nr. 27/2024 um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (EES-reglur, hljóð- og myndmiðlun o.fl.).

Um 2. gr.

    Um a-lið (62. gr. d).
    Markmið frumvarpsins er að styðja við og efla útgáfu á fréttum, fréttatengdu efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni. Til að ná því markmiði er gert ráð fyrir að heimilt sé að endurgreiða einkareknum fjölmiðlum hluta þess kostnaðar sem fellur til við að afla og miðla slíku efni. Líkt og áður hefur verið rakið gegna einkareknir fjölmiðlar mikilvægu hlutverki í lýðræðissamfélagi. Gert er ráð fyrir því að stuðningur til þeirra verði til þess fallinn að styrkja lýðræði í landinu og hann skili sér í vönduðum fréttaflutningi og upplýstri umræðu. Sú leið að endurgreiða einkareknum fjölmiðlum hluta þess kostnaðar sem fellur til við að afla og miðla fréttum, fréttatengdu efni o.fl. er ekki aðeins hugsuð sem stuðningur við stærri fjölmiðla með sterkar ritstjórnir heldur jafnframt sem stuðningur við smærri miðla, þ.m.t. staðbundna fjölmiðla sem gegna mikilvægu menningar- og lýðræðishlutverki í smærri byggðum. Markmiðsákvæðinu er ætlað að undirstrika mikilvægi fjölmiðla fyrir lýðræðissamfélag ásamt því að vísa til þess að stuðningskerfið skuli vera fyrirsjáanlegt. Markmiðsákvæði kaflans er nátengt markmiðsákvæði laganna en öflugt stuðningskerfi er einn þáttur í að tryggja fjölræði á markaðnum. Fyrirmynd ákvæðisins er sótt til Noregs.
     Um b-lið (62. gr. e).
    Með lögum nr. 53/2023 var gerð breyting á skipan í úthlutunarnefnd. Sú breyting sem þá var mælt fyrir um er tekin upp hér. Með fyrrgreindum lögum var horfið frá því fyrirkomulagi að ríkisendurskoðandi tilnefndi alla nefndarmenn.
     Um c-lið (62. gr. f).
    Í 1. mgr. segir að úthlutunarnefnd auglýsi eftir umsóknum um rekstrarstuðning. Fram kemur einnig að umsókn ásamt fylgigögnum skuli berast eigi síðar en samkvæmt dagsetningu sem mælt er fyrir um í reglugerð. Ekki eru sett tímamörk um þann frest sem úthlutunarnefnd hefur til að taka ákvörðun um rekstrarstuðning en nefndin er bundin af málshraðareglu stjórnsýslulaga. Gert er ráð fyrir að allar umsóknir verði afgreiddar í einu lagi, líkt og hefur verið undanfarin ár.
    Jafnframt er kveðið er á um það í 1. mgr. að ef fjölmiðlaveita starfrækir fleiri en einn fjölmiðil sem uppfyllir skilyrði 62. gr. g skuli umsókn um rekstrarstuðning vera sameiginleg vegna þeirra. Upplýsingar um stuðningshæfan rekstrarkostnað skulu vera sundurliðaðar og í umsókn skulu koma fram heiti þeirra fjölmiðla sem umsóknin tekur til, upplýsingar um stuðningshæfan rekstrarkostnað og fjölda starfsmanna á ritstjórn hvers og eins fjölmiðils.
    Samkvæmt 2. mgr. skulu koma fram gögn með umsókn um stuðningshæfan rekstrarkostnað fjölmiðils á síðastliðnu ári, sbr. 62. gr. h, sem skal vera sundurliðaður. Um skýringar á þessu ákvæði vísast að öðru leyti til skýringa við 62. gr. h.
    Í 3. mgr. er lagt til að úthlutunarnefnd geti, í því skyni að sannreyna stuðningshæfan rekstrarkostnað, kallað eftir viðeigandi upplýsingum frá fjölmiðli.
    Þá getur nefndin skv. 4. mgr. aflað álits sérfróðra einstaklinga, t.d. skattyfirvalda, sérfræðinga hjá Stjórnarráði Íslands eða annarra aðila. Tilvik sem gætu fallið hér undir væru t.d. ef reikningar væru óskýrir, ákveðinn kostnaðarliður hærri en almennt telst eðlilegt eða vafi léki á hvort skilyrði 62. gr. g væru uppfyllt o.s.frv.
    Í 5. mgr. er kveðið á um að fjölmiðlanefnd skuli sjá um umsýslu umsókna og geti einnig veitt úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð eftir nánara samkomulagi Jafnframt er tekið fram að kostnaður við mat á umsóknum og annarri umsýslu skuli greiddur úr ríkissjóði, nánar tiltekið af fjárveitingum málaflokksins, sbr. lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, og lög um listamannalaun, nr. 57/2009, og eftir atvikum lög um opinber fjármál, nr. 123/2015.
     Um d-lið (62. gr. g).
    Í greininni eru talin upp þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að einkarekinn fjölmiðill geti fengið rekstrarstuðning. Skilyrðin þurfa öll að vera uppfyllt og eru ófrávíkjanleg.
    Í 1. tölul. er gert að skilyrði að um sé að ræða stuðningshæfan rekstrarkostnað, sbr. 62. gr. h.
    Í 2. tölul. er gerð sú krafa að fjölmiðill sé skráður eða hafi leyfi til hljóð- og myndmiðlunar skv. IV. kafla laganna. Skv. 2. mgr. 10. gr. laganna annast fjölmiðlanefnd m.a. eftirlit með skráningarskyldu og veitingu leyfa til hljóð- og myndmiðlunar og tryggir að lögboðnar upplýsingar um alla veitendur fjölmiðlaþjónustu séu til staðar. Þá skal fjölmiðlanefnd m.a. fylgjast með því að fjölmiðlaveitur fari að öðru leyti að fyrirmælum laganna og beita viðurlögum ef við á. Einnig er það gert að skilyrði að fjölmiðill hafi starfað með leyfi frá fjölmiðlanefnd, sbr. 17. gr. laganna, eða skráningu, sbr. 14. gr. laganna, óslitið í 12 mánuði eða lengur og er átt við fyrir þann tíma er umsókn berst til úthlutunarnefndar. Þetta skilyrði er að norskri fyrirmynd. Áskilnaður í þessa veru er nauðsynlegur enda ekki unnt að meta hvort öll skilyrði fyrir rekstrarstuðningi séu uppfyllt fyrr en reynsla er komin á starfsemi fjölmiðils.
    Í 3. tölul. er það skilyrði sett að á fjölmiðli skuli starfa a.m.k. þrír starfsmenn í fullu starfi við að afla og miðla efni en einn starfsmaður hjá staðbundnum fjölmiðli. Þetta skilyrði er að danskri fyrirmynd. Rétt þykir að hafa áskilnað um lágmarksfjölda starfsmanna á ritstjórn fjölmiðils en viðmiðin eru ekki þau sömu varðandi staðbundna fjölmiðla og aðra einkarekna fjölmiðla. Varðandi þá síðarnefndu verður að telja eðlilegt að gera þá kröfu að fjölmiðlar hafi náð ákveðinni stærð til að hafa bolmagn til að sinna því lýðræðishlutverki sem er forsenda fyrir rekstrarstuðningi samkvæmt frumvarpinu. Því er miðað við að a.m.k. þrír starfsmenn séu í fullu starfi hjá fjölmiðli til þess að hann geti notið rekstrarstuðnings. Ekki er ástæða til að gera sömu kröfur varðandi staðbundnu miðlana sem eru gjarnan með fámennar ritstjórnir en sinna þó mikilvægu hlutverki í heimabyggð. Í tilviki staðbundnu fjölmiðlanna er því aðeins gerður áskilnaður um að einn starfsmaður sé þar í fullu starfi við öflun og miðlun efnis.
    Í 4. tölul. er gerð krafa um lágmarksútgáfutíðni fyrir prentmiðla auk lágmarksmiðlunar fyrir netmiðla, hljóð- og myndmiðla og annarra sambærilegra miðla.
    Í 5. tölul. er gert að skilyrði að fjölmiðill hafi staðið skil á árlegri skýrslugjöf til fjölmiðlanefndar vegna næstliðins árs skv. 23. gr. laganna og hafi veitt fjölmiðlanefnd fullnægjandi gögn og upplýsingar um eignarhald og/eða yfirráð fjölmiðils skv. 17. gr. laganna. Rétt er að taka fram að skv. 2. mgr. 23. gr. laganna eru fjölmiðlaveitur með skammtímaleyfi skv. 2. mgr. 16. gr. undanþegnar skýrslugjöf til nefndarinnar. Í 4. mgr. 17. gr. laganna er jafnframt kveðið á um að skylt sé að veita fjölmiðlanefnd öll gögn og upplýsingar svo að rekja megi eignarhald og/eða yfirráð til einstaklinga, almennra félaga, opinberra aðila og/eða þeirra sem veita þjónustu fyrir opinbera aðila og getur fjölmiðlanefnd hvenær sem er krafist þess að framangreindar upplýsingar verði veittar. Ef fjölmiðill vanrækir að láta fjölmiðlanefnd í té skýrslu skv. 23. gr. eða veitir fjölmiðlanefnd ekki fullnægjandi upplýsingar skv. 4. mgr. 17. gr. skal umsókn hafnað. Að auki er gert ráð fyrir að fjölmiðlanefnd geti krafist gagna um raunverulegan eiganda eða eigendur og yfirráð og er í því samhengi vitnað til skilgreininga þar að lútandi í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018. Nauðsynlegt er að gerðar séu ríkar kröfur til gagnsæis á eignarhaldi þeirra fjölmiðla sem sækja um rekstrarstuðning úr ríkissjóði. Jafnframt er nauðsynlegt að hafið sé yfir allan vafa hver sé raunverulegur eigandi fjölmiðilsins. Fjölmiðli ber að veita fjölmiðlanefnd þær upplýsingar um eignarhald miðilsins sem nefndin óskar, svo sem með framlagningu kaupsamninga um hlutafé, hluthafasamkomulags, lánasamninga og annarra gagna sem varpað geta ljósi á raunverulegt eignarhald fjölmiðils.
    Í 6. tölul. er gerð sú krafa að fjölmiðill sé ekki í vanskilum vegna opinberra gjalda. Gerð er krafa um að sýnt sé fram á þetta með staðfestingu á skuldastöðu við opinbera aðila þegar umsókn er send til fjölmiðlanefndar.
    Í 7. tölul. er gerð krafa um að laun og réttindi starfsmanna á fjölmiðli séu í samræmi við lög og kjarasamninga.
    Í 8. tölul. er gerð sú krafa að fjölmiðlaveita hafi ekki verið í fjárhagserfiðleikum í lok undanfarins árs, sbr. almenna hópundanþágu (GBER) reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 651/2014.
    Í 2. mgr. er gerð krafa um að styrkþegi skuli skila greinargerð til úthlutunarnefndar um ráðstöfun styrkfjár eigi síðar en sex mánuðum eftir úthlutun styrks. Tilurð málsgreinarinnar má rekja til þeirrar kröfu Eftirlitsstofnunar EFTA að ríki meti áhrif ríkisstyrkja, m.a. hvort styrkurinn sé notaður í það sem honum er ætlað að styrkja og hvort samkeppni sé raskað. Þessar upplýsingar nýtast ríkinu til að meta stuðningskerfið með reglubundnum hætti.
     Um e-lið (62. gr. h).
    Í greininni er fjallað um stuðningshæfan rekstrarkostnað samkvæmt frumvarpi þessu. Lagt er til að áfram verði einungis heimilt að reikna stuðningsfjárhæðina af ákveðnum skilgreindum kostnaðarliðum sem sannanlega falla undir ákvæðið. Það er almennt skilyrði að um sé að ræða útgjöld sem heimilt er að draga frá tekjum af atvinnurekstri samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt. Hliðstætt skilyrði kemur til að mynda fram í lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
    Í a-lið er lagt til að beinn launakostnaður einkarekinna fjölmiðla vegna öflunar og miðlunar á efni falli undir stuðningshæfan kostnað. Hugtakið launakostnaður tekur hvort tveggja til launa og launatengdra gjalda. Um er að ræða heildarlaun fjölmiðils til nánar tilgreindra starfsmanna á ritstjórnum, þ.e. blaða- og fréttamanna, ritstjóra og aðstoðarritstjóra, myndatökumanna, ljósmyndara og prófarkalesara, vegna öflunar og miðlunar á efni. Um tæmandi talningu er að ræða. Í því felst að launakostnaður til annarra en þeirra sem tilgreindir eru sérstaklega í greininni fellur utan stuðningshæfs rekstrarkostnaðar í skilningi ákvæðisins. Sem dæmi má nefna að vinna starfsmanna við almenna stjórnun fjölmiðils, auglýsinga- eða kynningarmál eða dreifingu og sölu fellur ekki undir endurgreiðsluhæfan kostnað. Einnig fellur utan ákvæðisins vinna upptökustjóra, myndstjórnar- og myndvinnslufólks og forritara. Hið sama á við prentkostnað og annan hliðstæðan kostnað.
    Á sama hátt og í a-lið er í b-lið greinarinnar lagt til að beinn kostnaður fjölmiðla vegna vinnu verktaka við að afla og miðla efni falli undir þann kostnað sem telst stuðningshæfur. Um er að ræða aðkeypta vinnu frá verktökum sem fellur undir þá verkþætti sem getið er um í a-lið, þ.e. vinna sjálfstætt starfandi blaða- og fréttamanna, ritstjóra og aðstoðarritstjóra, myndatökumanna, ljósmyndara og prófarkalesara. Frádráttarbær virðisaukaskattur, innskattur, sbr. 15. og 16. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, telst ekki til stuðningshæfs kostnaðar samkvæmt frumvarpi þessu.
    Umsækjanda ber að sýna fram á að launa- og verktakagreiðslur hafi verið greiddar. Þá er rétt að taka sérstaklega fram að umsækjandi getur vitaskuld ekki fengið rekstrarstuðning oftar en einu sinni vegna vinnu sama starfsmanns. Dæmi um þetta er t.d. blaðamaður sem þiggur laun frá umsækjanda sem starfrækir fleiri en einn fjölmiðil og ritar fréttir bæði í prent- og netmiðil eða ljósmyndari í sömu stöðu sem tekur ljósmyndir sem birtar eru í prent- og netútgáfu viðkomandi fjölmiðils.
     Um f-lið (62. gr. i).
    Ákvæði 1. mgr. er að danskri fyrirmynd. Sambærileg viðmið um hlutfall af kostnaði er einnig að finna í lögum nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist og lögum um stuðning við útgáfu bóka á íslensku. Ein breyting er gerð frá því fyrirkomulagi sem hefur verið en seinni hlutfallstala ákvæðisins hefur verið lækkuð úr 25% í 22% og er því gert ráð fyrir að miða við að hver styrkþegi geti ekki fengið hærri stuðning en sem nemur 22% af fjárveitingu til verkefnisins. Markmið breytingarinnar er að stuðla að jafnari dreifingu stuðningsins milli umsækjenda þar sem hver umsækjandi getur samkvæmt ákvæði frumvarpsins ekki fengið hærri stuðning en sem nemur 22% af heildarfjárveitingu til verkefnisins. Við úthlutun síðasta árs var 25% af heildarfjárveitingunni 139.300.000 kr. en með 22% þaki hefði fjárhæðin verið 122.540.000 kr. Auk þess takmarkast úthlutun til einstakra fjölmiðla af þeirri heildarfjárhæð sem til ráðstöfunar er ár hvert og er stuðningur til allra umsækjenda skertur í jöfnum hlutföllum þar til heildarfjárhæðin er hin sama og áætlaðar fjárveitingar til verkefnisins, að frádregnum kostnaði við úrvinnslu umsókna og þóknun vegna starfa úthlutunarnefndar. Þróunin annars staðar á Norðurlöndunum hefur verið í þá átt að lækka hámarkshlutfall styrkja til einstakra fjölmiðla, t.d. í Noregi og Svíþjóð, sem og að auka stuðning við staðbundna miðla til þess að tryggja að ekki myndist svokallaðar fréttaeyðimerkur, þ.e. tryggja aðgengi alls almennings að vandaðri og óháðri fréttamennsku hvar sem það er statt á landinu og þar þrífist fjölmiðlar sem miðla af heimabyggð í heimabyggð. Þá er með umræddri breytingu stigið fyrsta skrefið í endurskoðun á fyrirkomulagi stuðningsins hér á landi. Gerðar hafa verið ýmsar breytingar á hámarki stuðnings frá því að stuðningur til einkarekinna fjölmiðla var fyrst kynntur árið 2019 og frumvarp lagt fram á 149. löggjafarþingi, en þá var gerð tillaga um að umrætt hámark væri 50 millj. kr. af heildarfjárveitingu til verkefnisins og fyrra þakið, þ.e. hámark af stuðningshæfum rekstrarkostnaði, var 25%. Frumvarp þetta náði ekki fram að ganga. Frumvarpið var því lagt fram að nýju á 150. löggjafarþingi en þá hafði fyrra þak verið lækkað úr 25% niður í 18%. Þegar lög nr. 58/2021 tóku gildi var búið að breyta báðum þökunum í 25%.
    Ákvæði 2. mgr. var upphaflega bætt við af meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar vegna tímabundins fjármagns, með breytingartillögu í meðförum þingsins við frumvarp það er varð að lögum nr. 53/2023 og framlengdi gildistíma stuðningsins. Þrátt fyrir að tímabundna fjármagnið hafi verið einskiptis (aðeins fyrir 2023 úthlutunina) þá var tekin sú ákvörðun að álag sem staðbundnir miðlar hlytu myndi haldast við úthlutun 2024. Rökin fyrir því voru m.a. þau að þróunin á Norðurlöndunum er í þá átt að huga sérstaklega að staðbundnum miðlum, með því að tryggja fréttaútgáfu á öllu landinu. Þá hefur í umsögnum staðbundinna fjölmiðla um frumvarp þetta komið fram hversu mikilvægur stuðningurinn er fyrir minni fjölmiðla á landsbyggðinni og í einhverjum tilfellum stuðlað að því að sumir þeirra hafi náð að forðast gjaldþrot en einnig veitt sumum svigrúm til að vinna í fleiri tekjuleiðum til að styrkja rekstrargrundvöllinn til framtíðar, líkt og með sölu áskrifta. Lagt er til að ákvæðið haldist óbreytt frá hinu brottfallna ákvæði enda er vinna við endurskoðun stuðningskerfisins langt komin þar sem lagt verður mat á hvort leggja eigi til varanlegt aukaálag til staðbundinna miðla eður ei.
    Í 3. mgr. er að finna ákvæði sem var nýmæli í lögum nr. 53/2023. Markmið þess er að koma í veg fyrir að hið opinbera greiði styrki vegna sama efnis oftar en einu sinni. Gildissvið greinarinnar er bundið við opinbera aðila. Hefðbundinn skilningur er lagður í hugtakið opinber aðili en undir það falla bæði ríki og sveitarfélög. Styrkir frá einkasjóðum eða einkaaðilum dragast því ekki frá þeirri fjárhæð sem telst endurgreiðsluhæfur kostnaður.
    Þá segir í 6. mgr. að í því skyni að sannreyna stuðningshæfan rekstrarkostnað samkvæmt lögunum, geti nefndin óskað eftir viðeigandi upplýsingum frá umsækjanda. Þá kemur fram að séu gögn um stuðningshæfan rekstrarkostnað skv. 62. gr. h ófullnægjandi skuli nefndin veita umsækjanda frest til að skila inn fullnægjandi gögnum. Berist nefndinni ekki fullnægjandi gögn að loknum veittum fresti eða bendi gögn málsins til þess að kostnaðaruppgjör sé ekki í samræmi við ákvæði frumvarpsins skal hún hafna beiðni um rekstrarstuðning. Þá er í ákvæðinu mælt fyrir um heimild úthlutunarnefndar til endurupptöku ákvörðunar um stuðningshæfan rekstrarkostnað ef í ljós kemur að rekstrarstuðningur til umsækjanda var of hár. Þetta gæti gerst hvort sem er vegna villu sem upp getur komið í forsendum útreiknings eða vegna orsaka sem rekja má til umsækjanda. Gert er ráð fyrir að úthlutunarnefnd annist undirbúning og framkvæmd vegna endurákvörðunar. Í því skyni skal nefndin afla nauðsynlegra gagna og gefa aðilum kost á að koma sínum sjónarmiðum að áður en ákvörðun verður tekin. Leiði endurákvörðun til lækkunar skal umsækjandi skila þeirri fjárhæð sem umfram er í ríkissjóð innan tíu daga frá því að tilkynnt var um ákvörðunina. Hæfilegt er talið að heimild til endurupptöku við aðstæður sem þessar standi í fjögur ár frá upphaflegri ákvörðun úthlutunarnefndar.

Um 3. gr.

    Unnið hefur verið að endurskoðun á stuðningi til einkarekinna fjölmiðla sem nú er langt komin. Frumvarp þetta, sem fyrst var lagt fram á 156. löggjafarþingi, tekur upp í fjölmiðlalög á ný ákvæði X. kafla B til loka ársins 2026 enda er ráðgert að leggja fram á vorþingi frumvarp um endurskoðaðan stuðning sem jafnframt festir hann í sessi til lengri tíma.

Um 4. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringa.