Ferill 71. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 71 — 71. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera.
Flm.: Halla Hrund Logadóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Sigurður Ingi Jóhannsson.
Alþingi ályktar að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að móta stefnu sem leggur grunn að afmörkun á uppbyggingu vindorkuvera á Íslandi í ljósi áhrifa þeirra á náttúru og vistkerfi. Í stefnunni skal koma fram skýr afmörkun landsvæða þar sem reisa má vindorkuver, hversu umfangsmikil þau megi vera á hverju svæði fyrir sig, hvaða markmið þau eigi að styðja, ásamt sjónarmiðum um eignarhald og áhrif á samfélagið. Stefnan skal leggja grunn að því að uppbygging vindorku sé unnin í skrefum á grunni varúðar og lærdóms með langtímahagsmuni þjóðarinnar í huga.
Greinargerð.
Samanlagt afl vindorkuverkefna í skoðun hér á landi er nú meira en allt uppsett afl raforkukerfisins sem byggst hefur upp á mörgum áratugum. Með vindorkunni birtist nýr veruleiki orkumála í lagaumhverfi ESB þar sem flest verkefni eru í höndum einkaaðila. Þetta breytta eignarhald á grundvallarinnviðum þjóðarinnar hefur birst án þess að nokkur umræða hafi farið fram um það. Til þessa hefur nýting orkuauðlinda á Íslandi skilað samfélaginu beinum arði, m.a. í gegnum fyrirtæki sem eru í eigu þjóðarinnar eða sveitarfélaga. Sú breyting gæti orðið að beinn arður af vindorku fari síður til samfélagsins nema sérstakar reglur séu settar. Þegar um auðlindanýtingu er að ræða er lágmark að útfæra löggjöf þannig að auður streymi áfram til þjóðarinnar. Enn hefur það ekki verið gert og spurningunni um hvort almenningur vilji almennt breyta eignarhaldi á orkuauðlindum hefur heldur ekki verið svarað.
Vindmyllur geta verið allt að 250 m á hæð og hafa því veruleg áhrif á landslag, hljóðvist og fuglalíf. Nýting vindorku er ekki bundin ákveðinni staðsetningu, svo sem við árfarvegi eða á jarðhitasvæðum, og gerir það náttúru landsins afar berskjaldaða. Því er hægt að staðsetja vindorkuver mjög víða og hefur skortur á framtíðarsýn leitt til þess að sprottið hafa upp tugir verkefna sem eru til skoðunar í rammaáætlun. Samþykki landeigenda þarf ekki að liggja fyrir til að virkjunarkostir séu teknir til skoðunar í rammaáætlun eða í umhverfismati sem þýðir að hægt er að setja af stað matsferli án samráðs við þá.
Evrópskt regluverk og löggjöf um raforku, sem Ísland hefur innleitt, leggur áherslu á græna orku og samkeppni í orkumálum en kveður ekki á um hvar vindorkuver skuli staðsett. Það er á ábyrgð hverrar þjóðar að taka afstöðu til slíkrar nýtingar og marka stefnu um staðsetningu. Stjórnmálamenn geta ekki skýlt sér á bak við „frjálsa samkeppni“ sem réttlætingu fyrir því að leyfa vindorkuverum að rísa hvar sem er. Framtíðarsýn á skipulagi þarf að marka.
Til að tryggja ábyrga nýtingu vindorku þarf að skilgreina svæði þar sem hagnýting vindorku er leyfð í stað þess að einblína á að útiloka einstök svæði og skilja stærstan hluta landsins eftir opinn fyrir nýjum vindorkuverkefnum, sem kallar á kapphlaup um auðlindir og deilur í sveitum landsins. Hagkvæmni verkefna þarf einnig að vera tryggð frá upphafi með ítarlegum rannsóknum og mati á vindgæðum, fýsilegri stærð verkefna, aðgengi að flutningskerfi og tengikostnaði við það og þörf fyrir jöfnunarorku, og með raunhæfum áætlunum um hvaðan jöfnunarorkan á að koma. Allir þessir þættir hafa áhrif á orkuverð slíkrar raforkuframleiðslu sem þarf að vera samkeppnishæft fyrir heimili og atvinnulíf. Til að jafna orkuna er betra að vinna slík verkefni í skrefum og hafa þau á örfáum ólíkum stöðum á landinu, því að vindurinn blæs ekki alltaf á sama stað.
Einnig þarf að ljúka við regluverk vindorku á hafi, en erlend orkufyrirtæki sækjast þegar eftir nýtingu hér við land og mikilvægt að við gefum ekki hafsvæði frá okkur án endurgjalds heldur leigjum það gegn gjaldi og til ákveðins tíma líkt og aðrar þjóðir hafa gert. Flest ríki líta nú til vindorku á hafi, m.a. vegna deilna um umhverfisáhrif vindorku á landi.
Hagnýting vindorku til orkuframleiðslu er oft sett í samhengi við orkuskipti, sem skipta sannarlega máli fyrir orkuöryggi og eru brýnt loftslagsmál. Rétt er að raforkan getur nýst í verkefnum sem tengjast orkuskiptum, svo sem við framleiðslu á rafeldsneyti. Raforkan er hins vegar seld á frjálsum markaði og ekki fast í hendi að viðbótarframleiðsla skili sér í ákveðin markmið stjórnvalda – hver svo sem þau kunna að vera. Skapa þarf sérstaka hvata og útfæra löggjöf ef stuðla á að því að einstök markmið náist, hvort sem er að ná markmiðum um orkuskipti eða til að bæta orkuöryggi á einstökum stöðum á landinu og skapa þar atvinnu. Í núverandi kerfi er óvissa um að slík samfélagsleg markmið náist með nýtingu vindorku þó að tækifærið sé fyrir hendi. Áður þarf að útfæra leiðina að markmiðinu, svo sem í löggjöf eða með hvötum.
Flutningsmenn leggja áherslu á mikilvægi þess að standa vel að málum frá upphafi. Fjöldi dæma er um að farið hafi verið í uppbyggingu verkefna án þess að skýr lagarammi hafi verið settur um þau. Erfitt er að breyta slíku eftir á og lagaleg óvissa er skaðleg bæði fyrir þá sem eru með og á móti verkefnum. Við slíkar aðstæður hafa skapast átök sem rista djúpt og engin þörf er á að endurtaka slíkt. Ef vel er staðið að málum getur vindorka orðið mikilvæg viðbót við vatnsafl og jarðhita, sérstaklega yfir vetrartímann þegar lón eru undir álagi, án þess þó að hafa mikil áhrif á náttúruna.