Ferill 104. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 104  —  104. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um mannanöfn, nr. 45/1996 (ættarnöfn o.fl.).

Flm.: Jón Gnarr, Eiríkur Björn Björgvinsson, Grímur Grímsson, Guðbrandur Einarsson, Sigmar Guðmundsson, Ingvar Þóroddsson, María Rut Kristinsdóttir, Pawel Bartoszek.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „eða millinafn“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: millinafn eða kenninafn.
     b.      Í stað orðanna „eða millinafn“ í 3. mgr. kemur: millinafn eða kenninafn.

2. gr.

    2. mgr. 5. gr. laganna orðast svo:
    Þrátt fyrir skilyrði 1. mgr. er manni heimilt að taka upp eiginnafn af erlendum stofni ef sérstakar persónulegar eða menningarlegar ástæður liggja að baki.

3. gr.

    Við 3. mgr. 6. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er einnig heimilt þrátt fyrir skilyrði 2. mgr. að taka upp millinafn af erlendum stofni ef sérstakar persónulegar eða menningarlegar ástæður liggja að baki.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
     a.      Á eftir orðinu „ættarnafn“ í 1. mgr. kemur: eða eftirnafn.
     b.      3. mgr. fellur brott.
     c.      Orðin „eða 3.“ í 5. mgr. falla brott.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                      Kenninöfn geta verið föður- eða móðurnöfn, ættarnöfn eða eftirnöfn.
     b.      1. og 2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Hver maður skal kenna sig til föður eða móður nema hann kjósi að bera ættarnafn eða eftirnafn, sbr. 5. og 8. mgr. Manni er enn fremur heimilt að kenna sig til beggja foreldra sinna eða bera ættarnafn, eða eftirnafn, til viðbótar því að kenna sig til föður eða móður.
     c.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Heimilt er að bera ættarnafn. Sé ættarnafn ekki í þjóðskrá skal fara eins og greinir í 3. gr. Einnig er heimilt að bera eftirnafn. Eftirnafn er kenninafn sem maður getur tekið sér. Hafi eftirnafn gengið mann fram af manni í þrjár kynslóðir telst það vera ættarnafn. Ættarnöfn og eftirnöfn skulu dregin af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en mega þó ekki hafa nefnifallsendingu. Einnig er manni heimilt að taka upp ættarnafn, eða eftirnafn, af erlendum stofni, ef sérstakar persónulegar eða menningarlegar ástæður liggja að baki.

6. gr.

    1. málsl. 1. tölul. 1. mgr. 22. gr. laganna orðast svo: Að semja skrá um eiginnöfn, millinöfn, ættarnöfn og eftirnöfn sem heimil teljast skv. 5., 6. og 8. gr. og er hún nefnd mannanafnaskrá í lögum þessum.

7. gr.

    Við 24. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Ekki er heimilt að taka sér ættarnafn eða eftirnafn sem nú þegar er á mannanafnaskrá nema sérstakar persónulegar eða menningarlegar ástæður liggi að baki.

8. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


I. Tilurð.
    Mál þetta var áður lagt fram á 156. þingi ( 12. mál) og er nú lagt fram óbreytt.
    Lagasetning um mannanöfn á sér langa sögu á Íslandi og enn eldri á Norðurlöndum. Fyrstu lögin sem beinlínis tóku til mannanafna voru lög nr. 31/1913 og samkvæmt þeim var heimilt að taka upp ættarnöfn. Með lögum nr. 54/1925, sem leystu eldri lög af hólmi, voru ættarnöfn hins vegar gerð ólögmæt nema að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Fljótt kom í ljós að þau lög náðu illa þeim markmiðum sem þeim var ætlað, sem voru meðal annars að stemma stigu við upptöku nýrra og tilbúinna ættarnafna og fyrirbyggja að erlend ættarnöfn festu hér rætur með því að gera það að skilyrði að innflytjendur sem sóttu um íslenskan ríkisborgararétt afsöluðu sér ættarnafni sínu en tækju sér þess í stað íslenskt eftirnafn sem samræmdist íslenskum nafnahefðum. Á næstu áratugum voru gerðar nokkrar tilraunir til setningar nýrra nafnalaga, m.a. árin 1955 og 1971. Loks náðist að smíða lagafrumvarp sem sátt ríkti um árið 1991 og það ár tóku gildi lög nr. 37/1991.
    Rétt eins og með löggjöfina frá 1925 varð fljótlega styr um lög nr. 37/1991. Breytt þjóðfélagsskipan og fjölgun innflytjenda á Íslandi varð til þess að fjöldi fólks sem sótti um íslenskan ríkisborgararétt mótmælti þeirri kvöð að þurfa að afsala sér nafni sínu. Varð þetta gjarnan tilefni fréttaumfjallana og frægt er mál Kólumbíumannsins Jorge Ricardo Cabrera Hidalgo sem tók sér nafnið Eilífur Friður Edgarsson þegar hann fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 1993 og valdi hann nafnið sérstaklega til að benda á fáránleika laganna. Í kjölfar mikillar samfélagsumræðu og þeirrar augljósu staðreyndar að það væri vafasamur gjörningur, út frá alþjóðlegum mannréttindum, að þvinga fólk til að breyta nafni sínu voru sett ný lög um mannanöfn, nr. 45/1996. Í greinargerð með frumvarpi til þeirra laga segir um gagnrýni á þágildandi lög:
    „Þessi gagnrýni er að hluta sprottin af því að með lögum nr. 37/1991 var komið á aðhaldi sem ekki var til staðar áður. Flest ákvæði laga nr. 54/1925 höfðu verið þverbrotin um langa hríð og það látið átölulaust en lögum nr. 37/1991 hefur hins vegar verið framfylgt og þau eru auk þess skýrari en lögin frá 1925. Því er stundum haldið fram að það sé þjóðareinkenni Íslendinga að vilja gjarnan setja öðrum reglur en síður fara eftir þeim sjálfir. Ef rétt er þarf það ekki að vekja furðu þótt sumir landsmenn hafi ekki tekið því vel að þurfa nú að fara að settum reglum um mannanöfn.“
    Þá segir einnig í sömu greinargerð að gagnrýni á lög nr. 37/1991 hafi einkum beinst að ákvæði laganna um eiginnöfn. Við undirbúning lagasetningarinnar var sett á stofn sérstök nefnd á vegum dómsmálaráðherra sem ætlað var að leggja drög að breytingu að lögunum. Í skýrslu nefndarinnar segir:
    „Nefndarmenn telja brýnt að unnið sé að varðveislu íslenska mannanafnaforðans og íslenskra nafnasiða en álíta hins vegar að yfirleitt sé farsælla að vinna að því markmiði með fræðslu og áróðri en með lögboði. Nafn manns er einn mikilvægasti þáttur sjálfsímyndar hans og varðar fyrst og fremst einkahagi hans en síður almannahag. Réttur foreldra til að ráða nafni barns síns hlýtur og að vera ríkur en réttur löggjafans til afskipta af nafngjöfum að sama skapi takmarkaður. Sumir nafnsiðir eru þó þess eðlis að þeir snerta ekki síður veigamikla hagsmuni samfélagsins en einkahagi manna og er réttur löggjafans til afskipta af þeim þá meiri en ella. Eins og hér kemur fram síðar lítur nefndin svo á að þetta eigi einkum við um íslenska kenninafnasiðinn.“
    Þá segir í sömu greinargerð að markmið nefndarinnar hafi einkum verið:
    „Að auka frelsi í nafngiftum frá því sem nú er, einkum með því að heimila aðlöguð erlend nöfn, jafnvel þótt þau styðjist ekki við hefð í íslensku máli, og með því að heimila millinöfn, sjá síðar í þessum athugasemdum. Að jafna nafnrétt manna eftir því sem kostur er, m.a. með því að auka rétt erlendra manna sem gerast íslenskir ríkisborgarar. Að stuðla að því að ættarnöfn verði fremur notuð sem millinöfn en sem kenninöfn.“

II. Þróun og samfélagslegar breytingar frá setningu laga nr. 45/1996.
    Aldrei hefur náðst full samfélagsleg sátt um lagalegt umhverfi mannanafna, enda væri slíkt ef til vill óraunhæft markmið. Hafa lög um mannanöfn, nr. 45/1996, löngum verið umdeild, þá einkum hlutverk mannanafnanefndar, sem hefur verið bitbein umræðu sem og gagnrýni á lagalegt umhverfi nafnabreytinga, sérstaklega sú staðreynd að nokkuð þröngar skorður hafa verið settar við nafngjöf barna og upptöku nýrra ættarnafna.
    Þá er óhætt að fullyrða að verulegar samfélagslegar breytingar hafi orðið frá setningu laganna, sérstaklega í lýðfræðilegri samsetningu. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands var hlutfall þeirra sem hér á landi búa, sem teljast af öðrum uppruna en íslenskum, 6,3% árið 1996. Þetta sama hlutfall var orðið 25,2% árið 2022 1 og hefur hækkað síðan.
    Þónokkrar breytingar hafa verið gerðar á mannanafnalögum. Flestar eru þær til komnar vegna breytinga á öðrum lögum, svo sem vegna breytinga á sjálfræðisaldri, viðurkenningar kynræns sjálfræðis, laga um ættleiðingar o.s.frv.
    Þá hafa margsinnis verið lögð fram frumvörp til breytinga á lögum um mannanöfn frá gildistöku núverandi laga, síðast á 154. löggjafarþingi (22. mál) og var það fjórði endurflutningur þess máls. Byggist þessi greinargerð nokkuð á því sem fram kemur í umsögnum sem allsherjar- og menntamálanefnd aflaði í þau skipti sem málið hafði verið lagt fram og breytingartillögum meiri hluta nefndarinnar.

III. Meginefni.
    Frumvarp þetta gengur skemur en framlagt frumvarp til laga á 154. löggjafarþingi (22. mál). Ekki er lagt til að fella úr gildi lög um mannanöfn, nr. 45/1996, og ekki er lagt til að mannanafnanefnd verði lögð niður, þvert á móti myndi vægi hennar aukast og hún öðlast skýrari leiðbeiningar við gerð úrskurða. Ætti það að teljast til mikilla bóta.
    Markmið frumvarpsins er að heimila einstaklingum að taka upp ættarnöfn í frekari mæli en í núgildandi lögum sem og veita heimild til að taka upp svokölluð eftirnöfn sem kenninöfn að ákveðnum skilyrðum uppfylltum sem skilgreind eru í frumvarpinu. Í þessu skyni er nauðsynlegt að mannanafnanefnd taki saman í núverandi mannanafnaskrá bæði ættarnöfn og eftirnöfn. Þær reglur sem myndu gilda um ný kenninöfn yrðu að öllu leyti sambærilegar núverandi umgjörð um málsmeðferð nýrra eiginnafna. Hugtakið eftirnafn er þekkt t.d. í dönsku og sænsku og finnst einnig í íslenskri orðabók. Með því að bæta „eftirnafni“ við sem möguleika er einstaklingum gert kleift að taka upp nýtt kenninafn án þess að eiga eiginlegt eða huglægt tilkall til einhvers sérstaks ættarnafns. Fyrir þessu geta legið ótal persónulegar og menningarlegar ástæður. Þannig geta einstaklingar viljað kenna sig við sérstakan stað á landinu, eins og fordæmi eru fyrir, svo sem Fossberg, Reykfjörð, Vestmann eða Laxness svo að nokkur dæmi séu nefnd. Fari svo að eftirnafn sé nýtt af þremur kynslóðum samfleytt telst það vera orðið ættarnafn og færist á mannanafnaskrá. Það skýtur óneitanlega skökku við að á meðan ný íslensk ættarnöfn eru bönnuð eru nú sum algengustu ættarnöfn á landinu af erlendum stofni og fer þeim hratt fjölgandi í samræmi við fjölda innflytjenda sem flytjast hingað annars staðar frá. Það ættarnafn sem flestir einstaklingar bera á Íslandi er víetnamskt. Það var alveg örugglega ekki upprunalegur tilgangur laganna. Þessi skekkja verður ekki löguð með öðrum hætti en með þeirri lagabreytingu sem hér er mælt fyrir.
    Önnur tillaga frumvarps þessa snýr að heimild mannanafnanefndar til samþykktar eigin-, milli- og kenninafna sem óskað er eftir. Til viðbótar þeim skilyrðum sem tiltekin eru nú í 5. gr. mannanafnalaga verður nefndinni heimilt að samþykkja nöfn eða nafnbreytingar séu fyrir því persónulegar eða menningarlegar ástæður forráðamanna eða umsækjanda.
    Hægt er að setja fram ótal dæmi þar sem slíkt gæti átt við. Til dæmis þar sem einstaklingur vill heiðra uppruna sinn, svo sem með breytingu ritháttar (Simon í stað Símon), breytingu þar sem einstaklingur vill taka upp kenninafn forforeldris sem einstaklingi er sérstaklega kært eða breytingu á nafni þar sem einstaklingur tekur upp nýja lífsskoðun eða trú. Þekkt er dæmi þar sem einstaklingur sem hafði verið ættleiddur og fengið kenninafn sem vísar til stjúpforeldris kynntist síðar á fullorðinsárum blóðfjölskyldu sinni og vildi heiðra uppruna sinn með upptöku ættarnafns hennar en fékk ekki heimild til.

IV. Rétturinn til nafns.
    Réttur til nafns nýtur verndar 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, sbr. 9. gr. stjórnarskipunarlaga, nr. 97/1995, um friðhelgi einkalífs. Jafnframt er viðurkennt í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu að rétturinn til nafns falli undir 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í málum Mentzen gegn Lettlandi frá 7. desember 2004 (mál nr. 71074/01) og Henry Kismoun gegn Frakklandi frá 5. desember 2013 (mál nr. 32265/10). Nafn er nátengt sjálfsmynd og sjálfsvitund fólks og varðar fyrst og fremst einkahagi og persónurétt.
    Þá verður að halda því til haga að eins og rétturinn til trúfrelsis og annars frelsis til orða og athafna er rétturinn til nafns ákaflega persónulegt mál hvers og eins. Fólk kann að vilja tjá lífsskoðanir sínar, heiðra hvert annað eða bera samfélaginu skilaboð sem því kann að þykja mikilvæg með nafni sínu. Rétt eins og með aðrar takmarkanir á frelsi fólks til orða og athafna þurfa að liggja fyrir mjög sterkar ástæður til þess að slíkur réttur sé skertur. Vísa má sem dæmi til dóms Hæstaréttar frá 6. maí 1999 í máli nr. 426/1998 þar sem orðrétt segir í forsendum réttarins:
    „Réttilega er á það bent í héraðsdómi að unnt sé að takmarka athafnafrelsi borgaranna og gera þeim að sæta ákveðnum almennum skilyrðum fyrir athöfnum sínum. Slíkar kvaðir skuli ákvarðaðar með lögum og hafa samfélagslegan tilgang, svo sem að vera til verndar heilsu eða siðgæði og samrýmast lýðræðislegum hefðum samfélagsins. Til þessara takmarkana þurfa því að liggja málefnaleg sjónarmið, en auk þess ber við setningu þeirra að virða jafnræði og stilla þeim í hóf að teknu tilliti til markmiðsins með þeim.“
    Rétt er að árétta að engin ástæða er til að draga úr mikilvægi þess að standa vörð um íslenska tungu og íslenska menningararfleifð. Enda gerir frumvarpið ráð fyrir að áfram starfi mannanafnanefnd og að áfram verði skilyrði fyrir upptöku nafna. Markmið frumvarps þessa er að mæta breyttri samsetningu samfélagsins og að draga úr óþarfahömlum hins opinbera á tjáningar- og athafnafrelsi hins almenna borgara.
    Vissulega er íslensk nafnahefð fyrirbæri sem á sér rætur í menningu okkar sem við sækjum víða að og þannig á íslensk nafnahefð m.a. einnig rætur í danskri, franskri og enskri menningu. Hinn svo kallaði föðurnafnasiður er hvorki einstakur í alþjóðlegu tilliti né séríslenskur. Hann er af germönskum rótum og var útbreiddur um Evrópu. Ættarnöfn eru aftur á móti af rómverskum uppruna og eftir því sem rómverskur siður breiddist norðar aflagðist gamla nafnahefðin en viðhélst hér á landi.
    Andi þessara tillagna að breytingum á lögum um mannanöfn er frjálslyndur. Lögð er áhersla á að fólki sé treyst til að viðhalda þeirri menningu og þeim siðum sem hafa merkingu fyrir það sem hluta af stærri heild. Viljinn til þess að standa vörð um hefðir og venjur verður ekki þvingaður upp á fólk með boðum og bönnum. Íslensk tunga og þar af leiðandi nafnahefð dafnar þegar þeim sem hana nota er treyst til að fara með hana án afskipta og íþyngjandi laga. Á það ekki síst við um lög sem neyða fólk til þess að sækja rétt sinn fyrir dómstólum til þess eins að fá að heita það sem það vill heita.
    Að endingu verður að horfa til þess að núverandi löggjöf mismunar fólki verulega með tilliti til jafnræðis. Þeir borgarar sem eru afkomendur innflytjenda geta, sem stendur, valið milli þess að kenna sig til móður, föður eða halda ættarnafni foreldra sinna. Sá sem ekki er af erlendu bergi brotinn nýtur ekki þessara réttinda. Þá verður einnig að horfa til þess að hverjum sem er er heimilt að setjast tímabundið að erlendis og láta breyta nafni sínu þar, setjast svo aftur að á Íslandi og breyta skráningu á nafni sínu. Ekki hafa allir þess kost að setjast að erlendis, annaðhvort af efnahagslegum eða öðrum persónulegum ástæðum. Þá er vert að geta annars möguleika sem þessi lagabreyting opnar fyrir. Með breytingunni gefst fjölda fólks sem ber framandi erlend nöfn, sem það telur vera sér til trafala, þess kostur að taka sér nöfn sem hljóma íslensk. Ástæður þess að fólk kynni að vilja breyta nafni sínu með þessum hætti eru margvíslegar. Bæði getur það verið vegna þess að nafn þess hljómar ankannalega á íslensku, ellegar að það óskar sér auðveldari aðlögunar og inngildingar í íslenskt samfélag. Því miður eru þess enn dæmi að erlent nafn standi fólki fyrir þrifum í atvinnuleit. Svo geta ástæðurnar líka verið persónulegar, t.d. í tilfelli fólks sem er fætt hér og uppalið en ber nafn eða ættarnafn sem tengist landi sem forfeður þess voru frá en það hefur sjálft enga tengingu við.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Eingöngu er um að ræða breytingu sem kemur til vegna nýrrar skrár um ættarnöfn og eftirnöfn, sbr. breytingar sem lagt er til að gerðar verði á 22. gr. laga um mannanöfn.

Um 2. og 3. gr.

    Ákvæðið er sett til þess að veita mannanafnanefnd heimild til að víkja frá þeim reglum sem settar eru í 5. gr. laganna um að nöfn verði að geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli, þau megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og að þau skuli vera rituð í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þeirra.
    Hér skal áréttað að það er ekki tilgangur þessa ákvæðis að heimila allar umsóknir um skráningar á nýjum nöfnum. Hins vegar er það svo að val fólks á nafni sínu eða barna sinna er afar persónulegur gjörningur og hluti af sjálfsmynd og sjálfsákvörðunarrétti þess. Fólki er því gefinn kostur á að rökstyðja nafnbreytingu sína með öðrum hætti og öðrum rökum en eingöngu málfræðilegum. Rétt er að undirstrika að fyrir þurfa að liggja sérstakar persónulegar eða menningarlegar ástæður. Ekki er nægjanlegt að vísa til þess að viðkomandi umsækjanda finnist nafnið skemmtilegt eða ætli sér með nafngift að koma á framfæri einhverjum stjórnmálalegum eða samfélagslegum skilaboðum, svo eitthvað sé nefnt.

Um 4. og 5. gr.

    Hér er lögð til breyting á ákvæði um kenninöfn. Samkvæmt núgildandi löggjöf er einungis heimilt að bera sem kenninöfn föður- eða móðurnöfn eða þá ættarnöfn. Hér er lagt til að við bætist nýr flokkur nafna, eftirnöfn. Sækir þetta fyrirmynd til fjölda erlendra málsvæða þar sem talað er um eftirnöfn, en þau geta verið af margvíslegum toga. Þannig getur fólk af margvíslegum ástæðum kunnað að vilja bera sérstakt eftirnafn af einhverjum persónulegum ástæðum, án þess að taka sér sérstakt ættarnafn. Gerir þessi breyting það kleift. Eftirnafn getur svo með tíð og tíma unnið sér sess sem ættarnafn. Þetta nýmæli er einnig til þess fallið að einhverjar grundvallarreglur gildi um ættarnöfn og þau haldi sem hugtak efnislegu inntaki sínu. Þessu til stuðnings má vísa til umsagnar Þjóðskrár um frumvarp sem lagt var fram í 22. máli á 154. löggjafarþingi.

Um 6. gr.

    Greinin kveður á um að ættarnöfnum og eftirnöfnum verði bætt við núverandi mannanafnaskrá til viðbótar við núverandi nöfn.

Um 7. gr.

    Ákvæðinu er ætlað að koma í veg fyrir að einstaklingar geti tekið sér ættarnöfn sem nú þegar eru í almennri notkun. Þannig er ætlunin að fólk geti ekki gert sér upp sérstakt ætterni sem það á ekkert tilkall til.

Um 8. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringar.


1     Sjá frétt af heimasíðu Hagstofunnar, Innflytjendur 16,3% íbúa landsins:
hagstofa.is/utgafur/frettasafn/mannfjoldi/mannfjoldi-eftir-bakgrunni-2022/