Ferill 105. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 105  —  105. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023 (stefnumörkun).

Frá innviðaráðherra.



1. gr.

    Í stað orðanna „húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna, byggðamála og sveitarstjórnarmála“ í 1. gr. laganna kemur: innviða.

2. gr.

    2. gr. laganna orðast svo:
    Lög þessi gilda um stefnur á sviði innviða og gerð þeirra ásamt aðgerðaáætlunum, að því marki sem ekki er kveðið á um þær í öðrum lögum.

3. gr.

    1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra leggur fram á Alþingi á hverju kjörtímabili tillögur til þingsályktana um stefnur til fimmtán ára á hverju sviði fyrir sig.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                  Ráðherra skipar stefnuráð, eitt eða fleiri, sem gera tillögur til ráðherra að stefnum og aðgerðaáætlunum að fengnum áherslum ráðherra.
     b.      Í stað orðanna „Ráðin skulu með virku samráði á milli sín gæta að því að tillögur þeirra uppfylli“ í 2. mgr. kemur: Tillögur skv. 1. mgr. skulu uppfylla.
     c.      Í stað orðanna „Ráðin skulu hvert um sig skipuð“ í 3. mgr. kemur: Stefnuráð skal skipað.

5. gr.

    Heiti laganna verður: Lög um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði innviða.

6. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

7. gr.

    Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
     1.      Lög um húsnæðismál, nr. 44/1998: Við lögin bætist ein ný grein, 14. gr. b, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Þingsályktun um húsnæðisstefnu.

                  Ráðherra leggur fyrir Alþingi, innan tveggja ára frá alþingiskosningum, tillögu til þingsályktunar um húsnæðisstefnu til fimmtán ára í senn. Við gerð stefnunnar skal m.a. höfð hliðsjón af upplýsingum á sviði húsnæðismála sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur safnað og húsnæðisáætlunum sveitarfélaga og upplýsingum um framkvæmd þeirra. Húsnæðisstefna skal fela í sér aðgerðaáætlun til fimm ára sem stuðla á að auknu jafnvægi á húsnæðismarkaði, húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum.
     2.      Skipulagslög, nr. 123/2010: 1. mgr. 11. gr. laganna orðast svo:
                  Ráðherra felur Skipulagsstofnun að vinna tillögu að landsskipulagsstefnu, sbr. 10. gr., og setur fram hverjar áherslur landsskipulagsstefnu skuli vera. Ráðherra skal áður en vinna hefst við gerð landsskipulagsstefnu hverju sinni skipa ráðgjafarnefnd sem er Skipulagsstofnun og ráðherra til ráðgjafar og samráðs við gerð tillögunnar. Í ráðgjafarnefnd skulu vera fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga, opinberra stofnana og fagaðila á sviði skipulagsmála.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta, sem samið er í innviðaráðuneytinu, var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi ( 271. mál) en náði þá ekki fram að ganga. Það er nú endurflutt með þeirri breytingu á 3. gr. að tekin er út heimild til að leggja fram eina innviðastefnu í stað sjálfstæðrar stefnu á hverju sviði fyrir sig. Er það í samræmi við tillögu í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á 156. löggjafarþingi. Þá er smávægileg breyting gerð á 4. gr. til að skýrt sé að ráðherra eigi val um hvort skipað sé eitt stefnuráð eða fleiri.
    Með gildistöku laga um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023, í júní 2023, voru lögfest samræmd ákvæði um stefnumörkun á málefnasviði innviðaráðuneytisins. Voru þar sameinuð ákvæði um stefnumörkun í samgöngu-, byggða- og húsnæðismálum og jafnframt gerðar tilteknar breytingar á ákvæðum viðkomandi laga um stefnumörkun á sviði skipulags- og sveitarstjórnarmála til samræmis. Samhliða því voru felld brott þágildandi lög um samgönguáætlun, lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir og ákvæði um stefnumótun á sviði húsnæðismála í lögum um húsnæðismál.
    Samkvæmt lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála skal ráðherra einu sinni á hverju kjörtímabili hið minnsta leggja fyrir Alþingi tillögur til þingsályktunar um samgöngustefnu, húsnæðisstefnu, byggðastefnu, landskipulagsstefnu og stefnu ríkisins um málefni sveitarfélaga til fimmtán ára, auk fimm ára aðgerðaáætlunar á hverju sviði fyrir sig. Þingsályktunartillögur þessar, að undanskilinni stefnu í málefnum sveitarfélaga, skal vinna undir yfirumsjón þriggja ráða: samgönguráðs, byggðamálaráðs og húsnæðis- og skipulagsráðs, sem hvert um sig er skipað tveimur fulltrúum ráðherra og einum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Þær breytingar sem urðu á ráðuneytum og verkaskiptingu þeirra 15. mars 2025 kalla á breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála. Til innviðaráðuneytis færðust þá fjarskiptamál en húsnæðis- og skipulagsmál fluttust til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Eftir þessar breytingar eru á málefnasviði innviðaráðuneytisins samgöngur, fjarskipti, byggðamál og sveitarstjórnarmál. Lögin þurfa að endurspegla þessar breytingar.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála sem nauðsynlegar eru vegna breyttrar verkaskiptingar innan Stjórnarráðsins. Jafnframt felur það í sér næsta skref í samhæfingu stefnumörkunar og áætlanagerðar á málefnasviði innviðaráðuneytisins.
    Í frumvarpinu er lagt til að í stað þess að vísa til stefnumótunar í tilteknum tilgreindum málaflokkum innviðaráðuneytisins verði vísað almennt til stefnumörkunar á málefnasviði þess. Þannig verður komist hjá því að breyta lögunum ef einstakir málaflokkar flytjast á milli ráðuneyta.
    Frumvarpið felur jafnframt í sér enn frekari samhæfingu þessarar stefnumörkunar með því að gefa ráðherra kost á að sameina í einu stefnuráði undirbúning allrar stefnumörkunar á málefnasviði innviðaráðuneytisins.
    Mikil áhersla er lögð á að stefnumörkunin sé samhæfð og byggð á heildstæðri stefnumörkun ráðherra. Eru þar meginmarkmið að innviðir mæti þörfum samfélagsins og að til staðar séu sjálfbærar byggðir og sveitarfélög um land allt. Samnefnarinn er búsetufrelsi, þ.e. að fólk geti búið sér heimili þar sem það helst kýs, í því búsetuformi sem hentar og að það njóti sambærilegra umhverfisgæða, innviða og opinberrar þjónustu hvar sem er á landinu.
    Eftir sem áður er byggt á þeim megináherslum sem legið hafa til grundvallar áætlunum til þessa, þ.e. að stuðla að greiðum, hagkvæmum, öruggum og umhverfislega sjálfbærum samgöngum, traustum fjarskiptainnviðum og jákvæðri byggðaþróun. Brýnt er sem fyrr að framsetning stefnumörkunarinnar sé samræmd og að horft sé til samspils og samhæfingar við aðrar áætlanir þar sem þær eru til staðar, svo sem aðgerðaáætlun um loftslagsmál og heilbrigðisstefnu. Þá verði gætt sérstaklega að samhæfingu við fjármálaáætlun og fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar sem lagðar eru fram á grundvelli laga um opinber fjármál.
    Að lokum eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á lögum um húsnæðismál og skipulagslögum sem leiðir af því að vegna flutnings húsnæðis- og skipulagsmála úr innviðaráðuneytinu í félags- og húsnæðismálaráðuneytið falla ákvæði um gerð húsnæðisstefnu og landskipulagsstefnu brott úr lögum nr. 30/2023.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalli á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.

5. Samráð.
    Frumvarpið er samið í innviðaráðuneytinu í samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, sem tekið hefur við húsnæðis- og skipulagsmálum af innviðaráðuneytinu. Þá voru áform um frumvarpsgerðina kynnt í innra samráði innan stjórnarráðsins. Ekki var talið tilefni til að kynna efni frumvarpsins í ytra samráði þar sem það varðar innra skipulag við stefnumörkun innviðaráðuneytisins.

6. Mat á áhrifum.
    Verði frumvarpið að lögum mun það ekki hafa bein áhrif á tekjur eða útgjöld ríkissjóðs. Talið er að frumvarpið muni auka hagkvæmni og skilvirkni stefnumörkunar á málefnasviði innviðaráðuneytisins og jafnframt stuðla að markvissari undirbúningi hennar. Með aukinni samhæfingu stefna gefst kostur á að hámarka árangur og jákvæð áhrif stefnumótunar, samfélaginu til hagsbóta.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Greinin felur í sér að í stað þess að vísað verði til einstakra málaflokka á málefnasviði innviðaráðuneytisins í markmiðsgrein laganna verði vísað almennt til áætlanagerðar á sviði innviða.

Um 2. gr.

    Lagt er til, sbr. 1. gr., að í stað þess að vísað sé til einstakra málaflokka á málefnasviði innviðaráðuneytisins til að afmarka gildissvið laganna verði vísað almennt til áætlanagerðar ráðuneytisins á sviði innviða en ráðuneytið fer nú með samgöngur, fjarskipti, byggðamál og sveitarstjórnarmál. Sá fyrirvari er þó gerður að lögin taka ekki til stefnumörkunar innviðaráðuneytisins sem kveðið er á um í öðrum lögum, en í því felst m.a. að um stefnumörkun ríkisins í málefnum sveitarfélaga mun áfram fara eftir ákvæðum sveitarstjórnarlaga og um gerð stefnu um net- og upplýsingaöryggi eftir lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

Um 3. gr.

    Lögð er til sú breyting á 1. mgr. 3. gr. laganna að vísað verði almennt til stefnumörkunar á málefnasviði innviðaráðuneytisins í stað þess að tilgreina málaflokkana sérstaklega. Þannig verði komist hjá því að breyta þurfi þessum lögum þó að breytingar séu gerðar á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins.

Um 4. gr.

    Þær breytingar felast í 4. gr. að í stað þess að ráðherra skipi samgönguráð, byggðamálaráð og húsnæðis- og skipulagsráð skipi hann stefnuráð, eitt eða fleiri, sem hafi yfirumsjón með stefnumörkun á málefnasviði innviðaráðuneytisins. Þannig geti ráðherra ákveðið að eitt stefnuráð geri tillögur að stefnum á málefnasviði innviðaráðuneytisins. Með þessu má enn betur stuðla að því að öll stefnumörkun á málefnasviði innviðaráðuneytisins verði samhæfð og styðji við framtíðarsýn og áherslur ráðherra. Stefnuráð skal skipað á sama hátt og núverandi samgönguráð, byggðamálaráð og húsnæðis- og skipulagsráð, þ.e. þremur fulltrúum, tveimur án tilnefningar og einum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Um 5. gr.

    Lagt er til að heiti laga um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála verði breytt í lög um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði innviða. Það mun því ekki kalla á breytingar á lögunum þó að einstakir málaflokkar færist til eða frá innviðaráðuneytinu við breytingar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Um 6. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringar.

Um 7. gr.

    Lagðar eru til breytingar á lögum um húsnæðismál og á skipulagslögum vegna flutnings húsnæðis- og skipulagsmála úr innviðaráðuneytinu í félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Hefur sá flutningur í för með sér að um gerð húsnæðisstefnu og landskipulagsstefnu fer ekki lengur eftir lögum nr. 30/2023.
    Í fyrsta lagi er lagt til að við lög um húsnæðismál bætist nýtt ákvæði um gerð húsnæðisstefnu. Er það að mestu sambærilegt því ákvæði sem fellt var úr lögum um húsnæðismál við gildistöku laga um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023. Þá er efni ákvæðisins samræmt ákvæðum skipulagslaga um gerð landsskipulagsstefnu hvað varðar tímafresti. Þannig er svigrúm ráðherra til að leggja hana fram rýmkað úr einu ári eftir alþingiskosningar í tvö ár og gildistími stefnunnar lengdur úr fjórum árum í fimmtán. Jafnframt er kveðið skýrt á um að húsnæðisstefna skuli fela í sér aðgerðaáætlun til fimm ára um verkefni sem ætlað er að tryggja landsmönnum öruggt húsnæði.
    Í öðru lagi er lagt til að úr skipulagslögum verði felld brott ákvæði um aðkomu húsnæðis- og skipulagsráðs, sem skipað er samkvæmt lögum nr. 30/2023, að undirbúningi landsskipulagsstefnu og í stað þess verði kveðið á um hlutverk Skipulagsstofnunar og skipan ráðgjafarnefndar á svipaðan hátt og gert var fyrir gildistöku laga nr. 30/2023.