Ferill 109. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 109 — 109. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um aflareglu í loðnu og þorski.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
1. Hver var meðalafli loðnu á ári á tímabilinu 2015–2025, þ.e. frá því að núgildandi aflaregla var tekin upp til dagsins í dag?
2. Hver var meðalafli loðnu á ári á tímabilinu 1985–2015, þ.e. frá árinu 1985 þar til núgildandi aflaregla var tekin upp?
3. Hvað má áætla að meðalafli loðnu hefði orðið á ári ef þeirri aflareglu sem gilti fram til ársins 2015 hefði verið beitt, miðað við óbreyttar stofnmælingar frá því ári?
4. Sé niðurstaðan sú að aukinn loðnuafli hefði fengist miðað við forsendur í 3. tölul., hvað má áætla að verðmæti aflans hefði verið?
5. Hvert er samband hrygningarstofns og nýliðunar í loðnustofni?
6. Hverjar eru helstu ástæður þess að þorskafli hefur dregist verulega saman undanfarin ár þrátt fyrir að aðhaldssamri aflareglu hafi verið fylgt?
7. Hver var mæld stofnstærð (viðmiðunarstofn) þorsks á árinu 2019 og hvert var endurmat hans á yfirstandandi ári?
8. Hvernig fer endurmat á stofnstærðum fram?
9. Hvað má ætla að þorskaflinn hefði orðið mikill á síðasta fiskveiðiári ef tekið hefði verið mið af þeirri aflareglu sem gilti fram til ársins 2015?
10. Sé niðurstaðan sú að aukinn þorskafli hefði fengist miðað við forsendur í 9. tölul., hvað hefði sú aflaaukning skilað þjóðarbúinu miklu í útflutningsverðmætum?
11. Hvers vegna hefur ekki orðið öflug nýliðun í þorski síðan árið 1985?
Skriflegt svar óskast.