Ferill 142. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 145 — 142. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um eignir og tekjur landsmanna.
Frá Degi B. Eggertssyni.
1. Hvert var eigið fé þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2024 og hvert var hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna það ár?
2. Hverjar voru heildareignir þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2024 og hvert var hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna það ár?
3. Hverjar voru tekjur tekjuhæstu a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna árið 2024, með og án fjármagnstekna, og hvert var hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna það ár?
4. Hvað áttu tekjuhæstu a) 10%, b) 5%, c) 1%, d) 0,1% landsmanna árið 2024 stóran hluta af annars vegar eigin fé landsmanna og hins vegar heildareignum landsmanna það ár?
Skriflegt svar óskast.