Ferill 89. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 149 — 89. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 (riðuveiki o.fl.).
Frá atvinnuveganefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, þess efnis að unnt sé að innleiða tillögur sem lagðar eru fram í landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu, sameiginlegu stefnuskjali stjórnvalda og bænda.
Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá atvinnuveganefnd með áliti nefndarinnar til 2. umræðu hinn 20. maí sl. ( þskj. 558, 235. mál). Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er það lagt fram óbreytt. Nefndin vísar í umfjöllun sína og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti frá síðasta löggjafarþingi.
Nefndin leggur aftur til sömu tæknilegu breytingar og lagðar voru fram á 156. löggjafarþingi.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við 1. gr.
a. Í stað orðsins „flutningum“, orðsins „hreinsanir“ og orðsins „sjúkdómameðferðir“ í 2. efnismálsl. a-liðar komi: flutningi; hreinsun; og: sjúkdómameðferð.
b. Á eftir orðinu „aflífun“ síðara sinni í 2. efnismálsl. a-liðar komi: dýra.
2. Inngangsmálsliður 4. gr. orðist svo: Við 2. málsl. 1. mgr. 17. gr. laganna bætist.
Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Bergþór Ólason og Lilja Rafney Magnúsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 25. september 2025.
| Sigurjón Þórðarson, form., frsm. |
Bergþór Ólason. | Eiríkur Björn Björgvinsson. |
| Eydís Ásbjörnsdóttir. | Guðrún Hafsteinsdóttir. | Ingvar Þóroddsson. |
| Jón Gunnarsson. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Lilja Rafney Magnúsdóttir. |