Ferill 149. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 153  —  149. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um innheimtu og fyrningu krafna vegna námslána eftir gjaldþrot.

Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.


     1.      Hvert er umfang ófyrndra krafna vegna námslána á hendur einstaklingum sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota, sundurliðað eftir fjölda einstaklinga, fjölda lána og heildarupphæð eftirstöðva, annars vegar á fullu kröfuvirði og hins vegar á bókfærðu virði þegar tekið er mið af væntum afföllum af endurgreiðslu þeirra?
     2.      Hvert hefur umfang annars vegar væntra affalla og hins vegar raunverulegra affalla af endurgreiðslu námslána vegna gjaldþrota lántaka verið frá og með 26. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hverju nemur vaxtaálag sem tekur mið af væntum afföllum af endurgreiðslu námslána, hvernig er það ákvarðað og hverjar hafa tekjur Menntasjóðs námsmanna af innheimtu þess verið frá og með 26. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hversu mörg árangurslaus fjárnám til fullnustu krafna vegna námslána hafa verið gerð frá ársbyrjun 2020 og hversu mörg þar af hjá einstaklingum sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota frá og með 26. júní 2020, sundurliðað eftir árum, fjölda einstaklinga og lána og heildarfjárhæðum krafna?


Skriflegt svar óskast.