Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 171 — 165. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um stuðning til aðgerða í loftslagsmálum.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
Hvaða aðilar fengu hærri greiðslu eða stuðning en 3 millj. kr. á ári til aðgerða í loftslagsmálum árið 2023 annars vegar og 2024 hins vegar og hvaða upphæð fékk hver þeirra? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort um skattstyrki, samgöngubætur, landbætur eða beinar greiðslur var að ræða.
Skriflegt svar óskast.