Ferill 49. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 200 — 49. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við einkarekna fjölmiðla).
Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Fyrsti minni hluti leggst gegn samþykkt frumvarpsins í núverandi mynd og telur að framgangur þess sé ekki til þess fallinn að auka sjálfstæði fjölmiðla og möguleika þeirra til að veita stjórnvöldum og öðrum valdhöfum nauðsynlegt aðhald. Þvert á móti hefur frumvarpið fremur þá ásýnd að verið sé að senda gagnrýnum fjölmiðlum með þróttmikla starfsemi skilaboð um að óánægja ríki um störf þeirra af hálfu ríkisstjórnarinnar.
Rekstrarvandi íslenskra fjölmiðla felst í skakkri samkeppnisstöðu við Ríkisútvarpið, sem nýtur bæði opinberra fjárframlaga og keppir við einkaaðila um sölu auglýsinga. Þetta fyrirkomulag er einsdæmi á Norðurlöndunum og gerir það að verkum að frjálsir fjölmiðlar standa höllum fæti hérlendis. Samanburður frumvarpsins á styrkja- og rekstrarumhverfi fjölmiðla á Norðurlöndunum er því villandi, enda er þar hvergi minnst á þessa sérstöðu Ríkisútvarpsins.
Það að gera fjölmiðla fjárhagslega háða hinu opinbera veikir aðhaldshlutverk þeirra, dregur úr óhæði gagnvart stjórnvöldum og eykur freistnivanda þeirra stjórnmálamanna sem vilja hlutast til um fjölmiðlun í landinu.
Markmið frumvarpsins er sagt vera að styðja með fyrirsjáanlegum hætti við einkarekna fjölmiðla, en í því felst þó einskiptisheimild til styrkveitingar sem rennur út næstkomandi áramót og felur það helst í sér að hámarksstyrkir umsækjenda verða lækkaðir úr 25% í 22% af heildarframlagi. Ljóst er að sú breyting mun lækka styrkveitingar til tveggja stærstu fjölmiðlanna, sem helst geta veitt Ríkisútvarpinu samkeppni og eru í sterkustu stöðunni til að veita stjórnvöldum aðhald.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að yfirstandi vinna við endurskoðun á kafla laganna um stuðning við einkarekna fjölmiðla, sem upphaflega átti að leggja fyrir þetta haustþing en hefur nú verið frestað til næsta vorþings. Þá hefur ráðherra boðað endurskoðun á heimildum Ríkisútvarpsins til birtingar á auglýsingum. Þessi áform – verði þau skynsamlega útfærð – eru mun frekar til þess fallin að styrkja sjálfstæða og öfluga fjölmiðlun í landinu, lýðræðislega umræðu og íslenska menningu.
Af þessum sökum og í ljósi skamms gildistíma frumvarpsins leggst 1. minni hluti harðlega gegn lækkun þaks hámarksstyrkja, ellegar er hætt við því að þingið sendi þau skilaboð að fjölmiðlum hefnist fyrir að veita stjórnvöldum aðhald, sérstaklega í ljósi umræðna um pólitískan þrýsting á ráðherra málaflokksins.
Breytingartillaga.
Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Í stað hlutfallstölunnar „22%“ í 1. mgr. f-liðar 2. gr. komi: 25%.
Alþingi, 15. október 2025.
| Sigurður Örn Hilmarsson, frsm. |
Jón Pétur Zimsen. | Snorri Másson. |