Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 201 — 186. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um lífeyris- og meðlagsgreiðslur til erlendra ríkisborgara.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Hversu margir erlendir ríkisborgarar hafa notið lífeyris- og meðlagsgreiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins árin 2010–2025? Svar óskast sundurliðað eftir tegund lífeyris, upprunalandi og kyni.
2. Hversu margar nýjar umsóknir frá erlendum ríkisborgurum um lífeyris- og/eða meðlagsgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins hafa verið samþykktar árlega árin 2010–2025? Svar óskast sundurliðað eftir tegund lífeyris, upprunalandi og kyni.
3. Hver er árleg heildarfjárhæð lífeyris- og meðlagsgreiðslna sem greiddar hafa verið til annars lands árin 2010–2025? Svar óskast sundurliðað eftir tegund lífeyris, upprunalandi og kyni.
Skriflegt svar óskast.