Ferill 142. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 212 — 142. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um eignir og tekjur landsmanna.
Svörin við fyrirspurninni byggjast á skattframtalsgögnum einstaklinga fyrir tekjuárin 1998–2024 frá embætti ríkisskattstjóra. Gögnunum er raðað eftir fjölskyldunúmeri framtals. Tveir samskattaðir aðilar teljast saman sem ein fjölskylda, óháð því hvort um er að ræða hjón eða samskattað par. Einhleypur aðili, þ.m.t. einstætt foreldri, telst sem ein fjölskylda og ósamskattað par í sambúð telst sem tvær fjölskyldur. Vert er að hafa í huga að þar sem hér er stuðst við skattframtöl telst unglingur í foreldrahúsum í þessari röðun sem ein fjölskylda frá og með 16 ára aldri þrátt fyrir að sami unglingurinn komi fram sem barn á framfæri framteljanda á öðru framtali. Þar sem flestir í þeim hópi eiga litlar eignir og hafa lágar eða engar tekjur hafa þeir ekki teljandi áhrif á tölulegar niðurstöður varðandi þann hóp sem á mestar eignir eða hefur hæstar tekjur. Öðru máli gegndi ef um væri að ræða tölur um heildardreifingu eigna og tekna eða meðaltöl og miðgildi framteljenda. Í svarinu eru því taldir saman allir framteljendur í skilningi skattalaga.
Í gögnunum eru einnig meðtaldir þeir einstaklingar sem búa hér hluta úr ári eða hafa flust hingað til lands á árinu, eða handreiknaðir eins og sá hópur er oft nefndur sökum þess að sérfræðingar Skattsins þurfa að handreikna álagningu þeirra. Skattframtölum þessara einstaklinga er að einhverju leyti ábótavant og er algeng ástæða fyrir handreikningi búseta erlendis hluta úr ári. Á árinu 2024 voru samtals 276.323 fjölskyldur í gögnum ríkisskattstjóra miðað við framangreinda skilgreiningu á framteljendum. Samkvæmt niðurstöðum álagningar ársins 2025 vegna tekjuársins 2024 námu heildareignir framteljenda 12.436 milljörðum kr., eigið fé framteljenda var 9.212 milljarðar kr. og heildartekjur framteljenda voru 3.136 milljarðar króna með fjármagnstekjum en 2.794 milljarðar kr. án fjármagnstekna. Allar fjárhæðir í svarinu eru settar fram á verðlagi hvers árs.
Gæði gagnanna eru að mestu leyti óbreytt yfir þann tíma sem hér um ræðir með þeirri undantekningu þó að á framtali 2009 voru innstæður og vextir af innstæðum forskráð í fyrsta sinn á skattframtöl og hafa verið það síðan. Þetta varð til þess að innstæður og vextir af innstæðum hækkuðu gríðarlega á milli framtala 2008 og 2009. Það hafði hins vegar ekki afgerandi áhrif á hlutfallstölurnar á þessum tíma. Þá er rétt að taka fram að hlutabréf eru talin á nafnvirði í þessum gögnum og fasteignir eru taldar á fasteignamatsverði eins og þessar eignir eru færðar í skattframtölum. Þá skal sérstaklega tekið fram að uppsöfnuð lífeyrisréttindi eru ekki talin fram sem eignir á skattframtali og eru þau því ekki talin með í þessum útreikningum þótt lífeyrisréttindi séu með verðmætustu eignum hvers einstaklings.
1. Hvert var eigið fé þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2024 og hvert var hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna það ár?
Eigið fé þeirra 5% framteljenda sem áttu mestar eignir við árslok 2024 var 3.205 milljarðar kr. samkvæmt niðurstöðum álagningar 2024. Hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra framteljenda var 34,8% og er það 11,3 prósentustigum lægra en tíu árum áður. Eigið fé þess 1% framteljenda sem mestar eignir áttu við árslok 2024 var 1.314 milljarðar kr. Hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra framteljenda var 14,3% og er það 6,4 prósentustigum lægra en tíu árum áður. Eigið fé þess 0,1% framteljenda sem mest áttu við lok árs 2024 var 391 milljarðar kr. Hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra framteljenda var 4,2% og er það 2,7 prósentustigum lægra en tíu árum áður. Sambærilegur tölur aftur til ársins 1998 er að finna í töflu 1.
Tafla 1. Upphæð og hlutfall eigin fjár þeirra framteljenda sem mest áttu af heildareiginfé 1998–2024, raðað eftir heildareignum.
| Efstu 5% | Efsta 1% |
Efsta 0,1% | ||||
| Ár | Eigið fé, m.kr. | Hlutfall af heild | Eigið fé, m.kr. | Hlutfall af heild | Eigið fé, m.kr. | Hlutfall af heild |
| 1998 | 228.350 | 38,5% | 99.660 | 16,8% | 29.352 | 4,9% |
| 1999 | 259.070 | 38,0% | 113.422 | 16,6% | 32.538 | 4,8% |
| 2000 | 286.654 | 37,7% | 124.563 | 16,4% | 37.231 | 4,9% |
| 2001 | 318.178 | 37,1% | 137.221 | 16,0% | 39.348 | 4,6% |
| 2002 | 346.316 | 38,1% | 155.928 | 17,1% | 49.443 | 5,4% |
| 2003 | 390.889 | 38,6% | 180.944 | 17,9% | 60.941 | 6,0% |
| 2004 | 445.154 | 38,1% | 201.653 | 17,2% | 64.114 | 5,5% |
| 2005 | 571.814 | 37,2% | 254.767 | 16,6% | 79.922 | 5,2% |
| 2006 | 695.255 | 40,7% | 328.875 | 19,3% | 112.685 | 6,6% |
| 2007 | 885.999 | 43,6% | 447.733 | 22,0% | 174.226 | 8,6% |
| 2008 | 931.468 | 47,2% | 474.197 | 24,0% | 173.848 | 8,8% |
| 2009 | 963.405 | 50,4% | 480.084 | 25,1% | 170.799 | 8,9% |
| 2010 | 894.334 | 56,3% | 448.976 | 28,3% | 162.119 | 10,2% |
| 2011 | 943.132 | 50,9% | 443.241 | 23,9% | 155.020 | 8,4% |
| 2012 | 1.010.625 | 48,7% | 470.267 | 22,7% | 167.120 | 8,1% |
| 2013 | 1.051.922 | 47,8% | 482.697 | 21,9% | 168.667 | 7,7% |
| 2014 | 1.126.162 | 46,1% | 506.336 | 20,7% | 167.754 | 6,9% |
| 2015 | 1.249.385 | 44,4% | 559.353 | 19,9% | 186.879 | 6,6% |
| 2016 | 1.388.292 | 43,5% | 612.632 | 19,2% | 201.323 | 6,3% |
| 2017 | 1.646.667 | 42,0% | 718.550 | 18,3% | 236.596 | 6,0% |
| 2018 | 1.864.000 | 40,8% | 802.139 | 17,6% | 260.224 | 5,7% |
| 2019 | 1.998.910 | 40,1% | 864.983 | 17,3% | 282.236 | 5,7% |
| 2020 | 2.076.087 | 39,2% | 902.242 | 17,0% | 292.957 | 5,5% |
| 2021 | 2.275.028 | 38,7% | 987.544 | 16,8% | 322.485 | 5,5% |
| 2022 | 2.662.627 | 36,0% | 1.109.156 | 15,0% | 353.271 | 4,8% |
| 2023 | 3.011.576 | 34,7% | 1.232.732 | 14,2% | 382.125 | 4,4% |
| 2024 | 3.205.208 | 34,8% | 1.314.298 | 14,3% | 390.739 | 4,2% |
2. Hverjar voru heildareignir þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2024 og hvert var hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna það ár?
Heildareignir þeirra 5% framteljenda sem áttu mestar eignir í lok árs 2024 samkvæmt skattframtölum voru 3.503 milljarðar kr. Hlutfall eigna þeirra af heildareignum allra framteljenda var 28,2% og er það 3,1 prósentustigum lægra en tíu árum áður. Heildareignir þess 1% framteljenda sem mestar eignir áttu í lok árs 2024 voru 1.363 milljarðar kr. Það svarar til 11,0% af heildareignum allra framteljenda sem er 2 prósentustigum lægra en tíu árum áður. Heildareignir þess 0,1% framteljenda sem mestar eignir áttu í lok árs 2024 voru 400 milljarðar kr. eða sem nam 3,2% af heildareignum og er það 1 prósentustigi lægra en tíu árum áður. Sambærilegar tölur aftur til ársins 1998 koma fram í töflu 2.
Tafla 2. Upphæð og hlutfall eigna þeirra framteljenda sem mestar eignir áttu 1998–2024.
| Efstu 5% | Efsta 1% |
Efsta 0,1% | ||||
| Ár | Heildareignir, m.kr. | Hlutfall af heild | Heildareignir, m.kr. | Hlutfall af heild | Heildareignir, m.kr. | Hlutfall af heild |
| 1998 | 271.489 | 28,3% | 115.708 | 12,1% | 35.299 | 3,7% |
| 1999 | 302.888 | 27,6% | 125.126 | 11,4% | 35.570 | 3,2% |
| 2000 | 341.328 | 27,6% | 140.171 | 11,3% | 41.876 | 3,4% |
| 2001 | 379.203 | 27,0% | 154.552 | 11,0% | 45.720 | 3,3% |
| 2002 | 406.230 | 27,1% | 169.783 | 11,3% | 52.777 | 3,5% |
| 2003 | 459.505 | 27,5% | 196.977 | 11,8% | 64.891 | 3,9% |
| 2004 | 534.942 | 27,8% | 225.007 | 11,7% | 70.273 | 3,6% |
| 2005 | 700.350 | 28,5% | 292.425 | 11,9% | 90.397 | 3,7% |
| 2006 | 868.991 | 30,8% | 382.162 | 13,6% | 128.595 | 4,6% |
| 2007 | 1.119.197 | 33,1% | 523.029 | 15,5% | 195.915 | 5,8% |
| 2008 | 1.196.965 | 32,7% | 554.000 | 15,1% | 200.779 | 5,5% |
| 2009 | 1.233.236 | 32,4% | 561.351 | 14,8% | 197.110 | 5,2% |
| 2010 | 1.133.966 | 32,7% | 517.756 | 14,9% | 183.550 | 5,3% |
| 2011 | 1.148.891 | 31,8% | 500.980 | 13,9% | 169.389 | 4,7% |
| 2012 | 1.216.785 | 31,5% | 523.679 | 13,6% | 180.929 | 4,7% |
| 2013 | 1.255.310 | 31,5% | 531.540 | 13,3% | 181.580 | 4,6% |
| 2014 | 1.319.381 | 31,3% | 547.868 | 13,0% | 174.887 | 4,2% |
| 2015 | 1.436.353 | 31,7% | 596.807 | 13,2% | 191.418 | 4,2% |
| 2016 | 1.578.257 | 31,8% | 654.087 | 13,2% | 208.293 | 4,2% |
| 2017 | 1.851.952 | 32,0% | 758.641 | 13,1% | 241.358 | 4,2% |
| 2018 | 2.091.545 | 31,8% | 843.830 | 12,8% | 265.618 | 4,0% |
| 2019 | 2.231.966 | 31,2% | 905.327 | 12,6% | 289.100 | 4,0% |
| 2020 | 2.316.459 | 30,2% | 944.018 | 12,3% | 299.532 | 3,9% |
| 2021 | 2.530.473 | 29,8% | 1.030.811 | 12,1% | 327.343 | 3,9% |
| 2022 | 2.954.149 | 28,8% | 1.158.784 | 11,3% | 358.892 | 3,5% |
| 2023 | 3.314.005 | 28,3% | 1.287.796 | 11,0% | 391.940 | 3,3% |
| 2024 | 3.502.615 | 28,2% | 1.363.499 | 11,0% | 400.365 | 3,2% |
3. Hverjar voru tekjur tekjuhæstu a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna árið 2024, með og án fjármagnstekna, og hvert var hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna það ár?
Heildartekjur með fjármagnstekjum samkvæmt skattframtölum hjá tekjuhæstu 5% framteljenda voru 647 milljarðar kr. árið 2024. Hlutfall tekna þeirra af heildartekjum allra framteljenda var 20,6% og er það 1,4 prósentustigum lægra en tíu árum áður. Heildartekjur með fjármagnstekjum hjá tekjuhæsta 1% framteljenda voru 274 milljarðar kr. Hlutfall tekna þeirra af öllum tekjum var 8,7% og er það 0,1 prósentustigi hærra en tíu árum áður. Þá voru heildartekjur hjá tekjuhæsta 0,1% framteljenda samtals 104 milljarðar kr. Hlutfall tekna þeirra af heildartekjum var 3,3% og er það 0,3 prósentustigum hærra en tíu árum áður.
Tafla 3. Upphæð og hlutfall heildartekna með fjármagnstekjum hjá tekjuhæsta hluta framteljenda 1998–2024.
| Efstu 5% | Efsta 1% |
Efsta 0,1% |
||||
| Ár | Heildartekjur, m.kr. |
Hlutfall af heild |
Heildartekjur, m.kr. |
Hlutfall af heild |
Heildartekjur, m.kr. |
Hlutfall af heild |
|
1998 |
66.997 | 18,6% | 21.672 | 6,0% | 4.845 | 1,3% |
| 1999 | 78.534 | 19,2% | 26.223 | 6,4% | 6.187 | 1,5% |
| 2000 | 90.940 | 19,7% | 32.223 | 7,0% | 8.795 | 1,9% |
| 2001 | 106.117 | 20,6% | 41.584 | 8,1% | 15.384 | 3,0% |
| 2002 | 118.497 | 21,4% | 49.008 | 8,9% | 20.608 | 3,7% |
| 2003 | 138.711 | 23,2% | 64.270 | 10,8% | 31.104 | 5,2% |
| 2004 | 153.350 | 23,4% | 68.055 | 10,4% | 25.820 | 3,9% |
| 2005 | 209.261 | 27,2% | 110.690 | 14,4% | 48.628 | 6,3% |
| 2006 | 257.266 | 28,5% | 137.487 | 15,2% | 60.248 | 6,7% |
| 2007 | 366.171 | 33,2% | 222.967 | 20,2% | 112.446 | 10,2% |
| 2008 | 288.565 | 26,0% | 133.520 | 12,0% | 46.011 | 4,1% |
| 2009 | 246.970 | 23,3% | 104.425 | 9,9% | 37.208 | 3,5% |
| 2010 | 201.874 | 20,5% | 70.351 | 7,2% | 19.226 | 2,0% |
| 2011 | 217.645 | 20,7% | 73.711 | 7,0% | 18.931 | 1,8% |
| 2012 | 234.075 | 21,0% | 81.119 | 7,3% | 21.321 | 1,9% |
| 2013 | 258.041 | 21,5% | 94.655 | 7,9% | 28.139 | 2,3% |
| 2014 | 285.346 | 22,0% | 111.236 | 8,6% | 38.773 | 3,0% |
| 2015 | 308.336 | 22,0% | 116.952 | 8,3% | 35.167 | 2,5% |
| 2016 | 349.911 | 22,2% | 138.776 | 8,8% | 48.899 | 3,1% |
| 2017 | 397.307 | 22,6% | 165.292 | 9,4% | 63.739 | 3,6% |
| 2018 | 394.168 | 21,1% | 146.834 | 7,9% | 45.521 | 2,4% |
| 2019 | 411.277 | 21,0% | 152.353 | 7,8% | 48.275 | 2,5% |
| 2020 | 428.773 | 21,0% | 160.977 | 7,9% | 53.908 | 2,6% |
| 2021 | 513.227 | 22,8% | 223.907 | 9,9% | 93.598 | 4,2% |
| 2022 | 545.342 | 21,6% | 228.156 | 9,0% | 87.112 | 3,5% |
| 2023 | 597.710 | 20,9% | 249.901 | 8,8% | 94.955 | 3,3% |
| 2024 | 646.886 | 20,6% | 274.062 | 8,7% | 103.978 | 3,3% |
Heildartekjur án fjármagnstekna hjá tekjuhæstu 5% framteljenda voru 458 milljarðar kr. árið 2024. Hlutfall þeirra af tekjum allra framteljenda (án fjármagnstekna) var 16,4% og er það 2,7 prósentustigum lægra en tíu árum áður. Heildartekjur án fjármagnstekna hjá tekjuhæsta 1% framteljenda voru 137 milljarðar kr. eða sem svaraði til 4,9% af heildartekjum framteljenda (án fjármagnstekna) en það er 0,9 prósentustigum lægra en tíu árum áður. Heildartekjur án fjármagnstekna hjá tekjuhæsta 0,1% framteljenda voru 26 milljarðar kr. Hlutfall þeirra af tekjum allra framteljenda (án fjármagnstekna) var 0,9% og er það 0,2 prósentustigum lægra en tíu árum áður. Sambærilegar tölur aftur til ársins 1998 er að finna í töflu 4.
Tafla 4. Upphæð og hlutfall heildartekna án fjármagnstekna hjá tekjuhæsta hluta framteljenda 1998–2024.
| Efstu 5% | Efsta 1% | Efsta 0,1% | ||||
| Ár | Tekjur án fjármagnstekna, m.kr. | Hlutfall af heild | Tekjur án fjármagnstekna, m.kr. | Hlutfall af heild | Tekjur án fjármagnstekna, m.kr. | Hlutfall af heild |
| 1998 | 60.323 | 17,5% | 17.549 | 5,1% | 3.190 | 0,9% |
| 1999 | 66.840 | 17,4% | 19.128 | 5,0% | 3.120 | 0,8% |
| 2000 | 74.571 | 17,5% | 21.671 | 5,1% | 3.769 | 0,9% |
| 2001 | 82.241 | 17,4% | 23.302 | 4,9% | 3.790 | 0,8% |
| 2002 | 89.664 | 17,7% | 25.973 | 5,1% | 4.778 | 0,9% |
| 2003 | 94.730 | 17,8% | 27.794 | 5,2% | 4.991 | 0,9% |
| 2004 | 104.895 | 18,1% | 31.697 | 5,5% | 6.232 | 1,1% |
| 2005 | 119.925 | 18,6% | 38.150 | 5,9% | 9.177 | 1,4% |
| 2006 | 140.442 | 19,1% | 45.783 | 6,2% | 11.250 | 1,5% |
| 2007 | 171.639 | 20,3% | 62.240 | 7,4% | 19.735 | 2,3% |
| 2008 | 180.983 | 19,9% | 59.871 | 6,6% | 14.239 | 1,6% |
| 2009 | 175.460 | 19,2% | 53.418 | 5,9% | 10.756 | 1,2% |
| 2010 | 173.744 | 19,0% | 52.169 | 5,7% | 10.430 | 1,1% |
| 2011 | 191.841 | 19,5% | 57.271 | 5,8% | 10.431 | 1,1% |
| 2012 | 202.984 | 19,4% | 61.046 | 5,8% | 11.187 | 1,1% |
| 2013 | 216.772 | 19,4% | 66.734 | 6,0% | 13.636 | 1,2% |
| 2014 | 229.779 | 19,1% | 69.855 | 5,8% | 13.756 | 1,1% |
| 2015 | 251.739 | 19,3% | 78.548 | 6,0% | 16.798 | 1,3% |
| 2016 | 273.321 | 18,9% | 83.109 | 5,7% | 15.899 | 1,1% |
| 2017 | 298.780 | 18,6% | 91.678 | 5,7% | 18.845 | 1,2% |
| 2018 | 323.962 | 18,6% | 98.705 | 5,7% | 19.689 | 1,1% |
| 2019 | 337.655 | 18,4% | 100.814 | 5,5% | 18.570 | 1,0% |
| 2020 | 354.100 | 18,4% | 107.165 | 5,6% | 21.341 | 1,1% |
| 2021 | 377.412 | 18,3% | 117.079 | 5,7% | 24.975 | 1,2% |
| 2022 | 404.395 | 17,6% | 122.801 | 5,3% | 23.523 | 1,0% |
| 2023 | 437.806 | 17,0% | 133.505 | 5,2% | 26.498 | 1,0% |
| 2024 | 457.769 | 16,4% | 136.753 | 4,9% | 26.382 | 0,9% |
4. Hvað áttu tekjuhæstu a) 10%, b) 5%, c) 1%, d) 0,1% landsmanna árið 2024 stóran hluta af annars vegar eigin fé landsmanna og hins vegar heildareignum landsmanna það ár?
Tekjuhæstu 10% framteljenda samkvæmt skattframtölum áttu í lok árs 2024 samanlagt 36,6 % af eigin fé allra framteljenda, 1,6 prósentustigum lægra en tíu árum áður, og 34,7% af heildareignum, sem er hækkun um 3,5 prósentustig á sama tímabili. Tekjuhæstu 5% framteljenda í lok árs 2024 áttu samanlagt 23,8% af eigin fé allra framteljenda, 0,4 prósentustigi lægra en tíu árum áður, og 21,4% af heildareign allra, sem er hækkun um 1,6 prósentustig á sama tímabili. Tekjuhæsta 1% framteljenda átti við lok árs 2024 samanlagt 8,9% af eigin fé allra framteljenda, 1,8 prósentustigum lægra en tíu árum áður, og 7,2% af heildareignum, sem er lækkun um 0,2 prósentustig á sama tímabili. Tekjuhæsta 0,1% framteljenda átti við lok árs 2024 samanlagt 2% af eigin fé allra framteljenda, 1,5 prósentustigum lægra en tíu árum áður, og sem nemur 1,5% af heildareignum allra framteljenda, sem er lækkun um 0,6 prósentustig á sama tímabili. Sambærilegar tölur aftur til ársins 1998 er að finna í töflu 5.
Tafla 5. Hlutfall eigin fjár af heild og hlutfall heildareigna af heild hjá tekjuhæsta hluta framteljenda 1998–2024.
| Ár | Eigið fé | Heildareignir | Eigið fé | Heilareignir | Eigið fé | Heildareignir | Eigið fé | Heildareignir |
| 1998 | 30,1% | 28,5% | 20,7% | 18,4% | 9,3% | 7,5% | 3,1% | 2,3% |
| 1999 | 31,8% | 29,1% | 22,2% | 18,9% | 9,7% | 7,4% | 2,8% | 1,9% |
| 2000 | 32,1% | 29,3% | 21,8% | 18,7% | 9,7% | 7,4% | 2,8% | 2,0% |
| 2001 | 30,6% | 28,5% | 20,5% | 17,9% | 9,1% | 6,9% | 2,9% | 1,9% |
| 2002 | 31,0% | 28,3% | 21,4% | 18,1% | 10,0% | 7,3% | 3,9% | 2,6% |
| 2003 | 33,0% | 29,7% | 23,2% | 19,3% | 10,9% | 8,0% | 3,9% | 2,7% |
| 2004 | 34,5% | 30,7% | 24,2% | 20,1% | 10,7% | 8,2% | 2,9% | 2,2% |
| 2005 | 36,0% | 32,1% | 25,3% | 21,3% | 11,2% | 8,9% | 3,1% | 2,5% |
| 2006 | 40,2% | 35,0% | 28,7% | 23,6% | 13,5% | 10,4% | 3,7% | 3,0% |
| 2007 | 43,4% | 37,6% | 32,1% | 26,1% | 16,3% | 12,2% | 6,1% | 4,2% |
| 2008 | 45,9% | 37,3% | 34,4% | 25,6% | 17,9% | 11,8% | 5,6% | 3,6% |
| 2009 | 43,0% | 34,7% | 32,4% | 23,5% | 17,0% | 10,4% | 5,9% | 3,2% |
| 2010 | 38,8% | 31,9% | 28,2% | 20,7% | 15,3% | 8,8% | 5,9% | 3,0% |
| 2011 | 35,5% | 30,6% | 23,9% | 19,1% | 11,0% | 7,2% | 4,4% | 2,5% |
| 2012 | 35,3% | 30,6% | 24,2% | 19,2% | 10,8% | 7,2% | 4,2% | 2,4% |
| 2013 | 35,9% | 31,3% | 24,8% | 19,8% | 11,4% | 7,6% | 4,0% | 2,4% |
| 2014 | 35,0% | 31,2% | 24,3% | 19,8% | 10,7% | 7,4% | 3,5% | 2,1% |
| 2015 | 35,8% | 32,2% | 24,7% | 20,6% | 10,6% | 7,6% | 2,9% | 1,9% |
| 2016 | 36,2% | 32,9% | 24,8% | 21,0% | 10,6% | 7,8% | 3,0% | 2,1% |
| 2017 | 36,7% | 34,0% | 24,9% | 21,6% | 10,7% | 8,2% | 3,4% | 2,4% |
| 2018 | 36,1% | 33,9% | 23,9% | 21,2% | 9,4% | 7,4% | 2,3% | 1,7% |
| 2019 | 35,0% | 33,1% | 23,2% | 20,6% | 9,1% | 7,2% | 2,6% | 1,9% |
| 2020 | 33,6% | 32,0% | 22,1% | 19,8% | 8,9% | 7,0% | 2,2% | 1,6% |
| 2021 | 34,3% | 32,3% | 22,9% | 20,2% | 9,4% | 7,3% | 2,2% | 1,6% |
| 2022 | 34,4% | 32,8% | 22,3% | 20,1% | 8,0% | 6,6% | 1,7% | 1,3% |
| 2023 | 35,6% | 34,0% | 23,0% | 20,9% | 8,5% | 7,1% | 1,9% | 1,5% |
| 2024 | 36,6% | 34,7% | 23,8% | 21,4% | 8,9% | 7,2% | 2,0% | 1,5% |