Ferill 141. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 216  —  141. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um uppbyggingu flugvalla til varna landsins.


     1.      Hefur ráðuneytið mótað stefnu varðandi uppbyggingu flugvalla með tilliti til varna landsins?
    Flugvallamál eru á ábyrgðarsviði innviðaráðherra og varnarmál á ábyrgðarsviði utanríkisráðherra. Vegna mikils kostnaðar við flugvelli er nauðsynlegt að leggja samhliða mat á framkvæmdir út frá varnarþörfum og borgaralegum notum. Mótun stefnu um uppbyggingu flugvalla til varna landsins getur því ekki verið eingöngu í höndum innviðaráðuneytisins. Rétt er að benda á að í tillögu að samgönguáætlun frá því í október 2023 er gert ráð fyrir að gerð verði flugvélaakbraut og flughlað á Egilsstöðum og uppsetningu aðflugsljósa á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík. Þetta eru framkvæmdir sem gagnast vörnum landsins. Þá er í undirbúningi endurskoðun á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar með aðkomu fulltrúa utanríkisráðuneytisins. Annar undirbúningur að flugvallaframkvæmdum sem farið hefur verið í eru rannsóknir í Hvassahrauni.

     2.      Hvaða flugvellir sér ráðherra fyrir sér að gætu hentað varðandi uppbyggingu með tilliti til varna landsins?
    Aukin afkastageta á öllum þeim millilandaflugvöllum sem fyrir eru kemur til greina. Eins og fyrr segir eru varnir landsins á sviði utanríkisráðuneytisins.

     3.      Væri hægt að fjármagna slíka uppbyggingu flugvalla með hluta af 1,5% landsframleiðslu sem ætlað er að verja til uppbyggingar innviða vegna öryggis- og varnarmála?
    Innviðaráðherra sér því ekkert til fyrirstöðu.

     4.      Sér ráðherra fyrir sér að uppbygging flugvallanna verði bæði í þágu hernaðarlegra þarfa og almennra nota, svo sem í almennu millilandaflugi?
    Eins og fyrr segir telur innviðaráðherra nauðsynlegt að leggja samhliða mat á flugvallaframkvæmdir út frá varnarþörfum og borgaralegum notum. Ef hægt er að samnýta fjárfestinguna er það betri meðferð á fjármunum.