Ferill 116. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 217 — 116. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um tölfræði innflytjenda.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ráðherra innflytjendamála í hyggju að láta taka saman tölfræði, líkt og dönsk stjórnvöld gera með Det nationale integrationsbarometer:
a. um framlag fólks til hins opinbera eftir þjóðerni,
b. um útgjöld hins opinbera til fólks eftir þjóðerni,
c. um þróun ráðstöfunartekna og eigna og skulda eftir þjóðerni?
Ráðherra hyggst kanna með hvaða hætti best sé að afla þeirra upplýsinga sem fyrirspurnin lýtur að, m.a. með hliðsjón af því hvernig slíkar upplýsingar hafa verið teknar saman á Norðurlöndum sem og með hliðsjón af þeim upplýsingum sem þegar eru teknar saman í þessu sambandi hér á landi.