Ferill 193. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 218 — 193. mál.
Skýrsla
frá forsætisráðherra um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland á árinu 2024.
Skýrsla þessi er send Alþingi til upplýsingar í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 98/2016, um þjóðaröryggisráð, sbr. þingsályktanir nr. 26/145 og nr. 7/153.
Með samþykkt þingsályktunar um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland fól Alþingi ríkisstjórninni að fylgja þar greindri stefnu um þjóðaröryggi. Framkvæmd einstakra málefnasviða þjóðaröryggisstefnunnar fellur undir ábyrgðarsvið mismunandi ráðuneyta í samræmi við forsetaúrskurð nr. 6/2022 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem var í gildi á árinu 2024.
Hlutverk þjóðaröryggisráðs er að hafa eftirlit með því að framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland sé í samræmi við ályktun Alþings. Skýrsla þessi er byggð á greinargerðum ráðuneytanna um framkvæmd einstakra áhersluþátta þjóðaröryggisstefnunnar.
Fylgiskjal.
Skýrsla þjóðaröryggisráðs um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu
fyrir Ísland á árinu 2024.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0218-f_I.pdf