Ferill 118. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 219 — 118. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um kostnað vegna kulnunar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur kostnaður hins opinbera verið af kulnun opinbers starfsfólks undanfarin tíu ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum og eftir ríki annars vegar og sveitarfélögum hins vegar.
Samkvæmt kjarasamningum skal starfsmaður tilkynna þegar í stað um óvinnufærni vegna veikinda eða slyss. Stofnunum ber að halda skrá yfir veikindadaga starfsfólks og skrá veikindafjarvistir hvort sem þær eru launaðar eða ólaunaðar. Yfirmaður ákveður hvort krefjast skuli vottorðs þegar veikindi eða slys er tilkynnt en verði fjarvera vegna veikinda eða slyss lengri en fimm vinnudagar samfleytt ber starfsfólki að sanna óvinnufærni sína með læknisvottorði.
Veikindavottorð vísa til almennra veikinda og ekki koma fram nánari upplýsingar um eðli veikindanna. Vinnuveitandi getur ekki óskað eftir ástæðu veikinda, sbr. lög nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Á sama hátt ber starfsfólki ekki skylda til að upplýsa vinnuveitanda um eðli veikindanna.
Skráning veikinda er því almenns eðlis í öllum viðveru- og tímaskráningarkerfum ríkisins og ekki hægt að greina kostnað vegna kulnunar sérstaklega.