Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 222 — 161. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um POTS-heilkennið og vökvagjöf.
1. Telur ráðherra að hlutast ætti til um að ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að hætta niðurgreiðslu vökvagjafar fyrir fólk með POTS-heilkennið frá og með 1. október nk. verði frestað þar til niðurstaða starfshóps á vegum ráðuneytisins um málefni fólks með Long COVID, ME og POTS liggur fyrir?
Ákvörðun um að hætta að taka þátt í kostnaði vegna vökvagjafar, sem veitt var til einstaklinga með POTS-sjúkdóminn, var tekin af Sjúkratryggingum Íslands. Stofnunin býr yfir læknisfræðilegri sérfræðiþekkingu en við töku ákvörðunarinnar lágu einnig fyrir upplýsingar frá embætti landlæknis þar sem álit var lagt á vökvagjöf vegna POTS. Öll fyrirliggjandi gögn benda til þess að regluleg vökvagjöf í æð við POTS sé ekki gagnreynd meðferð við sjúkdómnum, og eigi einungis við í algerum undantekningartilvikum. Var m.a. litið til framkvæmdar hjá Norðurlandaþjóðunum en upplýsingar þaðan bera með sér að regluleg vökvagjöf tíðkist ekki sem meðferð við POTS. Greiðsluþátttaka hins opinbera vegna þjónustu sérgreinalækna er háð því skilyrði að um gagnreynda meðferð sé að ræða, þ.e. meðferð sem byggist á læknisfræðilega viðurkenndum grundvelli. Af þeim sökum hefur ekki verið talið tilefni til að hlutast til um ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands vegna vökvagjafar í þessu sambandi. Þjónusta við einstaklinga með POTS og skylda sjúkdóma er til skoðunar hjá vinnuhópi sem heilbrigðisráðherra skipaði og leiddur er af landlækni, en hópurinn hefur m.a. það hlutverk að kortleggja mögulega þjónustu til einstaklinga með sjúkdóminn.
2. Liggja fyrir upplýsingar um kynjahlutföll einstaklinga með POTS og þeirra sem nýta sér vökvagjöf? Ef svo er, hver eru hlutföllin?
Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um heildarfjölda einstaklinga með POTS eða kynjahlutföll innan hópsins, en það er eitt af verkefnum vinnuhóps að kortleggja umfangið. Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum eru konur 87% þeirra sem hafa fengið vökvagjöf a.m.k. einu sinni á þessu ári, 13% karlar, en ekki liggur fyrir hversu hátt hlutfall vökvagjafa var vegna POTS. Sé litið til heildarfjölda vökvagjafa á þessu ári voru 95% allra vökvagjafa til kvenna, sem skýrist af því að skiptafjöldi vökvagjafa til kvenna er að meðaltali mun hærri en til karla.