Ferill 149. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 231 — 149. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um innheimtu og fyrningu krafna vegna námslána eftir gjaldþrot.
Eftirfarandi svör eru byggð á upplýsingum frá Menntasjóði námsmanna.
1. Hvert er umfang ófyrndra krafna vegna námslána á hendur einstaklingum sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota, sundurliðað eftir fjölda einstaklinga, fjölda lána og heildarupphæð eftirstöðva, annars vegar á fullu kröfuvirði og hins vegar á bókfærðu virði þegar tekið er mið af væntum afföllum af endurgreiðslu þeirra?
Alls hafa 170 lántakar námslána verið úrskurðaðir gjaldþrota frá gildistöku laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020. Heildareftirstöðvar krafna án dráttarvaxta miðað við 10. október 2025 eru 869.757.199 kr. Bókfært virði krafna er sama fjárhæð.
| 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | Alls | |
| Skuldarar | 31 | 35 | 32 | 29 | 26 | 17 | 170 |
| Skuldabréf | 50 | 54 | 41 | 43 | 37 | 18 | 243 |
| Staða v. úrskurð | 199.586.784 kr. | 173.040.055 kr. | 157.120.947 kr. | 174.709.153 kr. | 132.481.734 kr. | 52.139.003 kr. | 889.077.676 kr. |
| Staða 10.10.25 | 182.768.038 kr. | 179.201.226 kr. | 148.727.265 kr. | 174.850.511 kr. | 131.837.173 kr. | 52.370.986 kr. | 869.755.199 kr. |
| Uppgreidd | 5 | 10 | 6 | 2 | 2 | 0 | 25 |
| Í skilum | 17 | 20 | 12 | 15 | 4 | 4 | 72 |
| Kröfuvakt | 27 | 22 | 23 | 22 | 29 | 10 | 133 |
| Annað (andlát, löginnheimta, greiðsluskjól, skiptum ólokið) | 1 | 4 | 0 | 4 | 2 | 4 | 15 |
2. Hvert hefur umfang annars vegar væntra affalla og hins vegar raunverulegra affalla af endurgreiðslu námslána vegna gjaldþrota lántaka verið frá og með 26. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
Menntasjóður námsmanna hefur ekki metið vænt afföll H-lána en gert hefur verið ráð fyrir að þau séu 0,8% (sjá svar við 3. tölul. fyrirspurnarinnar). Frá gildistöku laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, hafa námslán ekki verið afskrifuð vegna þeirra lánþega sem voru úrskurðaðir gjaldþrota eftir 26. júní 2020. Frá 2020 hafa þó verið afskrifuð lán vegna gjaldþrota hjá þeim lánþegum sem fóru í gjaldþrot fyrir gildistöku laganna. Þegar ábyrgðarmannakerfið var svo endanlega afnumið árið 2024 voru lán sem voru fyrnd á aðalskuldara vegna gjaldþrots en höfðu fallið á ábyrgðarmann afskrifuð og skráist það þá sem afskrift vegna gjaldþrots. Því hækka afskriftir vegna gjaldþrots talsvert árið 2024.
| Afskriftir vegna gjaldþrots | |||||
| V-lán | R-lán | S-lán | G-lán | H-lán | |
| 2025 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| 2024 | 69.576.282 kr. | 77.479.671 kr. | 309.025.725 kr. | ||
| 2023 | 52.932.505 kr. | 306.439 kr. | 108.144.787 kr. | ||
| 2022 | 331.385 kr. | 4.568.346 kr. | 84.905.946 kr. | ||
| 2021 | 1.312.538 kr. | 133.363 kr. | 49.989.848 kr. | 172.122.016 kr. | |
| 2020 (frá 26. júní) | 3.204.108 kr. | 35.795 kr. | 5.370.284 kr. | ||
3. Hverju nemur vaxtaálag sem tekur mið af væntum afföllum af endurgreiðslu námslána, hvernig er það ákvarðað og hverjar hafa tekjur Menntasjóðs námsmanna af innheimtu þess verið frá og með 26. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
Vaxtaálagið er 0,8% og gildir einungis fyrir H-lán. Markmið þess er að mæta mögulegum afföllum vegna andláts lántaka og vanskila. Þar sem reynsla af nýju lánasafni er enn takmörkuð hefur ekki verið unnt að meta vænt afföll með fullnægjandi hætti. Slíkt mat hefur því ekki farið fram. Tillaga um 0,8% álag kom fram í athugasemdum við 17. gr. í því frumvarpi sem varð að lögum nr. 60/2020, sbr. þingskjal 373 á 150. löggjafarþingi. Fyrstu H-lánin voru veitt árið 2020. Þar sem lánþegar hefja endurgreiðslu ári eftir námslok, hófust fyrstu innheimtur vegna H-lána ekki fyrr á árinu 2022.
Innheimt 0,8% áhættuálag hefur skilað eftirfarandi fjárhæðum til sjóðsins:
2025 (frá 1. janúar til 31. ágúst) – 50.077.374 kr.
2024 – 52.683.355 kr.
2023 – 25.623.317 kr.
2022 – 1.827.255 kr.
2021 – 0 kr.
2020 – 0 kr.
4. Hversu mörg árangurslaus fjárnám til fullnustu krafna vegna námslána hafa verið gerð frá ársbyrjun 2020 og hversu mörg þar af hjá einstaklingum sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota frá og með 26. júní 2020, sundurliðað eftir árum, fjölda einstaklinga og lána og heildarfjárhæðum krafna?
Frá ársbyrjun 2020 hafa verið gerð 1.410 árangurslaus fjárnám til fullnustu krafna vegna námslána. Gögn um hvort einstaklingar voru gjaldþrota eða ekki eru ekki tiltæk. Gögn um fjölda einstaklinga og lána eru heldur ekki tiltæk. Miðað við þau gögn sem eru tiltæk, eins og fjölda lántaka sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota frá gildistöku laganna og eru á kröfuvakt, má ætla að hlutfallið sé um 10% af heildarfjölda gerðarþola á tímabilinu.