Ferill 85. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 1/157.

Þingskjal 244  —  85. mál.


Þingsályktun

um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd borgarstefnu. Borgarstefna verði hluti af samhæfingu stefna í samgöngumálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga og taki mið af samþykktum stefnum stjórnvalda á öðrum málefnasviðum. Loftslagsmál og sjálfbær þróun verði höfð að leiðarljósi við útfærslu á markmiðum borgarstefnu og þeim aðgerðum og framkvæmdum sem stefnan kann að leiða til.

I. FRAMTÍÐARSÝN OG MEGINMARKMIÐ

    Borgarstefna stuðli að þróun og eflingu tveggja borgarsvæða á Íslandi, annars vegar með því að styrkja höfuðborgina Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og hið virka svæði þess og hins vegar með því að skilgreina Akureyri sem svæðisborg, efla hana sem slíka, hlutverk hennar og hið virka svæði. Með því verði höfuðborgin viðurkennd sem leiðandi afl og mikilvægi hennar í byggðastefnu stjórnvalda skýrt. Á sama tíma verði sérstaða og hlutverk svæðisborgarinnar viðurkennt ásamt mikilvægi hennar fyrir alþjóðlega samkeppnishæfni landsins og sjálfbæra þróun, búsetu og lífsgæði á Norðurlandi öllu og austur um land.
    Með skipulagi og uppbyggingu innviða verði stuðlað að sjálfbærum borgarsamfélögum sem verði eftirsótt til búsetu og atvinnu og skapi umgjörð fyrir efnahagslega drifkrafta og nýsköpun. Þannig verði samkeppnishæfni landsins efld og vexti þjóðarinnar mætt með því að stuðla að fjölbreyttum búsetukostum, fjölgun fjölbreyttra atvinnutækifæra og auknu aðgengi íbúa að þjónustu, þar sem tekið verði mið af ólíkri stöðu og þörfum allra íbúa.
    Skilgreiningar verði eftirfarandi:
     a.      Borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins: Svæðið markist af svæðinu frá Hvítá til Hvítár, þ.e. svæðinu frá Reykjanesi austur á Selfoss og norður í Borgarnes.
     b.      Borgarsvæði Akureyrar: Eyjafjörður frá Siglufirði í vestri og austur til Húsavíkur og Mývatnssveitar.
     c.      Svæðisborg: Þéttbýlisstaður með sjálfbæra atvinnustarfsemi og þjónustu á flestum sviðum daglegs lífs þar sem almenningur hafi tækifæri til að njóta fjölbreyttrar menntunar, menningar og mannlífs og greiðra samgangna milli landshluta og til útlanda. Búsetukostir og þjónusta fyrir íbúana og þau sem búa á aðliggjandi svæðum verði meiri en í landshlutakjörnum og öðrum smærri þéttbýlisstöðum.
    Framtíðarsýn fyrir svæðin verði eftirfarandi:
     a.      Höfuðborgin Reykjavík. Ríki og borg standi saman að því að efla höfuðborgina og lyfta henni í alþjóðlegri samkeppni borga. Reykjavík verði áfram miðstöð viðskipta, stjórnsýslu, menntunar og menningar í landinu og megingátt inn í landið fyrir sameiginleg verkefni, alþjóðatengsl, vöruflutninga og fjárfestingar.
     b.      Borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins. Borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins verði eflt í alþjóðlegri samkeppni borga sem laðar að sér öfluga fjárfestingu og eftirsóttan mannauð. Við ákvarðanir um skipulag og uppbyggingu innviða verði horft á höfuðborgarsvæðið og borgarsvæðið allt sem eina heild þegar kemur að atvinnusókn, búsetu og samgöngum innan þess.
     c.      Svæðisborgin Akureyri. Akureyri verði skilgreind svæðisborg og hlutverk hennar sem slíkrar mótað í samstarfi ríkis og Akureyrar. Svæðisborgin verði efld sem drifkraftur í þjónustu og menningarlífi íbúa og nærliggjandi byggða og sérstaða svæðisins nýtt í því skyni.
     d.      Borgarsvæði Akureyrar. Samhliða mótun hlutverks Akureyrar sem svæðisborgar verði borgarsvæði hennar þróað og unnið að eflingu þess og stækkun í samstarfi ríkis og hlutaðeigandi sveitarfélaga. Afraksturinn verði stærra og öflugra atvinnusvæði sem verði jafnframt eitt búsetu- og þjónustusvæði. Við ákvarðanir um uppbyggingu innviða verði horft til þess að styðja þá þróun.

II. LYKILVIÐFANGSEFNI

    Borgarstefna taki til lykilviðfangsefna sem unnið verði að í virku samstarfi ríkis og viðkomandi sveitarfélaga. Þannig verði tryggt að framtíðarsýn stefnunnar verði að veruleika. Lykilviðfangsefnin skulu vera eftirfarandi:
     a.      Atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun.
     b.      Alþjóðleg samkeppnishæfni.
     c.      Innviðir og umhverfi.
     d.      Heilbrigðis- og félagsmál.
     e.      Menntun og menning.

III. SAMSTARF RÍKIS OG BORGARSVÆÐANNA

    Innviðaráðherra verði falið að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkisins og borgarsvæðanna sem stuðli að því að markmiðum borgarstefnu verði náð. Á þeim vettvangi verði inntak borgarstefnu þróað þannig að þær áherslur sem hér eru settar fram leiði til beinna skilgreindra aðgerða og/eða samþættingar við aðgerðir í fyrirliggjandi áætlunum hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga, og styðji þannig við að markmiðum verði náð.

Samþykkt á Alþingi 22. október 2025.