Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 258 — 128. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.
Öll þjónustugjöld sem stofnanir ráðuneytisins innheimta eru birtar í gjaldskrám sem eru samþykktar af ráðuneytinu og auglýstar í B-deild Stjórnartíðinda. Í gjaldskrám kemur jafnframt fram á hvaða lagaheimild gjaldtakan er byggð. Upphæð þjónustugjalda er ætlað að endurspegla raunkostnað við veitta þjónustu, svo sem tímagjald vegna vinnu sérfræðings. Gjaldskrár undirstofnana má sjá í yfirliti að aftan.
| Stofnun | Lagaheimild | |
| Innviðaráðuneytið | Innheimtir ekki þjónustugjöld. | |
| Byggðastofnun | Innheimtir þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar, nr. 1126/2022, sem byggist á heimild í lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999. | |
| Fjarskiptastofa | Innheimtir þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar, nr. 1115/2006, sem byggist á heimild í lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021. | |
| Rannsóknarnefnd samgönguslysa | Innheimtir ekki þjónustugjöld. | |
| Samgöngustofa | Innheimtir þjónustugjöld sem tilgreind eru í þeim lögum sem um stofnunina gilda. Um er að ræða eftirfarandi lagaheimildir: | |
| |
* Lög um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012, 13. gr. * Lög um loftferðir, nr. 80/2022. * Umferðarlög, nr. 77/2019. * Lög um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015. * Lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017. * Lög um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022. * Skipalög, nr. 66/2021. * Lög um siglingavernd, nr. 50/2004. * Lög um áhafnir skipa, nr. 82/2022. * Lög um köfun, nr. 81/2018. |
|
| Um gjaldtöku fyrir þjónustu stofnunarinnar fer samkvæmt gjaldskrá, nr. 1618/2024, sem gefin er út árlega. | ||
| Vegagerðin | Innheimtir ekki þjónustugjöld. | |