Ferill 218. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 261  —  218. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024, nr. 70/2025 og nr. 118/2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


Frá utanríkisráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024 frá 15. mars 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1238 frá 20. júní 2019 um samevrópska séreignarsparnaðarafurð.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2033 frá 27. nóvember 2019 um varfærniskröfur fyrir verðbréfafyrirtæki og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010, (ESB) nr. 575/2013, (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 806/2014.
                  b.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2034 frá 27. nóvember 2019 um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum og breytingu á tilskipunum 2002/87/EB, 2009/65/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ESB og 2014/65/ESB.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 frá 8. maí 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 frá 15. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/760 að því er varðar kröfur um fjárfestingarstefnu og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og gildissvið hæfra fjárfestingareigna, kröfur um samsetningu og fjölbreytileika eignasafna og lántöku í reiðufé og aðrar sjóðsreglur, sbr. leiðréttingar sem birtust í Stjórnartíðindum ESB L, 2024/90509, 17.9.2024.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á þremur ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar (fskj. I–VII).

2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024 frá 15. mars 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024 fellir inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1238 frá 20. júní 2019 um samevrópska séreignarsparnaðarafurð (PEPP-reglugerðin).
    Eitt af meginmarkmiðum svonefndrar PEPP-reglugerðar er að auka val neytenda á Evrópska efnahagssvæðinu hvað varðar lífeyrissparnað með því að skapa nýja, valfrjálsa sparnaðarleið sem styður við núverandi lífeyriskerfi en kemur ekki í þeirra stað. Önnur helstu markmið eru að auka fjárfestingar á Evrópska efnahagssvæðinu og auka val neytenda um sveigjanlega sparnaðarvalkosti sem eru flytjanlegir á milli EES-ríkja. Reglugerðin mun m.a. heimila vátryggingafélögum, starfstengdum eftirlaunasjóðum, verðbréfafyrirtækjum, lánastofnunum og eignastýringaraðilum að bjóða upp á þá afurð sem reglugerðin felur í sér. Reglugerðin getur þannig skapað nýjan valkost til viðbótar við hefðbundinn séreignarsparnað auk þess sem erlendum þjónustuveitendum verður heimilt að bjóða upp á afurðina hérlendis. Því má gera ráð fyrir að samkeppnisskilyrði ólíkra þjónustuveitenda aukist vegna þeirrar afurðar sem PEPP-reglugerðin felur í sér. Mjög takmarkað framboð er af afurðinni í ríkjum innan Evrópusambandsins.
    Fyrirhugað er að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram frumvarp til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2019/1238 á yfirstandandi löggjafarþingi. Gert er ráð fyrir að fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands verði falið eftirlit með lögunum, verði frumvarpið að lögum. Ekki er gert ráð fyrir því að samþykkt frumvarpsins hafi áhrif á fjárhag ríkisins.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd og efnahags- og viðskiptanefnd um upptöku reglugerðarinnar til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála. Gerðu nefndirnar ekki athugasemdir við upptöku reglugerðarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og reglugerðin kynnt nefndinni sérstaklega.

3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2025 fellir inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
     a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2033 frá 27. nóvember 2019 um varfærniskröfur fyrir verðbréfafyrirtæki og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010, (ESB) nr. 575/2013, (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 806/2014.
     b.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2034 frá 27. nóvember 2019 um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum og breytingu á tilskipunum 2002/87/EB, 2009/65/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ESB og 2014/65/ESB.
    Með gerðunum er regluverk Evrópusambandsins um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum í megindráttum skilið frá reglum um varfærniseftirlit með bönkum og öðrum lánastofnunum. Aðskilnaðinum er ætlað að gera regluverkinu kleift að taka betur mið af sérstöðu hvorrar tegundar fyrirtækja fyrir sig. Hann hefur litla þýðingu fyrir lánastofnanir en felur í sér að einfaldari lagarammi mun gilda fyrir verðbréfafyrirtæki, sem eru almennt mun smærri en lánastofnanir og hafa ekki hliðstætt kerfislegt mikilvægi. Gert er ráð fyrir því að regluverkið um lánastofnanir gildi áfram um kerfislega mikilvæg verðbréfafyrirtæki, en ekkert íslenskt verðbréfafyrirtæki fellur undir þá skilgreiningu.
    Í reglugerð (ESB) 2019/2033 eru settar fram kröfur um eigið fé og laust fé verðbréfafyrirtækja, stórar áhættuskuldbindingar og upplýsingagjöf til yfirvalda og markaðar. Í tilskipun (ESB) 2019/2034 eru reglur um stofnfé verðbréfafyrirtækja, starfskjarastefnu og eftirlit með verðbréfafyrirtækjum.
    Í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar eru hefðbundnar aðlaganir til að taka mið af eðli EES-samningsins, svo sem að skipta vísunum til löggjafar Evrópusambandsins út fyrir vísanir til ákvæða EES-samningsins og að tiltaka að valdheimildir sem heyra undir stofnanir Evrópusambandsins hvað aðildarríki þess varðar heyri þess í stað undir stofnanir EFTA hvað EFTA-ríkin innan Evrópska efnahagssvæðisins varðar og aðlaganir á frestum til að taka mið af því að gerðirnar taka gildi síðar í EFTA-ríkjunum innan Evrópska efnahagssvæðisins en í Evrópusambandinu.
    Gert er ráð fyrir því að sett verði lög um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja til að innleiða gerðirnar. Fyrirhugað er að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á yfirstandandi löggjafarþingi. Ekki er gert ráð fyrir því að samþykkt frumvarpsins hafi áhrif á fjárhag ríkisins.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðanna í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði hún ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og umræddar gerðir kynntar nefndinni sérstaklega.

4. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 frá 8. maí 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 fellir inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 frá 15. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/760 að því er varðar kröfur um fjárfestingarstefnu og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og gildissvið hæfra fjárfestingareigna, kröfur um samsetningu og fjölbreytileika eignasafna og lántöku í reiðufé og aðrar sjóðsreglur.
    Með gerðinni er skilgreining á eignum einfölduð til muna í þeim tilgangi að útvíkka möguleika á fjárfestingaráætlunum rekstraraðila langtímafjárfestingarsjóða. Fjárfestingar geta t.d. verið í innviðum, hugverkum, skipum o.fl. Þá eru reglur er varða hæfar fjárfestingar útvíkkaðar. Opnað er fyrir frekari fjárfestingar í öðrum sjóðum um sameiginlega fjárfestingu auk þess sem heimilt verður að fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum á fjármálamarkaði en það var áður óheimilt. Í gerðinni er kveðið á um að 55% eigna langtímafjárfestingarsjóða skuli að lágmarki fara í að fjárfesta í hæfum eignum en hlutfallið var áður 70%. Lækkun á hlutfallinu er talin geta ýtt undir meiri fjölbreytni í fjárfestingum slíkra sjóða. Heimildir langtímafjárfestingarsjóða til lántöku eru einnig auknar. Ýmsar aðrar breytingar eru gerðar en tilgangur reglugerðarinnar er að gera langtímafjárfestingarsjóði meira aðlaðandi fyrir fjárfesta og eignastýringaraðila. Það er talið nauðsynlegt þar sem fáir slíkir sjóðir hafa verið stofnaðir innan Evrópusambandsins síðan reglugerð (ESB) 2015/760 tók gildi.
    Ekki eru gerðar sambærilegar aðlaganir við upptöku á reglugerð (ESB) 2023/606 og gerðar voru við upptöku á reglugerð (ESB) 2015/760 í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2020. Ekki er kveðið á um framsal valdheimilda til stofnana Evrópusambandsins í reglugerð (ESB) 2023/606. Í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 er aðlögunartexta bætt við sem varðar ósamvinnuþýð lögsagnarumdæmi en með aðlöguninni er gert skýrt að átt er við lögsagnarumdæmi eins og þau eru skilgreind í landslögum hlutaðeigandi EFTA-ríkis.
    Innleiðing gerðarinnar hér á landi kallar á breytingar á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram frumvarp í þessu skyni ( 147. mál). Ekki er gert ráð fyrir því að samþykkt frumvarpsins hafi áhrif á fjárhag ríkisins.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðanna í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði hún ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og umrædd gerð kynnt nefndinni sérstaklega.

5. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umræddar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar fela í sér breytingar á EES-samningnum en þar sem þær kalla á lagabreytingar hér á landi voru þær teknar með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeim breytingum á EES-samningnum sem í ákvörðununum felast.


Fylgiskjal I.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024 frá 15. mars 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0261-f_I.pdf



Fylgiskjal II.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1238 frá 20. júní 2019 um samevrópska séreignarafurð.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0261-f_II.pdf



Fylgiskjal III.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0261-f_III.pdf



Fylgiskjal IV.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2033 frá 27. nóvember 2019 um varfærniskröfur fyrir verðbréfafyrirtæki og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010, (ESB) nr. 575/2013, (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 806/2014.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0261-f_IV.pdf



Fylgiskjal V.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2034 frá 27. nóvember 2019 um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum og breytingu á tilskipunum 2002/87/EB, 2009/65/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ESB og 2014/65/ESB.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0261-f_V.pdf



Fylgiskjal VI.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 frá 8. maí 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0261-f_VI.pdf



Fylgiskjal VII.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 frá 15. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/760 að því er varðar kröfur um fjárfestingarstefnu og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og gildissvið hæfra fjárfestingareigna, kröfur um samsetningu og fjölbreytileika eignasafna og lántöku í reiðufé og aðrar sjóðsreglur.


www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0261-f_VII.pdf