Ferill 219. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 262  —  219. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um fullgildingu samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.


Frá utanríkisráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun sem undirritaður var hinn 15. nóvember 2024.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Hinn 15. nóvember 2024 undirrituðu Ísland, Nýja-Sjáland, Sviss og Kosta Ríka samning um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun (e. Agreement on Climate Change, Trade and Sustainability, ACCTS). Um er að ræða fyrsta sértæka samninginn á sviði alþjóðaviðskipta sem hefur það að markmiði að nýta hefðbundin ákvæði viðskiptasamninga til að styðja við orkuskipti og aðrar aðgerðir í loftslags- og umhverfismálum. Samningurinn kallar ekki á lagabreytingar.
    Upphaf viðræðna má rekja til fundar og yfirlýsingar þáverandi forsætisráðherra þátttökuríkjanna í tengslum við loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna haustið 2019. Markmiðið var að hópur líkt þenkjandi ríkja sem hefðu náð góðum árangri á sviði umhverfismála og sjálfbærni ynni að metnaðarfullum samningi og skapaði fordæmi fyrir önnur ríki að fylgja. Eftir gildistöku samningsins verður hann opinn fyrir aðild annarra aðildarríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) sem reiðubúin eru til að undirgangast skuldbindingar hans. Vonir standa því til að áhrif samningsins aukist samfara aðild fleiri ríkja.

2. Nánar um samninginn.
    Efni samningsins skiptist í átta kafla og 11 viðauka, þar sem m.a. er kveðið á um viðskipti með umhverfisvörur, viðskipti með umhverfisþjónustu, styrki vegna jarðefnaeldsneytis, umhverfismerkingar og lausn deilumála.
    Í formálsorðum samningsins er gerð grein fyrir ýmsum forsendum og markmiðum samningsaðila við gerð samningsins. Þar kemur m.a. eftirfarandi fram:
     –      Staðfestar eru skuldbindingar samningsaðila um að grípa til aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, tapi líffræðilegrar fjölbreytni og mengun með það að markmiði að styrkja hnattræn viðbrögð við alvarlegum áskorunum sem þessu fylgja.
     –      Ítrekuð er viðleitni samningsaðila til að stuðla að nánara alþjóðlegu samstarfi um viðskipti og umhverfismál og styrkja enn frekar marghliða viðskiptakerfi á þann hátt að það stuðli að sjálfbærri þróun.
     –      Áréttuð er skuldbinding samningsaðila um að vinna að sjálfbærri þróun og mikilvægi samræmis og gagnkvæms stuðnings viðskipta og umhverfismála í því tilliti.
     –      Ítrekuð er sú afstaða allra samningsaðila að viðskipti og viðskiptastefna geti stutt, og verði að styðja, við mótvægisaðgerðir vegna loftslagsbreytinga og aðlögun að þeim, mengunarvarnir og eftirlit og sjálfbæra nýtingu, vernd eða endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni, vistkerfa og náttúruauðlinda, þ.m.t. vatns- og sjávarauðlinda.

2.1 Efni samningsins.
    Í 1. kafla samningsins er að finna upphafsákvæði og almenn ákvæði, þar á meðal um landfræðilegt gildissvið hans, almennar skilgreiningar, tengsl við alþjóðasamninga, beitingu bestukjarameðferðar og samstarf samningsaðila á alþjóðavettvangi.
    Í 2. kafla og I. og II. viðauka er að finna ákvæði um viðskipti með umhverfisvörur. Tollar er felldir niður af yfir 300 vörum, þ.m.t. kísli en íslenskir framleiðendur lögðu sérstaka áherslu á að koma þeirri vöru inn í samninginn. Dæmi um aðrar vörur eru steinull og hverflar sérhannaðir til framleiðslu endurnýjanlegrar orku. Ekki kemur til þess að Ísland þurfi að fella niður tolla á grundvelli samningsins enda hefur Ísland alfarið afnumið tolla á innfluttar iðnaðarvörur.
    Í 3. kafla og III.–VI. viðauka er fjallað um viðskipti með umhverfisþjónustu. Í þeim er að mestu byggt á skuldbindingum ríkjanna samkvæmt ákvæðum GATS-samnings WTO um þjónustuviðskipti. Skilgreindir eru rúmlega 100 undirgeirar umhverfis- og umhverfistengdrar þjónustu og takast ríkin á hendur skuldbindingar hvað varðar markaðsaðgang á þeim sviðum. Þjónusta tengd jarðhita og kolefnisföngun hefur verið skilgreind sérstaklega í samningnum sem umhverfisvæn þjónusta, sem liðkar fyrir því að íslensk fyrirtæki geti veitt sína þekkingu og þjónustu yfir landamæri.
    Í 4. kafla og VII.–X. viðauka er fjallað um styrki vegna jarðefnaeldsneytis. Samningsaðilar sammælast um reglur til að takmarka ríkisstyrki og niðurgreiðslur til framleiðslu og notkunar á jarðefnaeldsneyti og bæta þannig samkeppnisstöðu endurnýjanlegra orkugjafa. Í samningnum er að finna skilgreiningu á því hvað teljist vera ríkisstyrkur, hvaða styrki eigi að banna og hvaða undanþágur eigi að veita.
    Í 5. kafla er fjallað um umhverfismerkingar. Kaflinn kveður á um leiðbeinandi viðmið um umhverfismerkingar með það fyrir augum að styðja neytendur við að taka upplýstar ákvarðanir við val á vörum út frá umhverfissjónarmiðum. Viðmiðin munu ekki hafa áhrif á þær umhverfismerkingar sem þegar eru í notkun hér á landi.
    Í 6.–8. kafla og XI. viðauka er fjallað um stofnanaákvæði, lausn deilumála og lokaorð. Sett verður á stofn sameiginleg nefnd ríkjanna sem ætlað er að fjalla um framkvæmd samningsins, t.d. einstök vandamál í viðskiptum milli ríkjanna, auk undirnefnda um viðskipti með umhverfisvörur, viðskipti með umhverfisþjónustu og styrki vegna jarðefnaeldsneytis. Kveðið er á um lausn ágreiningsmála um túlkun og beitingu samningsins í formi sáttaumleitana eða eftir atvikum með stofnun gerðardóms ef samkomulag næst ekki með öðrum hætti.
    Samningurinn mun taka gildi á fyrsta degi þriðja mánaðar eftir þann dag þegar minnst þrír undirritunaraðilar hafa lokið innlendu fullgildingarferli sínu.


Fylgiskjal I.


Samningur um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0262-f_I.pdf


Fylgiskjal II.


Agreement on Climate Change, Trade and Sustainability.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0262-f_II.pdf