Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 265 — 221. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um erlenda ríkisborgara sem starfa fyrir hið opinbera.
Frá Eiríki S. Svavarssyni.
Hversu margir erlendir ríkisborgarar starfa fyrir hið opinbera? Svar óskast sundurliðað eftir málaflokkum, starfsemi, heildarfjölda starfsmanna í hverjum málaflokki, hlutfalli starfsmanna sem hafa erlent ríkisfang eða tvöfalt ríkisfang, hlutfalli faglærðra og ófaglærðra og eftir árum frá og með árinu 2015 þar til nú.
Skriflegt svar óskast.