Ferill 106. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 279  —  106. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Frá 1. minni hluta velferðarnefndar.


    Fyrsti minni hluti velferðarnefndar lýsir yfir fullum stuðningi við efni frumvarpsins um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þrátt fyrir efnislegan stuðning er það hins vegar ófrávíkjanleg krafa 1. minni hluta að fram fari ítarlegt og heildstætt kostnaðarmat á áhrifum frumvarpsins á fjárhag ríkis og sveitarfélaga.
    Fyrsti minni hluti getur ekki fallist á að lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD) verði samþykkt á þessu stigi málsins, þar sem ekki liggur fyrir heildstætt kostnaðarmat á fjárhagslegum áhrifum hennar á ríki og sveitarfélög. Það er óábyrgt að samþykkja slíka grundvallarbreytingu á lagalegu umhverfi án þess að fullnægjandi greining hafi farið fram á þeim fjárhagslegu skuldbindingum sem fylgja munu.
    Samkvæmt 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, er skýrt kveðið á um að sérstakt mat skuli fara fram á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög þegar fyrirsjáanlegt er að tillaga að lagafrumvarpi eða öðrum stefnumarkandi ákvörðunum ríkisins muni hafa slík áhrif. Þetta mat skal liggja fyrir áður en frumvarp er afgreitt úr ríkisstjórn til framlagningar á Alþingi. Lögfesting alþjóðasamnings er eðli sínu samkvæmt stefnumarkandi ákvörðun sem mun hafa víðtæk og djúpstæð fjárhagsleg áhrif á framkvæmd þjónustu, hjá ríkinu og sérstaklega hjá sveitarfélögunum. Því er slíkt kostnaðarmat ekki aðeins æskilegt, heldur lögbundið.
    Þótt samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafi þegar haft áhrif á lögskýringar í íslenskum rétti þá mun lögfesting hans auka vægi hans til muna. Lögfestingin skapar beinan og ótvíræðan lagalegan grundvöll fyrir réttindum fatlaðs fólks og leggja á herðar stjórnvöldum, ríki og sveitarfélögum, auknar og beinar skyldur til að tryggja framkvæmd þeirra. Þessi auknu réttindi kalla á umfangsmiklar fjárfestingar í aðgengismálum, breytingar á þjónustuframboði og mögulega aukinn stuðning við fatlað fólk til að því sé gert kleift að lifa sjálfstæðu lífi og taka fullan þátt í samfélaginu.
    Málaflokkur fatlaðra hefur verið á ábyrgð sveitarfélaga frá árinu 2010, sbr. lög nr. 152/2010. Þótt sveitarfélög njóti sjálfstjórnar skv. 78. gr. stjórnarskrárinnar eftir því sem lög ákveða er ljóst að fjárhagsleg geta þeirra er ólík en umfram allt takmörkuð. Ef fela á sveitarfélögum auknar skyldur, án þess að þeim fylgi fullnægjandi fjármögnun, er hætta á að þau geti ekki staðið við lagalegar skuldbindingar sínar, sem geti leitt til brota á réttindum fatlaðs fólks og jafnvel skaðabótamála gegn sveitarfélögum.
    Án heildstæðs mats á fjárhagslegum áhrifum frumvarpsins (kostnaðarmats) er hætta á að lögfesting samningsins verði aðeins í orði en ekki á borði og að raunverulegri framkvæmd réttindanna verði ábótavant. Það kann að skapa réttaróvissu, valda fötluðu fólki vonbrigðum og grafa undan trúverðugleika stjórnvalda.
    Því er það afstaða 1. minni hluta að ekki sé tækt að samþykkja lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fyrr en heildstætt og ítarlegt kostnaðarmat liggur fyrir. Matið þarf að greina skýrt frá þeim fjárhagslegu áhrifum sem lögfestingin mun hafa á ríkissjóð og sjóði sveitarfélaga, og hvernig ætlunin er að mæta þeim kostnaði til að tryggja farsæla framkvæmd og virðingu fyrir réttindum fatlaðs fólks.
    Að framangreindu virtu leggst 1. minni hluti gegn því að frumvarpið verði samþykkt að svo stöddu, eða þar til fullnægjandi kostnaðarmat liggur fyrir.


Alþingi, 5. nóvember 2025.

Ingibjörg Isaksen.