Ferill 235. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 303  —  235. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024 (framlenging).

Frá atvinnuvegaráðherra.



1. gr.

    Í stað ártalsins „2025“ í 1. gr. laganna kemur „2026“.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í atvinnuvegaráðuneytinu og er utan þingmálaskrár. Í því felst að gerð verði breyting á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024, í því skyni að framlengja tímabundið stuðningsúrræði laganna um eitt ár þar sem enn ríkir óvissa um þróun jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Óvissuástand hefur ríkt í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara. Í því ljósi var m.a. ákveðið að setja á fót Afurðasjóð Grindavíkurbæjar sem bæta á meiri háttar óbeint tjón á matvælum og fóðri af völdum hamfara í bænum, þ.m.t. tjón vegna rýmingaraðgerða stjórnvalda sem tengjast hamförunum. Þar sem enn ríkir nokkur óvissa um stöðu Grindavíkurbæjar og ekki er útilokað að frekari náttúruhamfarir verði þykir nauðsynlegt að framlengja tímabil stuðningsúrræðis laganna fram til ársloka 2026, en lögunum hefur áður verið breytt í sama tilgangi, sbr. lög nr. 133/2024, þar sem gildistími var framlengdur til 31. desember 2025.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Með frumvarpinu er lögð til sú breyting á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024, að tímabil gildissviðs laganna verði framlengt um eitt ár, þ.e. að lögin gildi um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi og verða fyrir tilgreindu tjóni skv. 6. gr. á tímabilinu frá og með gildistöku laganna til og með 31. desember 2026.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalla á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.

5. Samráð.
    Brýnt þykir að frumvarpið verði samþykkt sem fyrst og eigi síðar en fyrir lok árs 2025. Vegna þessa þótti nauðsynlegt að víkja frá ákvæðum samþykktar ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna, sbr. 9. gr. reglna um starfshætti ríkisstjórnar, sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar 24. febrúar 2023, hvað varðar bæði innra og ytra samráð.

6. Mat á áhrifum.
    Mat á fjárhagsáhrifum hefur ekki breyst frá fyrirliggjandi mati samkvæmt frumvarpi því sem varð að lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar ( 1131. mál á 154. löggjafarþingi). Líkt og rakið er í áhrifamati í greinargerð sem fylgdi því frumvarpi þá ráðast áhrif á ríkissjóð af því framlagi sem sjóðurinn hlýtur í fjárlögum eða með millifærslum úr varasjóði hverju sinni. Þar segir enn fremur að gróflega megi áætla að ef til tjóns komi geti það numið allt að 400 millj. kr. að teknu tilliti til eigin áhættu rekstraraðila. Af þeim sökum er miðað við að fjárveiting ríkissjóðs til sjóðsins muni ekki nema hærri fjárhæð, óháð því hvort tjón hafi farið fram úr þeim mörkum.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Lagt er til að tímabil stuðningsúrræðis laga um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, 74/2024, verði framlengt um eitt ár, þ.e. að lögin gildi um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi og verða fyrir tilgreindu tjóni skv. 6. gr. á tímabilinu frá og með gildistöku laganna til og með 31. desember 2026.
    Upphaflega náði tímabil stuðningsúrræðis laganna til 31. desember 2024. Líkt og rakið er í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því sem varð að lögunum var ákveðið að hafa tímabilið stutt þar sem óvissa væri um framvindu jarðhræringa og eldsumbrota á svæðinu en að framlenging á úrræðinu yrði metin með tímanum. Síðar var ákveðið að framlengja úrræðið til ársloka 2025 með breytingarlögum nr. 133/2024. Þar sem enn ríkir óvissa um náttúruhamfarir á svæðinu þykir nauðsynlegt að framlengja úrræðið öðru sinni, þ.e. til ársloka 2026.

Um 2. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringar.