Ferill 125. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 338  —  125. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.

    Undir atvinnuvegaráðuneytið heyra sex stofnanir, þ.e. Ferðamálastofa, Fiskistofa, Hafrannsóknastofnun, Matvælastofnun, Neytendastofa og Samkeppniseftirlitið. Auk þess heyra undir ráðuneytið tvö svið sem vistuð eru hjá stofnunum annarra ráðuneyta. Annars vegar er þar um að ræða faggildingarsvið Hugverkastofu sem er hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og hins vegar fyrirtækjaskrá Skattsins sem er hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gert er ráð fyrir að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið geri í sínu svari við fyrirspurninni grein fyrir þeim lögbundnu þjónustugjöldum sem innheimt eru hjá faggildingarsviði Hugverkastofu.
    Í svari ráðuneytisins er gerð grein fyrir þeim þjónustugjöldum sem kveðið er á um í lögum að stofnunum ráðuneytisins sé heimilt að innheimta til að standa undir kostnaði við að veita tiltekna þjónustu. Hér er því horft til þess að viðkomandi þjónustugjaldaheimild sé tilgreind með sérgreindum hætti í lögum og reglum þar um fyrir viðkomandi stofnun en ekki horft til almennra heimilda sem kunna að gilda fyrir stofnanir ríkisins í heild. Í meðfylgjandi yfirlitum má sjá hvaða þjónustugjöld stofnana ráðuneytisins eru innheimt, byggt á svörum viðkomandi stofnana. Í svörum Neytendastofu kom fram að ekki væri um nein slík þjónustugjöld að ræða. Þessu til viðbótar má nefna að hjá ráðuneytinu er starfrækt kærunefnd vöru- og þjónustukaupa sem skv. 17. gr. laga nr. 81/2019, um úrskurðaraðila á sviði neytendamála, hefur heimild til að innheimta 5.000 kr. gjald vegna kostnaðar við málsmeðferð hjá nefndinni, sbr. reglugerð 1177/2019.

Matvælastofnun.
    Kveðið er á um þjónustugjöld Matvælastofnunar í reglugerð nr. 665/2025. Gjaldskráin er sett með heimild í 25. og 26. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, 6. gr. b og 11. gr. laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, 8. gr. og 8. gr. a laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, 15. gr. laga um skeldýrarækt, nr. 90/2011, 33. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, 18. gr. a laga um innflutning dýra, nr. 54/1990, 14. gr. og 14. gr. a laga um fiskeldi, nr. 71/2008, 2. mgr. 3. gr. laga um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum, nr. 51/1981, 2. gr. laga um útflutning hrossa, nr. 27/2011, og 15. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hafrannsóknastofnun.
    Þjónustugjöld Hafrannsóknastofnunar byggjast á 7. gr. laga um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, nr. 112/2015. Þar er kveðið á um að stofnunin skuli gefa út gjaldskrá fyrir veitta þjónustu sem skuli taka mið af kostnaði og byggjast á kostnaðargreiningu.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Fiskistofa.
    Kveðið er á um þjónustugjöld Fiskistofu í reglugerð nr. 50/2025. Samkvæmt lögum um Fiskistofu, nr. 36/1992, lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, lögum um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996, lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997, lögum um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, nr. 151/1996, lögum um vinnslu afla um borð í skipum, nr. 54/1992, lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006, lögum um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu, nr. 85/2000, upplýsingalögum, nr. 140/2012, og reglugerðum sem byggjast á framangreindum lögum innheimtir stofnunin gjald samkvæmt gjaldskrá þessari.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Ferðamálastofa.

    Kveðið er á um þjónustugjöld Ferðamálastofu í reglugerð nr. 812/2021, um Ferðatryggingasjóð, og reglugerð nr. 725/216, um gjaldskrá Ferðamálastofu.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Fyrirtækjaskrá Skattsins.
    Fyrirtækjaskrá Skattsins er á ábyrgð atvinnuvegaráðuneytisins en skráin er vistuð hjá Skattinum sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið. Kveðið er á um þjónustugjöld fyrirtækjaskrár í tveimur reglugerðum sem ætlað er að standa undir kostnaði við veitta þjónustu. Annars vegar er kveðið á um þjónustugjöld fyrirtækjaskrár í reglugerð nr. 162/2006, um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár og almannaheillafélagaskrár. Hins vegar er kveðið á um gjaldtökuna í reglugerð nr. 707/2021, um gjald fyrir afhendingu gagna hjá ársreikningaskrá.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Samkeppniseftirlitið.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.
    Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa er sjálfstæð og óháð opinber úrskurðarnefnd sem úrskurðar í ágreiningsmálum milli neytenda og seljenda um flestar gerðir samninga um kaup á vöru og þjónustu. Kveðið er á um þjónustugjald nefndarinnar í reglugerð nr. 1177/2019, um kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.