Ferill 197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 339  —  197. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um tekjur eldri borgara.


    Eftirfarandi svar er unnið upp úr frumálagningargögnum Skattsins fyrir tekjuárið 2024, sem jafnframt eru nýjustu tekjuupplýsingar um einstaklinga. Almennt er talað um eldri borgara í vinnumarkaðslegu samhengi sem einstakling sem hefur náð 67 ára aldri. Eldri borgari verður því skilgreindur hér sem einstaklingur sem hefur náð 67 ára aldri. Ekki er kveðið á um lágmarkslaun í íslenskum lögum. Svarið byggist á lægstu launum í launatöflu hjá fullvinnandi einstaklingi, sem var í stéttarfélagi á tekjuárinu 2024, sem námu 426.026 kr. eða 5.112.300 kr. á ársgrundvelli. Til grundvallar tekjum er miðað við tekjustofn, þ.m.t fjármagnstekjur, sem m.a. liggur til grundvallar útreikningi bótafjárhæða tekjuskattskerfisins.
    Fyrirvari skal hafður við samanburð hlutfallstalna á milli landshluta og aldursbila þar sem fámenni í tilteknum landshluta eða aldursbili getur valdið því að hlutfallstalan endurspegli ekki hag tiltekins hóps í samanburði við annan.

     1.      Hversu hátt hlutfall eldri borgara var með tekjur undir lágmarkslaunum á tekjuárinu 2024? Svar óskast sundurliðað eftir kyni, aldri og búsetu.
    Tafla 1 sýnir hlutfall eldri borgara sem hafa tekjustofn undir lægstu launum í launatöflu á vinnumarkaði, flokkað eftir landshluta, kyni og aldursbili. Hlutfallið er nokkuð breytilegt eftir landshlutum og aldursbili. Þvert á landshluta og aldursbil voru 8,6–65% karla með tekjur undir skilgreindum lágmarkslaunum og hjá konum var bilið 23,3–71,4%. Hlutfallið fer hækkandi með aldri sem kann að skýrast af minni lífeyrisréttindum þeirra sem eldri eru og tilfærslu eigna á milli kynslóða.

Tafla 1. Hlutfall eldri borgara með tekjur undir lægstu fjárhæð í launatöflu á almennum vinnumarkaði eftir landshluta, kyni og aldursbili.

Aldursbil
Búseta Kyn 67–71 72– 76 77– 81 82–86 87– 91 92+
Austurland Karl 37,9% 25,2% 14,0% 16,8% 29,8% 65,0%
Kona 37,8% 33,6% 37,1% 37,8% 46,0% 60,0%
Höfuðborgarsvæðið Karl 20,8% 16,7% 17,1% 18,7% 24,2% 36,7%
Kona 25,1% 25,7% 28,2% 29,2% 32,1% 43,9%
Norðurland eystra Karl 11,9% 8,6% 11,8% 16,8% 35,2% 41,1%
Kona 24,8% 28,3% 30,4% 35,7% 38,6% 57,9%
Norðurland vestra Karl 15,1% 13,7% 16,9% 21,1% 27,0% 45,0%
Kona 24,3% 26,6% 39,0% 31,8% 29,5% 65,5%
Suðurland Karl 14,2% 12,8% 12,7% 20,2% 33,5% 42,9%
Kona 24,9% 27,3% 35,6% 34,7% 40,0% 55,0%
Suðurnes Karl 24,2% 16,9% 15,8% 15,1% 31,1% 51,4%
Kona 35,0% 36,3% 33,7% 35,4% 45,2% 55,6%
Vestfirðir Karl 15,2% 13,3% 16,1% 21,9% 34,4% 60,0%
Kona 26,1% 35,3% 30,1% 27,5% 40,8% 60,7%
Vesturland Karl 15,9% 12,8% 13,7% 18,0% 24,7% 55,8%
Kona 23,3% 25,0% 37,5% 36,8% 37,7% 71,4%

     2.      Hvernig skiptist þessi hópur eftir hjúskaparstöðu og tekjum maka? Óskað er eftir að sundurliðun sýni hvort einstaklingarnir:
                  a.      búa einir og eru í lægstu tekjutíundunum,
    Undirliggjandi viðmið tekjutíundar er hér skilgreint þannig að öllum einstaklingum á grunnskrá álagningar er raðað í tíu jafn stóra hópa eftir tekjustofni. Eldri borgarar sem eru með tekjustofn undir lægstu launum í launatöflu á vinnumarkaði eru almennt í lægstu tekjutíundunum. Tafla 2 sýnir hvernig hlutfall einstæðra eldri borgara sem eru undir skilgreindu tekjuviðmiði og eru í þremur neðstu tekjutíundunum skiptist eftir búsetu, kyni og aldursbili. Þvert á alla aldurshópa og landshluta er bilið mikið, hjá körlum frá 47,1–100% og hjá konum 24,4–100%.

Tafla 2. Hlutfall eldri borgara með tekjustofn undir lægsta launataxta á vinnumarkaði sem búa einir og eru í lægstu tekjutíundum eftir landshluta, kyni og aldursbili.

Aldursbil
Búseta Kyn 67–71 72–76 77–81 82–86 87–91 92+
Austurland Karl 91,2% 95,7% 69,6% 47,1% 83,3% 100,0%
Kona 32,0% 31,7% 24,4% 53,3% 87,5% 100,0%
Höfuðborgarsvæðið Karl 68,5% 64,4% 59,5% 61,5% 72,8% 87,9%
Kona 50,4% 49,5% 48,0% 58,6% 77,1% 94,3%
Norðurland eystra Karl 69,1% 89,1% 78,4% 75,0% 82,6% 92,6%
Kona 34,5% 38,1% 38,7% 48,2% 77,1% 94,0%
Norðurland vestra Karl 62,9% 63,6% 53,8% 81,8% 66,7% 100,0%
Kona 38,5% 30,3% 37,8% 54,2% 66,7% 100,0%
Suðurland Karl 67,5% 69,2% 61,5% 64,7% 76,1% 90,5%
Kona 34,0% 31,9% 37,5% 59,7% 78,0% 94,2%
Suðurnes Karl 78,1% 75,4% 59,5% 70,6% 81,0% 93,8%
Kona 56,7% 46,3% 41,3% 58,5% 78,6% 100,0%
Vestfirðir Karl 85,7% 77,8% 50,0% 83,3% 72,7% 81,8%
Kona 51,2% 51,4% 46,2% 57,1% 88,9% 93,3%
Vesturland Karl 63,3% 73,7% 71,9% 62,5% 72,2% 85,7%
Kona 39,8% 48,4% 36,6% 41,2% 75,7% 89,5%

                  b.      eru í sambúð/giftir einstaklingum með sambærilegar tekjur,
    Tafla 3 lýsir hlutfalli þeirra sem eru í sambúð með einstaklingi með tekjur innan 10% vikmarka. Heilt yfir er tekjubil þessa hóps ekki breitt og má álykta að sambúðaraðilar séu með áþekkar tekjur.

Tafla 3. Hlutfall eldri borgara með tekjustofn undir lægsta launataxta á vinnumarkaði sem eru í sambúð með einstaklingi með sambærilegar tekjur eftir landshluta, kyni og aldursbili.

Aldursbil
Búseta Kyn 67–71 72–76 77–81 82–86 87–91 92+
Austurland Karl 78,9% 87,5% 88,9% 72,7% 75,0% -
Kona 94,1% 92,7% 96,3% 94,1% 100,0% -
Höfuðborgarsvæðið Karl 76,2% 67,4% 73,5% 77,4% 79,0% 63,6%
Kona 82,0% 87,0% 90,4% 93,4% 89,0% 87,5%
Norðurland eystra Karl 90,0% 100,0% 95,2% 84,2% 73,3% 100,0%
Kona 97,3% 99,3% 97,2% 97,0% 89,5% 100,0%
Norðurland vestra Karl 93,8% 75,0% 100,0% 83,3% 75,0% -
Kona 94,7% 94,3% 97,4% 92,3% 100,0% -
Suðurland Karl 91,2% 90,9% 87,9% 83,3% 76,5% 60,0%
Kona 94,4% 95,1% 98,5% 91,1% 88,2% 75,0%
Suðurnes Karl 78,4% 91,3% 76,2% 87,5% 85,7% 50,0%
Kona 90,1% 93,9% 97,0% 92,9% 92,3% -
Vestfirðir Karl 83,3% 83,3% 100,0% 100,0% 66,7% 50,0%
Kona 100,0% 91,7% 94,7% 100,0% 50,0% 100,0%
Vesturland Karl 91,4% 84,2% 58,3% 75,0% 100,0% 50,0%
Kona 93,8% 91,9% 97,1% 91,7% 90,9% 75,0%

                  c.      eru í sambúð/giftir einstaklingum með hærri tekjur.
    Af þeim sem eru í sambúð með einstaklingi með hærri tekjur eru karlar líklegri að vera í sambúð með konu með hærri tekjur eða 17% að jafnaði, á meðan hlutfall kvenna sem eiga maka með hærri tekjur er 12%.

Tafla 4. Hlutfall eldri borgara með tekjustofn undir lægsta launataxta á vinnumarkaði sem eru í sambúð með einstaklingi með hærri tekjur eftir landshluta, kyni og aldursbili.

Aldursbil
Búseta Kyn 67–71 72–76 77–81 82–86 87–91 92+
Austurland Karl 10,5% 0,0% 11,1% 18,2% 25,0% -
Kona 4,4% 7,3% 3,7% 11,8% 50,0% -
Höfuðborgarsvæðið Karl 17,4% 23,7% 24,1% 21,9% 29,6% 13,6%
Kona 13,5% 11,2% 9,1% 8,4% 12,6% 16,7%
Norðurland eystra Karl 0,0% 14,3% 0,0% 10,5% 20,0% 50,0%
Kona 1,3% 2,6% 2,8% 15,2% 10,5% 0,0%
Norðurland vestra Karl 0,0% 25,0% 30,8% 0,0% 25,0% -
Kona 10,5% 8,6% 15,8% 23,1% 0,0% -
Suðurland Karl 10,5% 9,1% 24,2% 25,0% 17,6% 20,0%
Kona 3,7% 4,9% 3,1% 13,3% 17,6% 25,0%
Suðurnes Karl 5,9% 17,4% 28,6% 12,5% 28,6% 0,0%
Kona 8,1% 7,1% 6,0% 7,1% 0,0% -
Vestfirðir Karl 0,0% 0,0% 20,0% 0,0% 33,3% 50,0%
Kona 0,0% 8,3% 5,3% 0,0% 0,0% 100,0%
Vesturland Karl 5,7% 15,8% 33,3% 16,7% 16,7% 0,0%
Kona 4,9% 8,1% 4,4% 5,6% 9,1% 50,0%