Ferill 256. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 340  —  256. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Frá félags- og húsnæðismálaráðherra.



I. KAFLI
Breyting á skipulagslögum, nr. 123/2010.
1. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 7. tölul. 2. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

2. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnun“ í 1. mgr. 3. gr., 1. og 8. mgr. 7. gr., 4. mgr. 9. gr., 4. mgr. 10. gr., tvívegis í 1. mgr. og 5. mgr. 11. gr., tvívegis í 2. mgr. 11. gr. b, 3. mgr. 11. gr. e, 5. mgr. 12. gr., 1., 2., 3. og 4. mgr. 14. gr., tvívegis í 1. mgr. 17. gr., 2. tölul. 18. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 22. gr., 1. mgr. og fjórum sinnum í 3. mgr. 23. gr., 3. mgr., tvívegis í 4. og 5. mgr. 25. gr., 26. gr., 2. og 3. mgr. 29. gr., 1. mgr. og fjórum sinnum í 3. mgr. 30. gr., 2. mgr., tvívegis í 3. mgr. og tvívegis í 4. mgr. 32. gr., 33. gr., 1. mgr. og tvívegis í 2. mgr. 34. gr., 35. gr., þrívegis í 2. mgr. 36. gr., 3. mgr. 40. gr., 3. mgr. 41. gr., fjórum sinnum í 1. mgr. 42. gr., 2. mgr. 43. gr., 1., 10., 12., 13. og 14. mgr. 45. gr., 1., 2. og 4. mgr. 46. gr., 1. og 2. mgr. 50. gr. og 52. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
     a.      1. málsl. fellur brott.
     b.      Í stað orðanna „Hlutverk stofnunarinnar samkvæmt lögum þessum er“ í kemur: Helstu verkefni Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar samkvæmt lögum þessum eru.
     c.      Fyrirsögn greinarinnar verður: Verkefni Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

4. gr.

    5. gr. laganna fellur brott.

II. KAFLI
Breyting á lögum um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, nr. 137/2019.
5. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1. gr., 1. og 3. mgr. 2. gr., 1. mgr. 3. gr., 1. mgr., tvívegis í 2. mgr. og 3. mgr. 4. gr., 1., 2. og 3. mgr. 7. gr., tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 8. gr., 1. mgr. 9. gr., tvívegis í 11. gr., 11. gr. a, 12. gr., tvívegis í 1. mgr. og tvívegis í 2. mgr. 13. gr., 1. og 2. mgr. 14. gr., 15. gr., 16. gr., 1. mgr. 17. gr., þrívegis í 2. mgr. og 4. mgr. 18. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      Á eftir orðinu „mannvirkjamála“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: skipulagsmála.
     b.      Á eftir orðunum „við sveitarfélög um“ í 2. mgr. kemur: skipulagsmál og.

7. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
     a.      Á eftir orðunum „lögum um skráningu“ í 1. mgr. kemur: merki.
     b.      Á eftir orðunum „mat fasteigna“ í 1. mgr. kemur: skipulagslögum.
     c.      Á eftir orðunum „samstarf um“ í 2. mgr. kemur: skipulagsmál og.

8. gr.

    Heiti laganna verður: Lög um húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

III. KAFLI
Breyting á lögum um framkvæmd eignarnáms, nr. 11/1973.
9. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 18. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

IV. KAFLI
Breyting á þinglýsingalögum, nr. 39/1978.
10. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í ákvæði til bráðabirgða I í lögunum kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

V. KAFLI
Breyting á lögum um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991.
11. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 3. mgr. 9. gr. og í 3. mgr. 10. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

VI. KAFLI
Breyting á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994.
12. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 2. og 4. mgr. 17. gr. og 1. og 2. mgr. 78. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

VII. KAFLI
Breyting á húsaleigulögum, nr. 36/1994.
13. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 2. mgr. 4. gr., 1., 2. og 3. mgr., tvívegis í 4. mgr., 5. mgr., tvívegis í 6. mgr. og 7. mgr. 5. gr., 1., 4., 5. og 6. mgr. 5. gr. a, 35. gr., 6. mgr. 37. gr., tvívegis í 4. mgr. 37. gr. a, tvívegis í 2. mgr. 37. gr. b, tvívegis í 4. mgr. 37. gr. c, tvívegis í 3. mgr. 52. gr., 4. mgr. 52. gr. a, 2. mgr. 55. gr. a, 2. mgr. 60. gr., 2. mgr. 61. gr., 1. mgr. og tvívegis í 2. mgr. 86. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

VIII. KAFLI
Breyting á lögum um brunatryggingar, nr. 48/1994.
14. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1., 2., 4. og 6. mgr., tvívegis í 7. mgr. og 10. mgr. 2. gr. og 3. mgr. 3. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

IX. KAFLI
Breyting á lögum um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, nr. 72/1994.
15. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 4. mgr. 4. gr., tvívegis í 6. gr., 7. gr., 1. mgr., tvívegis í 2. mgr. og í fyrirsögn 8. gr., 1., 4. og 5. mgr. 9. gr., 1., 2. og 4. mgr. og í fyrirsögn 10. gr., 11. gr., 1. og 2. mgr. og í fyrirsögn 12. gr. og 2. mgr. 13. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

X. KAFLI
Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
16. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 2. mgr. 2. gr. og 3. og 4. mgr. 4. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XI. KAFLI
Breyting á lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995.
17. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1. og 2. mgr. 11. gr., í inngangsmálslið og fyrirsögn 14. gr., 15. gr., í 1., 2. og 4. mgr. 16. gr., 17. gr., 2. mgr. 18. gr., 26. gr. og 2. mgr. 27. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XII. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.
18. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 3. mgr. 2. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XIII. KAFLI
Breyting á lögum um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga, nr. 146/1996.
19. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ tvívegis í 3. gr., tvívegis í 2. mgr. og 3. mgr. 5. gr., 3. mgr. 5. gr. b, 1. mgr. 5. gr. c, 1. mgr. 5. gr. d, tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 6. gr., 7. gr., 1. og 2. mgr. 8. gr., 2. mgr. 9. gr., 10. gr., tvívegis í 1. mgr., 2. og 3. mgr., tvívegis í 4. mgr., 5., 6., 7., 8., 9., 10. og 12. mgr. 11. gr., tvívegis í 12. gr., fimm sinnum í 2. mgr. 13. gr., 5. tölul. 13. gr. a, 5. tölul. 13. gr. b, 1. mgr. 13. gr. c, 1. mgr. 13. gr. d, 13. gr. e, tíu sinnum í 1. mgr. 14. gr., 1. mgr. 15. gr., tvívegis í 16. gr., 17. gr. og tvívegis í 1. mgr., 3., 4., 7. og 8. mgr. 18. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XIV. KAFLI
Breyting á lögum um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997.
20. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1. mgr. 7. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XV. KAFLI
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
21. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnun“ í 1. mgr. 9. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

22. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 33. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XVI. KAFLI
Breyting á vopnalögum, nr. 16/1998.
23. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 5. mgr. 4. gr., 2. og 3. mgr. 24. gr., 2. mgr. 28. gr., 10. mgr. 32. gr., 4. mgr. og tvívegis í 5. mgr. 33. gr., 1., 2. og 4. mgr. 33. gr. a og 33. gr. b laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XVII. KAFLI
Breyting á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998.
24. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ þrívegis í 2. gr., 1. og 2. mgr. og í fyrirsögn 4. gr., 1. og 4. mgr. 14. gr., 3. mgr. 14. gr. a, 1. mgr. og í fyrirsögn 15. gr., 1. og 2. mgr. 16. gr., 17. gr., 1. mgr. 18. gr., 1. og 3. mgr. 19. gr., 20. gr., 2., 3. og 4. mgr. 21. gr., 29. gr., 1. mgr., tvívegis í 5. mgr. og 7. mgr. 29. gr. a, tvívegis í 2. mgr. 29. gr. b, þrívegis í 1. mgr., tvívegis í 5. mgr. og 6. mgr. 29. gr. c, 1. mgr. og tvívegis í 3. mgr. 30. gr., 33. gr., 1. mgr. 35. gr., fjórum sinnum í 4. mgr. 36. gr., 6. og 7. mgr. 37. gr., tvívegis í 1. mgr. 39. gr., tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 40. gr., 42. gr., 1. mgr. og tvívegis í 2. mgr. 46. gr., 1. og 2. mgr., tvívegis í 3. mgr., fjórum sinnum í 4. mgr., tvívegis í 5. mgr., þrívegis í 6. mgr., 7. og 8. mgr. 47. gr., 1. og 5. mgr., tvívegis í 6. mgr. og 8. mgr. 48. gr. laganna og í ákvæði til bráðabirgða XIX í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XVIII. KAFLI
Breyting á lögum um byggingarsamvinnufélög, nr. 153/1998.
25. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í c-lið 3. gr. og 7. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XIX. KAFLI
Breyting á lögum um brunavarnir, nr. 75/2000.
26. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 4. gr., þrívegis í 6. gr., tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 9. gr., 4. mgr. 11. gr., 1. mgr. 12. gr., 1. og 2. mgr. 13. gr., tvívegis í 1. mgr. og tvívegis í 2. mgr. 13. gr. a, 2. mgr. 14. gr., 2. mgr. 15. gr., 1. og 3. mgr. 17. gr., 4. mgr. 24. gr., 3. og 4. mgr. 25. gr. a, 1. mgr., þrívegis í 2. mgr. og 3. mgr. 25. gr. b, tvívegis í 1. mgr. og 3. mgr. 25. gr. c, 1. mgr., tvívegis í 2. mgr., 3. mgr., tvívegis í 4. mgr. og í fyrirsögn 25. gr. d, tvívegis í 1. mgr., 3., 4., 7. og 8. mgr. 25. gr. e, 1. mgr. 25. gr. f, 1. og 2. mgr. 27. gr., 1., 2. og 3. mgr. og í fyrirsögn 28. gr., þrívegis í 1. mgr., 2. mgr. og í fyrirsögn 33. gr., 2. mgr. 36. gr., 1. og 2. mgr. 38. gr., tvívegis í 1. mgr., 2. mgr., 3. mgr., tvívegis í 4. mgr. og 6. mgr. 38. gr. a, 1. og 2. mgr. 39. gr. laganna og í 1. og 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VI í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XX. KAFLI
Breyting á lögum um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001.
27. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1. mgr. 1. gr., 2., 3. og 4. mgr. 3. gr. a, 2. mgr. 5. gr., tvívegis í 2. mgr. 6. gr., 2. og 3. mgr. 6. gr. g, 2. mgr. 6. gr. i, 6. gr. k, 1. mgr. 7. gr., 1. og 2. mgr. 11. gr., 1. mgr. 12. gr., 1. mgr. 16. gr., 18. gr., 1., 2., 3. og 4. mgr., tvívegis í 5. mgr. og 6., 7. og 8. mgr. 19. gr., 20. gr., 1. mgr. 21. gr., 1., 2., 3. og 4. mgr. 22. gr., 23. gr., tvívegis í 1. mgr. og 4. mgr. 24. gr., 1. mgr., tvívegis í 2. mgr. og 3. mgr. 29. gr., tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr., 1. og 2. mgr. 31. gr., tvívegis í 32. gr., 1. og 2. mgr. 32. gr. a laganna og í ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XXI. KAFLI
Breyting á lögum um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, nr. 13/2001.
28. gr.

Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 2. mgr. 4. gr. og 4. mgr. 7. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

29. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 24. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
     b.      Orðið „Skipulagsstofnun“ fellur brott.

XXII. KAFLI
Breyting á lögum um vörur unnar úr eðalmálmum, nr. 77/2002.
30. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 2. tölul. 2. gr., 6. gr., 3. mgr. 8. gr., tvívegis í 1. mgr., 2. mgr. og í fyrirsögn 9. gr., 1. og 2. mgr. og í fyrirsögn 10. gr., tvívegis í 1. mgr., 2. mgr., tvívegis í 3. mgr., 4. mgr. og í fyrirsögn 11. gr. og tvívegis í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XXIII. KAFLI
Breyting á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
31. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 1. mgr. 116. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXIV. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
32. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 3. mgr. 66. gr., 2. og 5. mgr. B-liðar 68. gr., 70. gr., 5. mgr. 71. gr. og 2. mgr. 117. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXV. KAFLI
Breyting á lögum um erfðafjárskatt, nr. 14/2004.
33. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 3. mgr. 4. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XXVI. KAFLI
Breyting á jarðalögum, nr. 81/2004.
34. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 7. mgr. 10. gr. a og tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 11. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXVII. KAFLI
Breyting á lögum um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, nr. 91/2006.
35. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1. og 2. mgr. 4. gr., 2. og 3. mgr. 6. gr., 7. gr., 3. mgr. 10. gr., tvívegis í 2. mgr. og 4. mgr. 13. gr., 2. mgr. 14. gr., 1. og 2. mgr. 17. gr., 18. gr., 19. gr., 1. og 2. mgr. 20. gr., 2. mgr. 21. gr., 22. gr., 2., 3. og 4. mgr. 23. gr., 1. mgr. 24. gr., 2. mgr. 27. gr., 1. og 2. mgr. 29. gr., 1. og 2. mgr. 30. gr., 1. mgr. 31. gr., b-lið 32. gr., 33. gr., tvívegis í 1. mgr. og 3. mgr. 34. gr., tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 35. gr., í kaflafyrirsögn X. kafla, 1. mgr. 36. gr., 1., 2. og 3. mgr. 37. gr., 38. gr., 38. gr. a, 1. mgr. 39. gr., 1. og 3. mgr. 40. gr., tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 42. gr., og 43. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XXVIII. KAFLI
Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007.
36. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 51. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XXIX. KAFLI
Breyting á lögum um notkun raflagna og raffanga í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli, nr. 135/2007.
37. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 1. og 2. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXX. KAFLI
Breyting á lögum um fiskeldi, nr. 71/2008.
38. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnunar“ tvívegis í 1. mgr. 4. gr. a, 2. mgr. 4. gr. b, 1. mgr. 5. gr., 1. mgr. 8. gr., tvívegis í 1. mgr. og fimm sinnum í 2. mgr. 9. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXXI. KAFLI
Breyting á lögum um almannavarnir, nr. 82/2008.
39. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXXII. KAFLI
Breyting á lögum um ábyrgðarmenn, nr. 32/2009.
40. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1. mgr. 2. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XXXIII. KAFLI
Breyting á lögum um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, nr. 42/2009.
41. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 4. mgr. 4. gr., 3. mgr. 5. gr., 3. og 4. mgr. 6. gr., tvívegis í 1. mgr. 10. gr., 1. mgr., tvívegis í 2. mgr. og í fyrirsögn 11. gr., 1., 4. og 5. mgr. 12. gr., 1., 2. og 4. mgr. og í fyrirsögn 13. gr., 14. gr., 1. og 2. mgr. og í fyrirsögn 15. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XXXIV. KAFLI
Breyting á lögum um mannvirki, nr. 160/2010.
42. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 6. tölul. 3. gr., 1. mgr. 4. gr., í inngangsmálslið og í fyrirsögn 5. gr., 6. mgr. 7. gr., 3. mgr. 8. gr., 1., 2. og 3. mgr. 9. gr., 1. og 2. mgr. 10. gr., tvívegis í 11. gr., 3. mgr. 12. gr., 1. mgr. 13. gr., 4. mgr. 16. gr., 1. mgr., fjórum sinnum í 2. mgr., tvívegis í 3. mgr. og 5. mgr. 17. gr., þrívegis í 1. mgr., þrívegis í 2. mgr., tvívegis í 3. mgr. og í fyrirsögn 18. gr., tvívegis í 1. mgr. 19. gr., tvívegis í 1. mgr., tvívegis í 2. mgr., 3. mgr. og tvívegis í 4. mgr. 20. gr., sex sinnum í 1. mgr. 21. gr., 6. mgr. 23. gr., 2. mgr. 24. gr., 1. og 2. mgr. 25. gr., 1. og 2. mgr. 26. gr., 3. mgr. 27. gr., þrívegis í 1. mgr., 2., 4. og 6. mgr. 28. gr., 6. mgr. 29. gr., tvívegis í 3. mgr., 5. og 7. mgr. 32. gr., 1. mgr. 33. gr., 2., 3. og 4. mgr. 34. gr., 2. mgr. 35. gr., 2. mgr. 36. gr., 1. mgr. 37. gr., 1. mgr. og í fyrirsögn 52. gr., 1. og 2. mgr. 53. gr., tvívegis í 1. mgr., fjórum sinnum í 2. mgr., þrívegis í 3. mgr. og 4. mgr. 54. gr., 1. mgr. 54. gr. a, 1., 2. og 4. mgr. 55. gr., 1. mgr., tvívegis í 2. mgr. og 3. mgr. 56. gr., tvívegis í 1. mgr., 2. og 3. mgr. 57. gr., sex sinnum í 60. gr., tvívegis í 61. gr. og í fyrirsögn 61. gr., tvívegis í 2. mgr. 62. gr. laganna og þrívegis í ákvæði til bráðabirgða í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

43. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnunar“ tvívegis í 2. mgr. 10. gr. og í 5. mgr. 13. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXXV. KAFLI
Breyting á lögum um stjórn vatnamála, nr. 36/2011.
44. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 9. gr. laganna:
     a.      Orðið „Skipulagsstofnun“ fellur brott.
     b.      Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XXXVI. KAFLI
Breyting á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011.
45. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnunar“ í 3. mgr. 5. gr. og fjórum sinnum í 2. mgr. 7. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXXVII. KAFLI
Breyting á lögum um skeldýrarækt, nr. 90/2011.
46. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnunar“ í 3. mgr. 7. gr. og 4. mgr. 9. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXXVIII. KAFLI
Breyting á lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, nr. 130/2011.
47. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnunar“ í 3. mgr. 4. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XXXIX. KAFLI
Breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013.
48. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnun“ í 2. mgr. 32. gr. og 4. mgr. 68. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XL. KAFLI
Breyting á efnalögum, nr. 61/2013.
49. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í inngangsmálslið og í fyrirsögn 10. gr. a og 1. mgr. 47. gr. d laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XLI. KAFLI
Breyting á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013.
50. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 10. og 11. mgr. 4. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XLII. KAFLI
Breyting á lögum um byggingarvörur, nr. 114/2014.
51. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1. mgr. og tvívegis í 2. mgr. 3. gr., tvívegis í 4. mgr. 4. gr., 1. og 2. mgr. 5. gr., 5. mgr. 6. gr., 8. gr., 4. mgr. 10. gr., 1. mgr. 12. gr., 14. gr., 1. mgr., tvívegis í 2. mgr. og 3. mgr. 15. gr., 1. og 4. mgr. 16. gr., 1. mgr., tvívegis í 2. mgr. og í fyrirsögn 17. gr., 18. gr., 19. gr., 1. mgr. og tvívegis í 2. mgr. 20. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XLIII. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum, nr. 40/2015.
52. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 1. mgr. 7. gr. og 11. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XLIV. KAFLI
Breyting á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016.
53. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 4. tölul. 2. gr., 3. gr., 3. mgr. 8. gr., tvívegis í 1. mgr., þrívegis í 3. mgr. og 4. mgr. 10. gr., þrívegis í 3. mgr., 9. og 10. mgr. 11. gr., í 1. mgr. 12. gr., fjórum sinnum í 1. mgr., 2. og 3. mgr. 13. gr., tvívegis í 1. mgr., tvívegis í 2. mgr., 6. og 8. mgr. 14. gr., fjórum sinnum í 1. mgr., 2. og 3. mgr., tvívegis í 8. mgr. og 9. mgr. 16. gr., 1. mgr., þrívegis í 2. mgr., 3. mgr., tvívegis í 4. mgr. og tvívegis í 5. mgr. 23. gr., 7. tölul. 27. gr. laganna og í ákvæði til bráðabirgða VII, þrívegis í 3. mgr. og 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VIII í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XLV. KAFLI
Breyting á lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.
54. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1. mgr. 5. gr., 2. mgr. 9. gr., 1. mgr. og í fyrirsögn 12. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XLVI. KAFLI
Breyting á lögum um timbur og timburvöru, nr. 95/2016.
55. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ 1. og 2. mgr., tvívegis í 3. mgr. og í fyrirsögn 5. gr., þrívegis í 6. gr., 7. gr., 2. mgr. 12. gr., 1. mgr. 13. gr., 1. og 2. mgr. 14. gr., tvívegis í 15. gr., 16. gr., 17. gr., 1., 2. og 3. mgr. 18. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
    

XLVII. KAFLI
Breyting á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.
56. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 2. mgr. 42. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

XLVIII. KAFLI
Breyting á lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018.
57. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar“ í 3. mgr. 2. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

XLIX. KAFLI
Breyting á lögum um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018.
58. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ þrívegis í 13. gr., tvívegis í 1. mgr., 3. og 4. mgr. og í fyrirsögn 14. gr., tvívegis í 1. mgr. og tvívegis í 3. mgr. 14. gr. a, 1., 2. og 3. mgr., tvívegis í 4. mgr. og tvívegis í 5. mgr. 15. gr., 1. mgr. 16. gr., 17. gr., 19. gr., 1. mgr. og þrívegis í 3. mgr. 20. gr. a, tvívegis í 1. mgr. og 5. mgr. 20. gr. b, 1. mgr., þrívegis í 2. mgr., tvívegis í 3. mgr., tvívegis í 4. mgr., tvívegis í 5. mgr. og 6. mgr. 20. gr. c laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

L. KAFLI
Breyting á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018.
59. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnun“ í 1. mgr. og tvívegis í 3. mgr. 4. gr., 4. mgr. 5. gr., 6. gr., tvívegis í 1. mgr. og þrívegis í 2. mgr. 8. gr., 4. mgr. 10. gr., 2. mgr. 14. gr. og 3. mgr. 15. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

60. gr.

    Orðin „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 6. gr. laganna falla brott.

LI. KAFLI
Breyting á lögum um skóga og skógrækt, nr. 33/2019.
61. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnun“ tvívegis í 2. mgr. 19. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

LII. KAFLI
Breyting á umferðarlögum, nr. 77/2019.
62. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 9. mgr. 69. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

LIII. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.
63. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnunar“ í 9. tölul. 3. gr., 1., 2. og 3. mgr. 6. gr., 7. gr., 1. mgr. 8. gr., 1. mgr. 14. gr., d- og e-lið17. gr., 2. mgr. 18. gr., 2. og 3. mgr. 19. gr., fimm sinnum í 1. mgr., tvívegis í 2. mgr. og í fyrirsögn 20. gr., 1. mgr., þrívegis í 2. mgr. og þrívegis í 3. mgr. 21. gr., 1. mgr. 22. gr., þrívegis í 1. mgr., 2. mgr. og tvívegis í 3. mgr. 23. gr., 1. og 2. mgr. og í fyrirsögn 24. gr., tvívegis í 1. mgr. 25. gr., 3. mgr. 26. gr., 2. mgr., tvívegis í 3. mgr. og 4. mgr. 27. gr., fjórum sinnum í 1. mgr., 2. og 4. mgr. 28. gr., 1. mgr. 29. gr., 30. gr., þrívegis í 1. mgr., 4. mgr. og tvívegis í 6. mgr. 32. gr., tvívegis í 1. mgr., 2. mgr., tvívegis 3. mgr. og 4. mgr. 33. gr. og 1. og 2. mgr. 34. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

LIV. KAFLI
Breyting á lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna flutnings fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, nr. 36/2022.
64. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ tvívegis í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

LV. KAFLI
Breyting á lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, nr. 84/2023.
65. gr.

    Í stað orðsins „Skipulagsstofnun“ í 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

LVI. KAFLI
Breyting á lögum um sérstakan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 94/2023.

66. gr.

    Í stað orðanna „Húsnæðis- og mannvirkjastofnun“ í 1. mgr. 5. gr., 1. mgr. 6. gr., 1. og 5. mgr. 9. gr., tvívegis í 1. mgr., 2. og 4. mgr. 10. gr., 1., 2. og 3. mgr. 11. gr., tvívegis í 1. mgr., tvívegis í 2. mgr., 3. og 4. mgr. 12. gr., 1., 2. og 3. mgr. 16. gr., 1. mgr. 17. gr., 1. og 2. mgr. 18. gr., tvívegis í 1. mgr., 3., 4. og 7. mgr. 19. gr. og 1. og 2. mgr. 21. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

67. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2026.
    Við gildistöku laga þessara skal Skipulagsstofnun lögð niður og tekur Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun við hlutverki, verkefnum, réttindum og skyldum, eignum og skuldbindingum hennar.

Ákvæði til bráðabirgða.

    Öll störf hjá Skipulagsstofnun eru lögð niður við gildistöku laganna. Starfsfólki Skipulagsstofnunar skal boðið starf hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
    Embætti forstjóra Skipulagsstofnunar verður lagt niður við gildistöku laganna.
    Þrátt fyrir ákvæði 67. gr. er stjórnendum heimilt að undirbúa gildistöku laganna, þ.m.t. að bjóða starfsfólki Skipulagsstofnunar starf hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
Starfsfólk Skipulagsstofnunar sem ráðið verður til starfa hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun heldur réttindum sem það hefur áunnið sér til námsleyfis og um lengdan uppsagnarfrest samkvæmt kjarasamningum þar sem miðað er við samfellt starf hjá sömu stofnun. Áunnið orlof þess starfsfólks sem þiggur starf hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun skal flytjast frá Skipulagsstofnun til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
    Ákvæði 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt þessu ákvæði.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta var samið í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Lagt er til að verkefni Skipulagsstofnunar verði flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) og Skipulagsstofnun samhliða því lögð niður. Heiti HMS eftir flutning verkefnanna verði Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og mun hún þannig halda skammstöfun sinni. Í frumvarpinu eru tillögur til breytinga á skipulagslögum og lögum um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auk fleiri laga þar sem vísað er í stofnanirnar.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Markmið með lagasetningunni er að einfalda stjórnsýslu og hagræða í ríkisrekstri.
    Á síðustu fimm árum hafa verkefni frá þremur stofnunum flust til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og hefur það skilað bæði verulegri einföldun í stjórnsýslu og hagræðingu í ríkisrekstri.
    Með flutningi verkefna Skipulagsstofnunar til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem mun fá heitið Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar gagnvart sveitarfélögum, fasteignaeigendum og öðrum hagsmunaaðilum. Með flutningi verkefna Skipulagsstofnunar skapast einnig tækifæri til þess að bæta þjónustu á landsbyggðinni þar sem stofnunin mun hafa starfsstöðvar á þremur stöðum á landinu, í Reykjavík, á Akureyri og Sauðárkróki. Samlegð í verkefnum mun þannig hafa jákvæð áhrif á aðgengi fólks og sveitarfélaga á Norðurlandi að þjónustu sem tengist skipulagsmálum. Jafnframt er markmiðið að auka bolmagn hins opinbera á sviði skipulagsmála með samlegðaráhrifum af rekstri málaflokkanna í stærri stofnun og samþættingu verkefna. Þá er ætlunin að mæta auknum kröfum um betri heildaryfirsýn yfir þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun, húsnæðisþörf og nýtingu auðlinda. Skipulagsstofnun og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun halda utan um og veita aðgengi að upplýsingum um skipulag annars vegar og skráningu mannvirkja og fasteigna hins vegar. Þessi kerfi eru ekki tengd eins og er.
    Ein stafræn lausn sem fylgir uppbyggingu allt frá skipulagsáætlun yfir í afmörkun lands, útgáfu byggingarleyfis og allt til skráningar mannvirkja mun hafa í för með sér veruleg tækifæri og einfalda hagaðilum og almenningi að fá yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir í landinu. Tækifæri myndast til að stytta afgreiðslutíma mála og ákvarðanataka framkvæmdaraðila, almennings og stjórnvalda verður upplýstari og skilvirkari. Á sama hátt verður hægt að samþætta kortalausnir og koma upp einu kortakerfi í stað þess að notendur þurfi að leita í ólíkum vefsjám, svo sem skipulagsvefsjá hjá Skipulagsstofnun og vefsjá landeigna hjá HMS. Það yrði til verulegrar einföldunar og bættrar þjónustu við alla. Með samþættingu þessara verkefna er einnig tækifæri til að birta betri gögn og tölfræðilegar greiningar. Til dæmis mætti birta mælaborð sem sýnir eftir sveitarfélagi fjölda íbúðar- og atvinnuhúsnæðis á mismunandi stigum í skipulags- og byggingarferli, svo sem samkvæmt húsnæðisáætlun, aðalskipulagi, deiliskipulagi, í byggingu, fullbúið eða tekið í notkun.
    Sameining verkefna þessara tveggja stofnana er í samræmi við stefnu stjórnvalda en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að eitt af forgangsverkefnum hennar sé að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Þá er kveðið á um það í landskipulagsstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028, sbr. þingsályktun nr. 16/154 frá 154. löggjafarþingi 2023–2024, að brýnt sé að ná jafnvægi í uppbyggingu húsnæðis í samræmi við þörf og samstilla stefnu og aðgerðir ríkis og sveitarfélaga til að tryggja nægt framboð. Tryggja þurfi framboð á fjölbreyttum íbúðum sem stuðla að sjálfbærni og félagslegri samheldni. Auka þurfi skilvirkni í ferlum skipulags og samhæfa og einfalda undirbúning framkvæmda við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis til að mæta eftirspurn og tryggja húsnæðisöryggi.
    Í húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028, sbr. þingsályktun nr. 21/154 frá 154. löggjafarþingi 2023–2024, er lögð áhersla á skilvirka stjórnsýslu á sviði húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmála og fjallað um mikilvægi þess að stjórnvöld þjónusti fagaðila og framkvæmdaraðila með samræmdum og skilvirkum hætti á sviði skipulags- og byggingarmála. Lögbundnir ferlar og verklag í skipulags- og byggingarmálum er varða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis verði endurskilgreindir og samþættir sem liður í samþættingu landsskipulagsstefnu og húsnæðisstefnu. Annars vegar verði samþættir ferlar við gerð deiliskipulags og byggingarleyfis og hins vegar ferlar við gerð aðalskipulags og húsnæðisáætlana.
    Áætlanir um flutning verkefna Skipulagsstofnunar til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru liður í að ná þessum markmiðum.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Í frumvarpinu er lagt til að verkefni Skipulagsstofnunar verði flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem fái heitið Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
    Skipulagsstofnun heyrir undir félags- og húsnæðismálaráðuneyti og sinnir nú stefnumótun, stjórnsýslu og leiðbeiningum um skipulag og framkvæmdir með sjálfbæra nýtingu auðlinda og vandaða byggð að leiðarljósi. Skipulagsstofnun starfar á grundvelli skipulagslaga, laga um skipulag haf- og strandsvæða og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Stofnunin ber þannig ábyrgð á að fylgjast með stöðu skipulagsmála hjá sveitarfélögum, veita upplýsingar, leiðbeiningar og aðstoð við gerð skipulagsáætlana ásamt því að stuðla að og standa fyrir rannsóknum á sviði skipulagsmála. Skipulagsstofnun annast einnig umsýslu Skipulagssjóðs og starfrækir Skipulagsgátt. Þá sér stofnunin um umhverfismat samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Hjá Skipulagsstofnun starfa 25 manns.
    Árið 2020 varð Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til við sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar. Um mitt ár 2022 var fasteignaskrá flutt frá Þjóðskrá til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er sjálfstæð stofnun sem lýtur sérstakri stjórn og heyrir stjórnarfarslega undir félags- og húsnæðismálaráðherra. Stofnunin starfar að stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála og brunavarna, fer með samhæfingarhlutverk opinberrar markaðsgæslu ásamt verkefnum tengdum rekstri fasteignaskrár. Þá heldur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun einnig utan um landeignaskrá sem er miðlægur landfræðilegur gagnagrunnur sem geymir upplýsingar um landeignir, hnitsetta afmörkun þeirra, afstöðu og umfang. Stofnuninni ber lögum samkvæmt ábyrgð á að stuðla að jafnvægi á húsnæðismarkaði, m.a. með húsnæðisstuðningi, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sér einnig um Húsnæðissjóð sem er í eigu og á ábyrgð ríkissjóðs og hefur það hlutverk að fjármagna lánveitingar á samfélagslegum forsendum. Hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfa 160 manns.
    Með því að sameina verkefni Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar undir einum hatti verður til öflugri stofnun sem hefur getu til að vinna að þeim kerfisbreytingum í húsnæðismálum sem boðaðar eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Þannig næst fram einföldun stjórnsýslu skipulags- og mannvirkjamála. Ferill frá skipulagi til fullbúins mannvirkis verður hjá einni stofnun gagnvart sveitarfélögum, fasteignaeigendum og öðrum hagsmunaaðilum.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið er ekki talið fela í sér álitaefni sem kallar á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.

5. Samráð.
    Hinn 11. júlí 2025 var birt í samráðgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is áformaskjal vegna sameiningar á starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (mál nr. S-120/2025). Alls bárust 17 umsagnir um áformin. Umsagnir bárust frá Arkitektafélagi Íslands, Bændasamtökum Íslands, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Landbúnaðarháskóla Íslands, Landsvirkjun, Orkuveitunni, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Skipulagsfræðingafélagi Íslands, Skorradalshreppi, Umbru – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, Vegagerðinni og ÖBÍ – réttindasamtökum og fjórum einstaklingum. Flestar þeirra voru jákvæðar í garð sameiningarinnar og töldu umsagnaraðilar að í henni fælust tækifæri til einföldunar og umbóta, sérstaklega varðandi stafræna málsmeðferð og samræmd rafræn gagnaskil. Það atriði sem tekið var til umfjöllunar í þó nokkrum umsögnum var hvort rétt væri að nýta tækifærið og færa umhverfismat framkvæmda til Umhverfis- og orkustofnunar. Nokkrir umsagnaraðilar töldu verkefnið frekar eiga heima hjá þeirri stofnun en aðrir töldu aftur á móti eðlilegra að verkefnið flyttist óbreytt með þeim verkefnum sem Skipulagsstofnun sinnir og ætti því að fylgja með.
    Að teknu tilliti til þeirra sjónarmiða sem komu fram í umsögnunum varð niðurstaðan að leggja til að umhverfismat framkvæmda yrði flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, þ.e. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar eftir flutning verkefnanna, með öðrum verkefnum sem Skipulagsstofnun sinnir. Byggist sú niðurstaða fyrst og fremst á því að markmið frumvarps þessa er aðeins að flytja núverandi verkefni Skipulagsstofnunar til HMS en ekki að ráðast í kerfisbreytingar á umhverfismati framkvæmda.
    Drög að frumvarpinu voru birt í samráðsgátt 19. september 2025 og var frestur til að skila umsögnum til 10. október. Alls bárust 12 umsagnir frá eftirfarandi aðilum: Bændasamtökum Íslands, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Ísafjarðarbæ, Landbúnaðarháskóla Íslands, Landsvirkjun, Samorku, samtökum orku- og veitufyrirtækja, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Sveitarfélaginu Skagafirði, Skipulagsfræðingafélagi Íslands, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og ÖBÍ – réttindasamtökum. Í umsögnunum komu fram skiptar skoðanir um fyrirhugaðan flutning verkefna, flestar voru jákvæðar þar sem tekið var undir markmiðið með verkefnaflutningnum og þeirri samlegð sem myndi myndast í sameinaðri öflugri stofnun. Nokkrar umsagnir lögðust hins vegar gegn frumvarpinu og lýstu áhyggjum af því að áhersla á faglega skipulagsgerð og sjálfbærni myndi minnka yrði frumvarpið samþykkt. Af því tilefni er rétt að árétta að meginmarkmiðið er einmitt að styðja enn betur við faglega skipulagsgerð með því að nýta það bolmagn sem er til staðar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Með því að samnýta ýmiss konar stoðþjónustu, svo sem hugbúnaðar- og kerfisþróun, er hægt að hraða stafrænni umbreytingu auk þess sem hægt er að samnýta vinnu við útgáfu leiðbeininga og samþætta ferla og verklag. Að öðru leyti vísast til umfjöllunar í 2. kafla um tilgang með lagasetningunni.
    Þá kom fram í nokkrum umsögnum að æskilegra væri að framkvæmd umhverfismats framkvæmda yrði flutt til Umhverfis- og orkustofnunar. Hvað það atriði varðar er vísað til umfjöllunar hér að framan um þá afstöðu sem tekin var til þeirra sjónarmiða.
    Að lokum kom fram í umsögn Félags íslenskra náttúrufræðinga að frumvarpið gætti ekki nægjanlega að áunnum réttindum starfsmanna Skipulagsstofnunar, svo sem lengri uppsagnarfresti, ávinnslu réttar til námsleyfis og orlofs. Voru þær ábendingar teknar til greina og gerðar breytingar á ákvæði til bráðabirgða til þess að tryggja að áunnin réttindi starfsmanna þiggi þeir starf hjá HMS.

6. Mat á áhrifum.
    Verði frumvarpið að lögum mun það einfalda aðgengi almennings að opinberri þjónustu og sama gildir um hagaðila á byggingarmarkaði. Þá mun flutningur verkefnanna auka bolmagn til að takast á við verkefni á sviði húsnæðis- og skipulagsmála og gera stjórnvöldum auðveldara að bregðast hratt við breytingum á ytri aðstæðum. Flutningurinn er til þess fallinn að efla og samræma samstarf við ólíka hagaðila. Einföldun stjórnsýslu er jafnframt til þess fallin að flýta uppbygginu húsnæðis og stuðla þannig að auknu húsnæðisöryggi og stöðugu framboði af viðeigandi húsnæði. Einnig fæst betri heildaryfirsýn yfir þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun og nýtingu auðlinda.
    Með breytingunni er allt málefnasviðið 31 Húsnæðis- og skipulagsmál á ábyrgð einnar stofnunar. Það styttir boðleiðir, einfaldar þjónustu við hagsmunaaðila og stuðlar að aukinni samræmingu hjá ríkinu. Auðveldara verður fyrir sveitarfélög og almenning að sækja þjónustu til ríkisins og einnig verður sveitarfélögum gert kleift að bæta þjónustu við borgarana. Aðgangur að gögnum og þjónustu verður í gegnum samhæfð kerfi á einum stað í stað margra. Til dæmis mætti útvíkka verkefnið um stafræn byggingarleyfi, sem unnið er í samstarfi við Stafrænt Ísland, þannig að afmörkun landeigna og skipulagsmál væru á sama stað.
    Í rekstraráætlun er gert ráð fyrir að núverandi húsnæði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar rúmi stofnunina eftir breytingarnar og þannig sparist um 30 millj. kr. árlega í húsnæðiskostnað. Þá má einnig gera ráð fyrir hagræðingu í innri þjónustu sem geti skilað um 50 millj. kr. á ári í sparnað þegar fram líða stundir. Hrein rekstrarhagræðing gæti því numið um 80 millj. kr. á ári
    Til viðbótar má gera ráð fyrir talsverðum samlegðaráhrifum vegna reksturs upplýsingakerfa sem mun koma málefnasviðinu til góða. Þær framfarir sem því fylgja munu auka enn frekar skilvirkni og einfalda stjórnsýslu.
    Verði frumvarpið að lögum má gera ráð fyrir að tækifæri myndist til þess að auka aðgengi að þjónustu á landsbyggðinni þar sem ein og sama stofnunin mun hafa starfsstöðvar á þremur stöðum á landinu, í Reykjavík, á Akureyri og Sauðárkróki. Samlegð í verkefnum mun þannig hafa jákvæð áhrif á aðgengi fólks og sveitarfélaga á Norðurlandi að þjónustu sem tengist skipulagsmálum.
    Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á jafnrétti kynjanna eða stöðu annarra hópa frá því sem nú er þar sem ekki er gert ráð fyrir efnislegum breytingum á gildandi lagaumhverfi skipulagsmála.
    Frumvarpið mun fyrst og fremst hafa bein áhrif á þær stofnanir sem það varðar og starfsfólk þeirra. Mikil samvinna hefur verið á milli stofnananna undanfarna mánuði til þess að undirbúa fyrirhugaðan verkefnaflutning og gera hann sem auðveldastan fyrir alla hlutaðeigandi.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1.–66. gr.

    Ákvæðin þarfnast ekki skýringa og vísast til umfjöllunar í 1. kafla.

Um 67. gr.

    Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 1. janúar 2026 en stofnanirnar hafa nú þegar hafið undirbúning að flutningi verkefna til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Gert er ráð fyrir að stofnunin geti tekið til starfa undir nýju nafni skömmu eftir gildistöku laganna, verði frumvarpið samþykkt.

Um ákvæði til bráðabirgða.

    Í ákvæðinu er kveðið á um að öll störf hjá Skipulagsstofnun verði lögð niður við gildistöku laganna, verði frumvarpið óbreytt að lögum, og öllu starfsfólki sem er þá í starfi verði boðið starf hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Gert er ráð fyrir að slík vinna geti hafist strax við samþykkt laganna og að leitast verði við að bjóða starfsfólki að sinna svipuðum verkefnum og það hefur áður sinnt en þó verður að hafa hliðsjón af óhjákvæmilegum breytingum sem fylgja breyttri verkefnaskipan.
    Í kjölfar samráðs er gert ráð fyrir í 2. mgr. að starfsfólk Skipulagsstofnunar sem ræður sig hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun haldi þeim réttindum sem það hefur áunnið sér til námsleyfis og um lengdan uppsagnarfrest þegar kjarasamningar gera ráð fyrir að sá réttur miði við samfellt starf hjá sömu stofnun. Jafnframt er kveðið á um að áunnið orlof þess starfsfólks sem þiggur starf hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun skuli fylgja því milli stofnana.