Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 342 — 69. mál.
3. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (stafræn sjúkraskrá o.fl.).
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gest frá heilbrigðisráðuneyti.
Umfjöllun nefndarinnar.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund sérfræðing heilbrigðisráðuneytis til þess að fjalla um tillögu í umsögn Fluglæknasetursins sf. um aðgang fluglækna að sjúkraskrám. Að yfirferð nefndarinnar lokinni er það mat meiri hlutans að ekki sé brýn þörf á að gera þær breytingar á lögum um sjúkraskrár sem Fluglæknasetrið sf. leggur til í umsögn sinni til nefndarinnar.
Samkvæmt a-lið 6. gr. frumvarpsins á sjúklingur, eða umboðsmaður hans, rétt á að fá afhent afrit af eigin sjúkraskrá í heild eða hluta. Þannig getur sá aðili sem óskar þess að fá útgefið heilbrigðisvottorð frá fluglækni veitt honum umboð til þess að fá afhent afrit af sjúkraskrá hans.
Að mati meiri hluta nefndarinnar hafi fluglæknar þannig leiðir til þess að nálgast upplýsingar úr sjúkraskrá þeirra sem óska útgáfu heilbrigðisvottorðs, sbr. 75. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022. Veiti aðili, sem óskar útgáfu slíks vottorðs, ekki slíkt umboð til fluglæknis telur meiri hlutinn vart að fluglæknir geti gefið út slíkt vottorð. Í því sambandi horfir meiri hlutinn til þeirra skyldna sem á fluglækni hvíla, sbr. lög um loftferðir, siðareglur lækna o.fl.
Í ljósi umsagnar Fluglæknasetursins sf. telur meiri hlutinn rétt að ráðuneytið taki málið til skoðunar og kortleggi heildstætt hvaða aðilar sem sinna sambærilegum störfum og fluglæknar, svo sem skoðanir til útgáfu vottorða o.s.frv., skuli hafa aðgang að sjúkraskrám. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að finna varanlega lausn sem einfaldi aðgang þessara aðila að sjúkraskrá þeirra sem óska útgáfu vottorða. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að hafa í huga aðstöðu þessara aðila og það óhagræði sem meiri hlutinn telur sannanlega felast í því að þeir geti ekki nálgast þessar upplýsingar beint heldur í gegnum ábyrgðaraðila sjúkraskráa.
Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að taka þetta atriði til skoðunar hið fyrsta og að höfðu samráði við hagaðila.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með áorðnum breytingum.
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Sigríður Á. Andersen og Rósa Guðbjartsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 14. nóvember 2025.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form. |
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, frsm. | Grímur Grímsson. | |
| Jónína Björk Óskarsdóttir. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. | ||