Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 355 — 96. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um líkbrennslu.
1. Hvers vegna var ákveðið að reisa nýja líkbrennslu í Gufunesi, innan borgarmarka og nærri íbúðarbyggð?
Frá árinu 2000 hefur verið gert ráð fyrir bálstofu á þessum stað samkvæmt samþykktu deiliskipulagi Reykjavíkurborgar. Árið 2005 létu Kirkjugarðar Reykjavíkur teikna nýja bálstofu og var lóð undirbúin í Gufunesi. Það hefur legið fyrir lengi að líkbrennsla Kirkjugarða Reykjavíkur þarfnist endurnýjunar. Um er að ræða næstum 80 ára gamla ofna. Reynt hefur verið að gera við þá en það er takmarkað sem hægt er að bæta með viðgerðum. Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa ítrekað bent á þörfina fyrir endurnýjun, líklega í um tvo áratugi.
Þessi málefni hafa einnig verið til umfjöllunar innan ráðuneytisins nokkuð lengi. Sem dæmi má nefna að ráðuneytið ritaði í lok ársins 2021 erindi til fjárlaganefndar þar sem tekið var fram að lausn á þessum vanda væri til skoðunar.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur tekið starfsleyfi bálstofunnar í Fossvogi til endurskoðunar og hert þau skilyrði sem gerð eru til starfseminnar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er með málið til meðferðar í kjölfar kæru frá Kirkjugörðum Reykjavíkur. Þau skilyrði sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur setur bálstofunni í nýju starfsleyfi, sem er til skoðunar hjá úrskurðarnefndinni, eru það hamlandi að draga mun verulega úr afköstum bálstofunnar. Vegna hækkandi aldurs þjóðarinnar ásamt auknum mannfjölda mun andlátum fjölga hér á landi á næstu árum. Þar að auki hefur þróunin hér á landi verið á þann veg að æ fleiri velja bálför í stað greftrunar. Að mati ráðuneytisins var þannig kominn upp bráðavandi sem brýnt var að leysa eins fljótt og mögulegt væri.
Nú þegar er búið að reisa sameiginleg rými í Gufunesi, svo sem aðstöðu fyrir starfsfólk, salerni, skrifstofu og bílastæði sem hægt er að samnýta. Einnig er kominn jarðvegspúði undir bygginguna og búið er að gera ráð fyrir háspennurafstreng. Því þarf einungis að byggja húsnæði yfir líkbrennsluofnana og mengunarvarnabúnaðinn. Öll þessi atriði spara mikinn tíma og fjármagn en fyrir liggur brýn þörf á að ný bálstofa verði tekin í notkun sem allra fyrst.
Þá er Gufunesgarður jafnframt annar af stærstu kirkjugörðum landsins. Hægt verður að jarðsetja duftker í grafarsvæði Gufuneskirkjugarðs, sem er í göngufjarlægð frá bálstofunni. Þá verður einnig stutt í nýjan kirkjugarð við Úlfarsfell. Staðsetningin er því hentug út frá umferðar- og umhverfissjónarmiðum.
Með vísan til framangreinds var ákveðið að gera viljayfirlýsingu um viðbótarframlag í 12 ár til að standa undir kostnaði við kaup á tveimur líkbrennsluofnum og viðbyggingu við núverandi húsnæði Kirkjugarða Reykjavíkur í Gufunesi, auk annarra nauðsynlegra breytinga á húsnæðinu.
Unnið er að gerð samkomulags á grundvelli viljayfirlýsingarinnar á milli ríkisins og Kirkjugarða Reykjavíkur.
2. Hvaða aðrir valkostir voru skoðaðir?
Kirkjugarðar Reykjavíkur skoðuðu ýmsa aðra valkosti. Meðal annars var skoðað að breyta húsnæði núverandi bálstofu, byggja nýtt húsnæði við núverandi aðstöðu í Fossvogi, byggja nýtt húsnæði við kirkjugarð í Kópavogi eða kaupa nýtt húsnæði. Kirkjugarðar Reykjavíkur skoðuðu kosti og galla við fyrrgreinda valkosti og var niðurstaðan sú að bygging bálstofu í Gufunesi var metinn besti valkosturinn.
3. Hvaða ráðstafanir verða gerðar til að tryggja að íbúar í Grafarvogi og nágrenni verði ekki fyrir ónæði, mengun eða öðrum óþægindum vegna starfsemi líkbrennslunnar?
Líkbrennsluofnarnir verða búnir fullkomnasta mengunarvarnabúnaði sem völ er á. Enginn reykur mun sjást frá bálstofunni og verða spilliefni og mengun eftir í mengunarvarnabúnaðinum. Líkbrennsluofnar sem þessir þekkjast í borgum víða um heim, m.a. í Kaupmannahöfn og Ósló. Tryggt verður að búnaður og ofnar verði umhverfisvænir og í fremstu röð í heiminum. Íbúar í nágrenninu ættu ekki að verða sérstaklega varir við mengun eða rekstur bálstofunnar.
4. Hvernig verður eftirliti með og mælingum á mengun og loftgæðum í kringum nýju líkbrennsluna háttað og hvar mun almenningur geta nálgast niðurstöður slíkra mælinga?
Til þess að geta hafið starfsemi mun ný bálstofa þurfa starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Starfsleyfið er gefið út samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og reglugerðar um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit nr. 550/2018. Opinbert eftirlit heilbrigðisnefndar Reykjavíkur með starfsleyfisskyldri starfsemi fer fram skv. 57. gr. reglugerðarinnar.
Opinbera birtingu á upplýsingum sem tengjast starfsemi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur má nálgast á vefsíðu þess, svo sem varðandi niðurstöður úr reglubundnu eftirliti í starfsleyfisskyldri starfsemi.
5. Hvers vegna var ákveðið að fela Kirkjugörðum Reykjavíkur rekstur líkbrennslunnar í stað þess að bjóða þjónustuna út?
Vísað er í svar við 1. og 2. lið fyrirspurnarinnar.
Ljóst er að aðeins er þörf á einni bálstofu á Íslandi miðað við núverandi fólksfjölda og eðlilega fólksfjölgun.
Samkvæmt 1. mgr. 39. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993, skal rekstur kirkjugarða greiddur úr ríkissjóði samkvæmt fjárveitingum í fjárlögum. Samkvæmt lögunum skal útreikningur framlagsins byggjast á samkomulagi ríkisins og kirkjugarðaráðs. Ríkið og kirkjugarðaráð gerðu með sér samkomulag árið 2005 um viðmiðanir fyrir árlegt framlag ríkissjóðs til starfsemi kirkjugarða. Framlag ríkisins til starfsemi kirkjugarða er byggt á þrískiptum viðmiðunum við útgjöld kirkjugarða og skiptist milli umhirðu, grafartöku og líkbrennslu. Framlag úr ríkissjóði sem byggist á samkomulaginu mun hafa staðið undir rekstrarkostnaði við alla líkbrennslu hingað til. Bálfarir hafa frá stofnun bálstofunnar verið gjaldfrjálsar fyrir einstaklinga búsetta á Íslandi.
Þá skal tekið fram að fjármögnunin er reist á þeirri forsendu að Kirkjugarðar Reykjavíkur eru reknir sem sjálfseignarstofnun sem starfar að líkbrennslu á grundvelli samkomulags við íslenska ríkið sem er gert á grundvelli téðra laga.