Ferill 98. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 357 — 98. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um erlenda ríkisborgara.
1. Hversu margir erlendir ríkisborgarar eru búsettir eða með dvalarleyfi á Íslandi?
Hinn 1. janúar 2025 voru 67.890 erlendir ríkisborgarar búsettir eða með dvalarleyfi á Íslandi samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands.
2. Hversu margir þeirra sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt án þess að hafa hlotið hann við fæðingu eða ættleiðingu eru búsettir á Íslandi?
Hagstofa Íslands heldur utan um umræddar upplýsingar en gögnin taka til ríkisfangsbreytinga frá árinu 1991 til og með 1. janúar 2024. Öflun þeirra gagna krefst sérvinnslu af hálfu Hagstofunnar sem stofnunin tekur sérstaka þóknun fyrir. Með vísan til þess hefur ráðuneytið ekki forsendur til að afla umbeðinna upplýsinga.
3. Hversu margir erlendir ríkisborgarar hafa búsetu eða dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli EES-samningsins?
Hinn 1. janúar 2024 bjuggu 46.186 erlendir ríkisborgar með ríkisfang í EES/EFTA-ríki á Íslandi samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands. Upplýsingar fyrir árið 2025 liggja ekki fyrir frá Hagstofunni.
4. Hversu margir hafa búsetu eða dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli umsóknar um alþjóðlega vernd?
Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun voru 4.020 einstaklingar með dvalarleyfi hér á landi á grundvelli tímabundinnar verndar vegna fjöldaflótta í lok árs 2024 og 2.353 á grundvelli alþjóðlegrar verndar og viðbótarverndar.
5. Hversu margir erlendir ríkisborgarar hafa búsetu eða dvalarleyfi á Íslandi á öðrum forsendum en vegna EES-samningsins eða umsóknar um alþjóðlega vernd, flokkað eftir ástæðum?
Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun voru 4.392 einstaklingar með dvalarleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar í lok árs 2024, 1.105 á grundvelli náms og menningarskipta, 1.469 á grundvelli atvinnuþátttöku og 6.183 af öðrum ástæðum, þ.m.t. einstaklingar með ótímabundið dvalarleyfi, breskir ríkisborgarar sem bjuggu á Íslandi fyrir Brexit og einstaklingar með dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.