Ferill 218. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 4/157.
Þingskjal 402 — 218. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024, nr. 70/2025 og nr. 118/2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024 frá 15. mars 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1238 frá 20. júní 2019 um samevrópska séreignarsparnaðarafurð.
2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
a. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2033 frá 27. nóvember 2019 um varfærniskröfur fyrir verðbréfafyrirtæki og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010, (ESB) nr. 575/2013, (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 806/2014.
b. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2034 frá 27. nóvember 2019 um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum og breytingu á tilskipunum 2002/87/EB, 2009/65/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ESB og 2014/65/ESB.
3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 frá 8. maí 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 frá 15. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/760 að því er varðar kröfur um fjárfestingarstefnu og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og gildissvið hæfra fjárfestingareigna, kröfur um samsetningu og fjölbreytileika eignasafna og lántöku í reiðufé og aðrar sjóðsreglur.
Samþykkt á Alþingi 24. nóvember 2025.