Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 403, 157. löggjafarþing 147. mál: evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir (einföldun).
Lög nr. 82 2. desember 2025.
Þingskjal 403, 157. löggjafarþing 147. mál: evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir (einföldun).
Lög nr. 82 2. desember 2025.
Lög um breytingu á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022 (einföldun).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Á eftir 6. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Á eftir 11. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Í stað tilvísunarinnar „7. mgr.“ í 12. mgr. kemur: 6. mgr.
- 14. mgr. fellur brott.
- Á eftir 14. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Við bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Með vísun til yfirlýsingar um hæfi skv. 2. og 3. undirgrein 6. mgr. 25. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 1. mgr. 30. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við yfirlýsingu um hæfi skv. 3. og 4. mgr. 46. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
Með vísun til skráahalds skv. 5. mgr. 25. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 1. mgr. 30. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við skrá skv. 1. mgr. 46. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 7. gr. laganna:- 11. og 13. tölul. falla brott.
- Í stað orðanna „innra matsferli“ í 12. tölul. kemur: kröfur til innri ferla.
- 15. tölul. orðast svo: 30. gr. um sérstakar kröfur vegna markaðssetningar og sölu til almennra fjárfesta.
3. gr.
5. tölul. 1. mgr. 13. gr. laganna orðast svo: 30. gr. um sérstakar kröfur vegna markaðssetningar og sölu til almennra fjárfesta.4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 15. gr. laganna:- 2. tölul. orðast svo: 6. mgr. 18. gr. um við hvaða aðstæður líftími evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs telst samrýmanlegur við lífsferla hverrar einstakrar eignar sjóðsins, um viðmiðanir fyrir ákvörðun lágmarkseignarhaldstímabils, um lágmarksupplýsingar sem veita ber lögbæru yfirvaldi evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs, um kröfur sem evrópskur langtímafjárfestingarsjóður þarf að uppfylla með tilliti til innlausnarstefnu og lausafjárstýringartækja og viðmiðanir fyrir mat á hlutfalli að teknu tilliti til m.a. vænts sjóðstreymis og skuldbindinga evrópska langtímafjárfestingarsjóðsins.
- Á eftir 2. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: 5. mgr. 19. gr. um aðstæður fyrir notkun pörunar, þ.m.t. þær upplýsingar sem evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir þurfa að veita fjárfestum.
- Á eftir 3. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: 3. mgr. 25. gr. um sameiginlegar skilgreiningar, útreikningsaðferðir og framsetningarsnið kostnaðar og heildarhlutfall kostnaðar.
- 4. tölul. fellur brott.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.6. gr.
Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020: 2. málsl. 1. mgr. 65. gr. a laganna fellur brott.Samþykkt á Alþingi 24. nóvember 2025.