Ferill 292. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 405  —  292. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um endurskoðun tollameðferðar á matvælum, beitingu öryggisákvæðis EES og tímabundna lækkun virðisaukaskatts af matvælum.


Flm.: Sigurður Ingi Jóhannsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Halla Hrund Logadóttir, Stefán Vagn Stefánsson.


    Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til breytinga á tollalögum þess efnis að lagður verði viðbótartollur, að lágmarki 10%, á þær matvörur frá Evrópusambandinu sem framleiddar eru innan lands í verulegu magni og keppa við innflutning. Jafnframt verði ráðherra falið að meta og, eftir atvikum, beita öryggisákvæðum 112.–114. gr. EES-samningsins til að bregðast við viðvarandi efnahagslegum og þjóðfélagslegum erfiðleikum í íslenskri matvælaframleiðslu sem fela í sér tímabundna takmörkun eða stöðvun tollkvóta og annarra innflutningsheimilda fyrir kjöt- og mjólkurvörur sem keppa við innlenda framleiðslu.
    Enn fremur verði ráðherra falið að undirbúa og leggja fram frumvarp til tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts af matvælum úr 11% niður í 8% í tvö ár til að draga úr áhrifum verðbólgu og styðja við heimili í landinu.
    Ráðherra skilgreini nánar þá vöruflokka sem sæti viðbótartollum eða öryggisráðstöfunum og þá matvöruflokka sem falli undir lægra virðisaukaskattsþrep samkvæmt lögum um virðisaukaskatt.

Greinargerð.

    Tillagan er sett fram í ljósi breyttra aðstæðna í alþjóðaviðskiptum og aukinnar samkeppni á heimsmarkaði fyrir matvæli. Hún er ekki viðbragð við einstökum ákvörðunum eða aðgerðum einstakra ríkja eða stofnana heldur byggist á þörfinni fyrir markvissa stefnumótun til að styrkja innlenda matvælaframleiðslu, tryggja jafnræði í samkeppni og efla fæðuöryggi landsins. Innflutningur matvæla hefur aukist hratt á undanförnum árum, á sama tíma og útflutningur íslenskra afurða til Evrópusambandsins hefur markað minna rými en væntingar stóðu til. Þetta hefur skapað varanlega og kerfisbundna áskorun fyrir innlendan landbúnað.
    Í samningi Íslands og Evrópusambandsins hafa árlegir tollkvótar fyrir innflutning á matvælum frá ESB aukist verulega. Kvótarnir taka til vöruflokka á borð við nautakjöt, svínakjöt, alifuglakjöt og osta, sem eru einmitt kjarnavörur íslenskrar framleiðslu. Ísland hefur skuldbundið sig til sívaxandi innflutnings matvöru sem keppir beint við innlenda framleiðslu – án þess að innlend framleiðsla fái sambærilegar mótvægisaðgerðir.
    Þessi kerfisbundni aukni tollkvóti hefur haft áhrif á rekstrargrundvöll og samkeppnisstöðu innlendrar framleiðslu, þar sem innflutningur í þessum vöruflokkum hefur vaxið á sama tíma og kostnaðarhækkun hefur þrengt að innlendum bændum. Þarna liggur fyrir skýr staðfesting á því að erfiðleikarnir eru ekki tímabundnir, heldur viðvarandi og innbyggðir í gildandi samningsramma.
    Í ljósi þess er eðlilegt að meta beitingu öryggisákvæða 112.–114. gr. EES-samningsins. Öryggisákvæðin heimila samningsaðila að grípa til einhliða ráðstafana þegar upp koma alvarlegir efnahagslegir eða þjóðfélagslegir erfiðleikar í ákveðinni atvinnugrein sem líklegt er að verði viðvarandi. Þau voru m.a. sett í EES-samninginn að kröfu Íslands á sínum tíma og hafa verið notuð af bæði ESB og Íslandi. Slík beiting gæti m.a. falið í sér tímabundna takmörkun tollkvóta eða stöðvun innflutningsheimilda fyrir kjöt og mjólkurvörur, þar sem innlend framleiðsla stendur frammi fyrir skýrum og viðvarandi rekstrarerfiðleikum. Með því væri Ísland að beita sama samningsbundna úrræði og Evrópusambandið hefur sjálft nýtt gagnvart Íslandi í öðrum málum.
    Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir að lagður verði viðbótartollur, að lágmarki 10%, á þær vörur sem eru framleiddar innan lands í verulegu magni og keppa beint við innflutning, svo sem kjúklingaafurðir, nautgripaafurðir, svínaafurðir og egg. Slíkur tollur er hóflegur í alþjóðlegum samanburði en hefur þó næg áhrif til að styrkja samkeppnisstöðu innlendrar framleiðslu. Þeir vöruflokkar sem Ísland framleiðir ekki eða aðeins í takmörkuðu magni eru áfram undanskildir.
    Jafnframt er lagt til að virðisaukaskattur af matvælum verði lækkaður tímabundið úr 11% niður í 8% í tvö ár til að draga úr áhrifum verðbólgu, bæta kjör heimila og vinna á þrálátum verðbólguþrýstingi. Lækkun virðisaukaskatts hefur skjót og bein áhrif á útgjöld heimila og vegur hlutfallslega þyngst hjá tekjulægri hópum sem verja stærri hluta tekna sinna til matarkaupa en hinir efnameiri.
    Í sambærilegum aðstæðum hefur Svíþjóð farið svipaðar leiðir. Þar var virðisaukaskattur á mat lækkaður tímabundið úr 12% í 6% til að draga úr verðbólgu og létta undir með heimilum. Sú aðgerð sýnir að tímabundin skattalækkun á matvælum og markvissar innflutningsaðgerðir geta reynst áhrifaríkar þegar tryggja þarf bæði stöðu neytenda og framleiðenda í krefjandi aðstæðum.
    Með þessum aðgerðum – viðbótartollum, mögulegri beitingu öryggisákvæðis og tímabundinni lækkun virðisaukaskatts – er leitast við að tryggja innlendri matvælaframleiðslu jafnræði, draga úr verðbólgu og bæta stöðu heimila. Aðgerðirnar eru samverkandi og byggðar á traustum lagagrundvelli og reynslu annarra ríkja sem hafa leitað sambærilegra lausna.